Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 33
33www.virk.is
VIÐTAL
hjálparlaust um húsið. Þetta var vinnan mín
þá og ég bað vini og vandamenn að hafa
ekki samband við mig fyrr en í fyrsta lagi í
hádeginu. Það gat tekið mig allt að einum
og hálfum tíma, bara að fara framúr, í sturtu
og klæða mig. Og oft var þetta óskaplega
erfitt og niðurdrepandi.
Þegar ég kom á Reykjalund, um það bil
þremur mánuðum eftir endurhæfingu
í Hveragerði áttaði ég mig á í hve slæmu
ástandi heilsa mín var. Ég hafði alltaf verið
að berjast og oft var ég skelfingu lostin.
Það komu dagar þar sem ég hugsaði: „Ég
get þetta ekki. Þetta er of mikið umfang
til þess að ég ráði við það.“ En alltaf var
nóg sem fékk mig til að halda áfram. Ég á
gott net í manni mínum, þremur dætrum,
tengdasonum og barnabörnum. Slíkt er
ómetanlegt.“
Hvað gerði VIRK fyrir þig?
„Það var mikið. Ráðgjafinn þar fékk mig
til að horfast í augu við staðreyndir og
leyfa sjálfri mér að gefa eftir og skilja að
ég þurfti að slaka á. Ég er búin að þurfa
að mæta hroka mínum mörgum sinnum á
þessu veikindatímabili. Áður en ég veiktist
var ég í fjallaprógrammi og gekk á fjöll í
frístundum mínum. Hafði til dæmis nýlega
gengið á Hvannadalshnjúk þegar ég
veiktist vegna stóra blóðtappans. Það var
því ekki inni í sjálfsmynd minni að veikjast.
Heilsuljón eins og ég að veikjast? Nei. Ég
gat ekki viðurkennt þetta fyrir sjálfri mér á
hverju sem gekk.
Ég hafði starfað innan heilbrigðisgeirans
lengi, útskrifaðist sem sjúkraliði 1981
og hafði unnið bæði á gjörgæsludeild og
bráðamóttöku, reynsla sem hjálpaði mér
heilmikið. Hún veitti mér innsýn inn í
heilbrigðisheiminn, olli því að ég lít ekki á
lækna sem almáttuga. Þeir eru mannlegir
eins og aðrir og álit eins ekki endilega
neinn lokadómur.“
Vildi eiga venjulegt líf
Hvernig var andleg heilsa þín í þessu
öllu saman?
„Í Hveragerði hrundi ég saman þegar líða
fór að heimferð. Ég fór að hugsa: „Hvað á
ég að gera þegar ég kem héðan út?“ Þar
hafði verið haldið utan um mig eins og unga
í hreiðri. Þá var það sem sjúkraþjálfarinn
minn stakk upp á að ég hefði samband við
VIRK, því ég væri svo langt frá því að vera
endurhæfð. Ég væri bara að leggja af stað
í miklu lengra ferli.
Fljótlega þegar ég kom í samstarfið við
VIRK var ég talin heppilegur kandídat
fyrir Reykjalund. Það var virkilega erfitt að
þurfa að kyngja því. Ég byrjaði á að gera
stutta könnun á hve lengi fólk væri þar
yfirleitt í meðferð. Svona fjórar vikur, - ég
hugsaði: „Allt í lagi, ég lifi það af.“ Ég var
ekki inniliggjandi heldur kom snemma á
morgnana og fór heim um hádegi. Í meira
en eitt og hálft ár hafði ég meira og minna
þurft að reiða mig á aðstoð annarra. Mig
langaði til að geta verið með fjölskyldu
minni í því sem hún var að gera, eiga
„venjulegt“ líf.
Ég var sjö mánuði í meðferð á Reykjalundi.
Allan þann tíma var ég í stöðugu sambandi
við ráðgjafann hjá VIRK. Hann tók
„töffarann“ úr höndunum á mér. Sagði
við mig þegar ég mætti á fundi: „Hættu
þessu og slakaðu á.“ Þetta þekkti ég ekki.
Á Reykjalundi sögðu læknarnir við mig:
„Yfirleitt erum við að ýta fólki út strax og
það er fært til þess, það eru ekki mörg
tilvik þar sem við reynum að halda fólki
á staðnum.“ Í fyrstu vildi ég komast úr
meðferðinni sem þó var óskaplega góð. Ég
var í þrekæfingum, sundleikfimi, göngum
og hjá sjúkraþjálfara, svo eitthvað sé nefnt.
Ég fékk mikið aðhald á Reykjalundi. Eða,
eins og maðurinn minn sagði: „Þú ert farin
að æfa þig eins og afreksíþróttamaður.“
Samstarfið við VIRK var gott
Fékkst þú sálfræðiaðstoð?
„Ég taldi sjálf að ég hlyti að þurfa þess
og ráðgjafinn varð við beiðni minni um
sálfræðitíma fyrir mig. En ferlið var eðlilegt
miðað við allt sem á undan var gengið. Ég
vissi það, en var þó hrædd um að veikjast
aftur og hvað yrði um mig í framtíðinni. En
ég trúði að ég yrði aftur hraust. Þannig var
mín sjálfsímynd oftast. Hún var dýrmæt sú
stund þegar ég fyrst var án verkja.
Í dag er ég hætt hjá VIRK fyrir nokkru
síðan. Ég er eðlilega enn að vinna með
aukaverkanir af öllu sem á undan er gengið
og fyrir löngu orðin meðvituð um að þetta
er langhlaup. Ég vinn hluta úr degi sem
sjálfstætt starfandi heilsumarkþjálfi í nafni:
Fyrir fólk, ásamt því að vera þriðjungur
fyrirtækisins: Á heildina litið, sem vinnur
á fjölbreyttan hátt að heilsueflingu í sinni
víðustu mynd. Þarna get ég nýtt saman
nám og persónulega reynslu ásamt því að
það er orðið að ástríðu að hvetja til þess
að fólk axli í ríkari mæli ábyrgð á eigin
heilsu í samvinnu við þá sem vinna innan
heilbrigðisþjónustunnar.
Síðasta vor var ég með erindi: Mín leið, á
meltingarráðstefnu í Salnum í Kópavogi.
Það sem kom mér skemmtilega á óvart
var að jákvæðustu viðbrögðin í salnum
komu frá læknum. Mér þótti afar vænt um
það því ég er sannfærð um að því meiri
sem samvinnan er á milli ólíkra fagaðila,
því betri árangur fyrir einstaklinginn sem
leitar heilsu sinnar. Þetta kom afar vel í ljós
í samstarfinu við VIRK, sem mér finnst flott
„concept“. Mér leið alltaf eins og ég væri á
hlutlausu og þægilegu svæði þegar ég var
hjá ráðgjafanum sem við þær aðstæður
vann trúnað minn og traust. Hjá honum
gat ég tjáð mig hindrunarlaust, þurfti ekki
að vera annað en ég var hverju sinni.
Það sem VIRK gerði best fyrir mig var að
varpa ljósi á þær staðreyndir hve veik ég
í raun var og ég vildi ekki, þrátt fyrir allt,
horfast í augu við, þegar ég hóf samstarfið.
Aðstoðin fólst í að taka mig örþreytta úr
ökumannssætinu, sem ég svo sannarlega
þurfti mest af öllu á að halda. Þaðan fór ég
í farþegasætið um stund, það er; þurfti ekki
að hugsa fyrir öllum sköpuðum hlutum.
Fékk styrk, stuðning og áhuga fyrir því
sem ég var að gera til að endurheimta
sem mest af minni góðu heilsu. Þetta var
ómetanlegt tímabil í uppbyggingu eftir
ítrekuð áföll og allt sem þeim fylgir og fyrir
það er ég og verð óendanlega þakklát.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
„Þetta var ómetanlegt
tímabil í uppbyggingu eftir
ítrekuð áföll og allt sem
þeim fylgir og fyrir það
er ég og verð óendanlega
þakklát.“