Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Page 70
ÚTGÁFA VIRK
VIRK gefur út margvíslegt kynningar- og fræðsluefni fyrir starfsmenn, einstaklinga í þjónustu, almenning og stjórnendur í atvinnulífinu.
Hægt er að nálgast efnið á vefsíðu VIRK (www.virk.is) en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VIRK og fá senda bæklinga og
fræðsluefni eftir þörfum.
Verum VIRK
Bæklingurinn er ætlaður til upplýsingar fyrir almenning
og fagfólk um þjónustu VIRK og liggur frammi hjá
stéttarfélögum og öðrum stofnunum sem koma að
starfsendurhæfingu. Í bæklingnum eru hlutverk og
starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs reifuð í stuttu
máli auk þess sem leitast er við að svara mikilvægum
spurningum eins og hverjir eigi rétt á þjónustu VIRK og
hvernig starfsendurhæfingunni er háttað. Verum VIRK
hefur verið þýddur á ensku og pólsku.
Dagbók
VIRK gefur út sérstaka dagbók fyrir einstaklinga sem eru
í starfsendurhæfingu á vegum VIRK. Henni er ætlað að
aðstoða einstaklinga við að efla starfsgetu sína og lífsgæði
með skipulegri markmiðssetningu og skráningu. Dagbókin
er með vikuyfirliti á hverri opnu ásamt fjölbreyttum
möguleikum til skráningar á markmiðum, líðan, virkni og
árangri bæði fyrir árið í heild sinni, hvern mánuð og hverja
viku ársins.
Geðheilsan og vinnustaðurinn
fræðslubæklingur fyrir stjórnendur
VIRK gaf út fræðslubækling um geðræn vandamál
í samvinnu við Embætti landlæknis sem ætlaður er
stjórnendum á vinnustöðum. Bæklingurinn er bæði
hugsaður sem almennur fræðslubæklingur um geðræn
vandamál og vinnustaðinn en í honum má einnig finna
upplýsingar um hvernig bregðast má við slíkum aðstæðum
á vinnustaðnum.
VIRK framtíð
Helstu niðurstöður stefnumótunarvinnu stjórnar, starfs-
manna, ráðgjafa og sérfræðinga sem vinna fyrir VIRK eru
sett fram í þessum bæklingi; hlutverk, framtíðarsýn og gildi
VIRK.
70 virk.is