Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Page 68

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Page 68
Hér verður fjallað um bókina Handbook of Return to Work: From Research to Practice, en henni er ritstýrt af sálfræðingunum Izabela Z. Schultz og Robert J. Gatchel. Bókin er gefin út af Springer bókarforlaginu í New York árið 2016. Bókin er í flokki fimm bóka sem Springer bókaforlagið hefur gefið út sem nefnist Handbooks in Health, Work, and Disability, og fjalla þær allar um mikilvæg efni sem tengjast starfsendurhæfingu. Í því sambandi má benda á að í síðasta ársriti VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs var fjallað um eina af þessum bókum, þ.e. bókina Handbook of Vocational Rehabilitaion and Disability Evaluation: Application and Implementation of the ICF. Bókin sem hér er fjallað um er 721 blaðsíða að lengd og skiptist í 5 hluta, með samtals 37 köflum. Í lok hvers kafla er heimildaskrá og aftast í bókinni er atriðaorðaskrá. Bókina er einnig hægt að fá á rafrænu formi auk þess sem hægt er að versla staka kafla á rafrænu formi í gegnum netið hjá útgefanda sem getur komið sér vel. Kaflahöfundar eru um 80 talsins og koma flestir frá Bandaríkjunum og Kanada, en einnig frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi, Hollandi, Frakklandi, Sviss og Slóveníu. Höfundar eru margir hverjir leiðandi fagfólk og rannsakendur í starfsendurhæfingu í heiminum í dag. Eins og titill bókarinnar gefur til kynna er þetta handbók um hvernig best sé að stuðla að endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys, allt frá rannsóknum til framkvæmda. BÓKARÝNI Handbook of Return to Work: From Research to Practice SMÁRI PÁLSSON taugasálfræðingur og sérfræðingur hjá VIRK HÉR ER UM YFIRGRIPS- MIKLA HANDBÓK AÐ RÆÐA SEM GETUR NÝST FAGFÓLKI OG ÖÐRUM ÞEIM SEM ERU AÐ SINNA ÞEIM SJÚKLINGAHÓPUM SEM FJALLAÐ ER UM Í BÓKINNI AUK ÞESS SEM GEFNAR ERU ÝMSAR HUGMYNDIR UM HVERNIG BEST SÉ AÐ STUÐLA AÐ ENDURKOMU TIL VINNU.“ 68 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.