Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Side 70

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Side 70
ÚTGÁFA VIRK VIRK gefur út margvíslegt kynningar- og fræðsluefni fyrir starfsmenn, einstaklinga í þjónustu, almenning og stjórnendur í atvinnulífinu. Hægt er að nálgast efnið á vefsíðu VIRK (www.virk.is) en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VIRK og fá senda bæklinga og fræðsluefni eftir þörfum. Verum VIRK Bæklingurinn er ætlaður til upplýsingar fyrir almenning og fagfólk um þjónustu VIRK og liggur frammi hjá stéttarfélögum og öðrum stofnunum sem koma að starfsendurhæfingu. Í bæklingnum eru hlutverk og starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs reifuð í stuttu máli auk þess sem leitast er við að svara mikilvægum spurningum eins og hverjir eigi rétt á þjónustu VIRK og hvernig starfsendurhæfingunni er háttað. Verum VIRK hefur verið þýddur á ensku og pólsku. Dagbók VIRK gefur út sérstaka dagbók fyrir einstaklinga sem eru í starfsendurhæfingu á vegum VIRK. Henni er ætlað að aðstoða einstaklinga við að efla starfsgetu sína og lífsgæði með skipulegri markmiðssetningu og skráningu. Dagbókin er með vikuyfirliti á hverri opnu ásamt fjölbreyttum möguleikum til skráningar á markmiðum, líðan, virkni og árangri bæði fyrir árið í heild sinni, hvern mánuð og hverja viku ársins. Geðheilsan og vinnustaðurinn fræðslubæklingur fyrir stjórnendur VIRK gaf út fræðslubækling um geðræn vandamál í samvinnu við Embætti landlæknis sem ætlaður er stjórnendum á vinnustöðum. Bæklingurinn er bæði hugsaður sem almennur fræðslubæklingur um geðræn vandamál og vinnustaðinn en í honum má einnig finna upplýsingar um hvernig bregðast má við slíkum aðstæðum á vinnustaðnum. VIRK framtíð Helstu niðurstöður stefnumótunarvinnu stjórnar, starfs- manna, ráðgjafa og sérfræðinga sem vinna fyrir VIRK eru sett fram í þessum bæklingi; hlutverk, framtíðarsýn og gildi VIRK. 70 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.