Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 5

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 5
5www.virk.is VIRK Starfsendurhæfing er árangursrík leið til þess að koma í veg fyrir að fólk falli brott af vinnumarkaði í kjölfar áfalla og stuðla að endurkomu þess. Nágrannaþjóðir okkar leggja mikla áherslu á starfsendurhæfingu því ríkissjóðir Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs verja 0,2% af landsframleiðslu til starfsendurhæfingar en það samsvarar fjórum milljörðum íslenskra króna. Finnar og Hollendingar verja enn meiri fjármunum til slíkrar fyrirbyggjandi starfsemi. Ávinningur starfsendurhæfingar Ávinningur árangursríkrar starfsendur- hæfingar getur verið mjög mikill. Mesti ávinningurinn verður ekki metinn til fjár en hann felst í betri heilsu, andlegri sem líkamlegri, og betri afkomu þeirra einstaklinga sem endurhæfast. En fjárhagslegan ávinning er unnt að leggja mat á. Sem dæmi má nefna að takist að endurhæfa einstakling á þrítugsaldri þannig að hann verði fullur þátttakandi á vinnumarkaði í stað þess að verða örorkulífeyrisþegi nemur núvirtur samfélagslegur ávinningur 100 m.kr. Það þarf því ekki nema 20 slík dæmi til þess að réttlæta þann kostnað sem nú er varið til starfsendurhæfingar. Niðurstaða greiningarfyrirtækisins Talnakönnunar er að starf VIRK sé mjög arðbært. Samkvæmt tilteknum forsendum, sem eru mjög varkárar, var ávinningur ríkissjóðs og lífeyrissjóða í formi minni bótagreiðslna og aukinna skattgreiðslna 10 milljarðar króna árið 2013, samanborið við tæplega 1,3 milljarðs króna gjöld VIRK það ár. Áhyggjur heildarsamtaka vinnumarkaðarins af örorku Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega og með- fylgjandi byrði sem hvílir á lífeyrissjóðum, ríkissjóði og vinnumarkaðnum hefur valdið heildarsamtökum á vinnumarkaði miklum áhyggjum undanfarinn áratug. Sama verður ekki sagt um stjórnmálamenn landsins. Þegar samið var um hækkun iðgjalds vinnuveitenda um tvær prósentur í kjarasamningunum árið 2004 var önnur prósentan rökstudd með þeirri þyngingu örorkubyrðar lífeyrissjóða sem þá hafði átt sér stað og hin prósentan með auknum ævilíkum og þar með lengra lífeyristímabili. Í tengslum við framlengingu kjarasamninga í nóvember 2005 var gert samkomulag við þáverandi ríkisstjórn um samstarf um leiðir til að draga úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða. Forsætisráðherra skipaði nefnd fulltrúa stjórnvalda, aðila vinnumarkaðar, lífeyrissjóða og Öryrkjabandalagsins sem skilaði niður- stöðum og tillögum í mars 2007. Niður- stöðurnar voru einkum þær að gildandi örorkumatskerfi hindri endurhæfingu og að úrskurðaraðilar séu undir þrýstingi að úrskurða svokallaða 75% örorku vegna mikilla fjárhagslegra hagsmuna þeirra sem sækja um örorkulífeyri. Nefndin lagði til að starfsendurhæfingarúrræði yrðu aukin til að bæta hag einstaklinga sem búa við skerta starfsorku, að bótakerfið yrði endurskoðað þannig að byggt yrði á getu einstaklinga til að afla sér tekna og að bætur yrðu að jafnaði háðar skilyrðum um atvinnuleit og endurhæfingu. Áform og efndir framlaga ríkissjóðs Samið var um að hefja uppbyggingu starfsendurhæfingar í kjarasamningunum í febrúar 2008. Samhliða var gert sam- komulag við ríkisstjórnina um að ríkissjóður legði sömu fjárhæð og atvinnulífið til starfsendurhæfingar frá og með árinu 2009. Ekki kom til greiðslu þessa framlags ríkisins. Í stöðugleikasáttmálanum í júní 2009 gerðu aðilar vinnumarkaðar og ríkisstjórnarinnar „Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega og meðfylgjandi byrði sem hvílir á lífeyrissjóðum, ríkissjóði og vinnu- markaðnum hefur valdið heildarsamtök- um á vinnumarkaði miklum áhyggjum undanfarinn áratug.“ samkomulag um að VIRK fengi 150 m. kr. framlag úr ríkissjóði árið 2010, 250 m.kr. árið 2011, 350 m.kr. árið 2012 og að frá og með 1. júlí 2013 yrði framlag ríkisins jafnvirði 0,13% af tryggingagjaldsstofni. Engar greiðslur komu úr ríkissjóði til VIRK þessi ár. Þegar lög um atvinnutengda starfs- endurhæfingu og starfsemi starfsendur- hæfingarsjóða voru samþykkt í júní 2012 var ákveðið að fyrsta greiðsla ríkisins kæmi í október 2013. Hún kom þó ekki. Í fjárlögum fyrir árið 2014 var enn ákveðið að fella niður framlagið til VIRK, sem lögfest hafði verið í lögum um tryggingagjald, en í fjárlagavinnunni á Alþingi var því heitið að að fullt framlag kæmi árið 2015. Það gerðist ekki og í fjárlögum 2015 var varið 200 m.kr. til VIRK. Samkomulag VIRK og ríkisins Þann 4. mars 2015 var undirritað sam- komulag milli fjármála- og efnahagsráð- herra og félags- og húsnæðismálaráðherra annars vegar og VIRK hins vegar. Með samkomulaginu er vonast til að þær deilur sem verið hafa um aðkomu ríkisins að starfsendurhæfingu verði settar niður. Samkomulagið kveður á um að ráðherrarnir muni leggja til í frumvörpum til fjárlaga næstu ár að framlög ríkissjóðs til VIRK verði 650 m.kr. árið 2016 og jafn- gildi 0,06% af gjaldstofni tryggingagjalds árið 2017. Jafnframt að öllum þeim sem atvinnutengd starfsendurhæfing geti gagn- ast til að verða virkir á vinnumarkaði verði tryggð þjónusta hjá VIRK og að í stjórn VIRK bætist stjórnarmaður skipaður af félags- og húsnæðismálaráðherra. Ríkisstjórnin og vinnumark- aðurinn vilja taka upp starfs- getumat í stað örorkumats Heildarsamtök vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin hafa tekið höndum saman um að tryggja öllum starfsendurhæfingu og stuðla þannig að aukinni virkni vinnumarkaðarins. Aðilar samkomulagsins eru sammála um að taka þurfi upp starfsgetumat í stað örorkumats innan almannatryggingakerfisins og mats á orkutapi innan lífeyrissjóðskerfisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.