Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 41

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 41
41www.virk.is GREIN eftir langtímaveikindi, einnig tækifæri til að vinna sig upp í fyrri vinnugetu. Einungis 3% svöruðu því neitandi. Niðurstöður benda því til að leggja þurfi enn meiri áherslu á að skerpa viðbrögð vinnustaða þegar kemur að endurkomu til vinnu eftir langtímaveikindi þannig að það verði viðurkennd venja og allir starfsmenn viti hver sú stefna er. Ástæða fjarveru Það eru ýmsar ástæður fyrir því hvers vegna fólk er fjarverandi af vinnustaðnum. Starfsfólk getur verið fjarverandi í leyfi vegna sumarfría, fæðingarorlofs, námsleyfa eða í skammtíma- og langtímaveikindum en starfsfólk getur einnig verið fjarver- andi án leyfis. Í könnuninni kom fram að meginástæðan fyrir fjarveru þátttakanda á síðasta ári voru umgangspestir eða hjá um 72% þátttakenda. Stoðkerfisvandamál var ástæðan hjá um 22% þátttakenda, 9% voru fjarverandi vegna streitu, 6% vegna geðrænna vandamála en um 18% tilgreindu ekki sérstaklega ástæðu fjarveru þeirra. Ánægja í starfi Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar þá eru 75% þátttakenda mjög ánægðir eða fremur ánægðir í vinnunni en einungis 7% eru fremur óánægðir eða mjög óánægðir. Þeir sem voru ósáttir með vinnuálagið voru líklegri til að svara að þeir væru í meðallagi ánægðir eða óánægðir í vinnunni í samanburði við þá sem voru sáttir eða í meðallagi sáttir við vinnuálagið og var marktækur munur á milli hópanna*. Vinnuvernd og heilsueflandi úrræði Það er ýmislegt sem fyrirtæki geta gert til að auka ánægju starfsmanna í vinnunni og þannig á óbeinan hátt haft áhrif á fjarverutölur á vinnustaðnum. Mikilvægt er að þar fari fram skipulagt vinnuverndarstarf (s.s. skipaður öryggistrúnaðarmaður, öryggisvörður eða öryggisnefnd, eftir stærð vinnustaðar, áhættumat fyrir flest störf á vinnustaðnum eða áætlun um forvarnir/ úrbætur). 65% þátttakenda svöruðu að svo væri á þeirra vinnustað, 6% svöruðu nei og 29% sögðust ekki vita það. Þessar niðurstöður eru mjög svipaðar og í könnuninni 2011. Marktækur munur mældist milli aldurshópa og hærra hlutfall þeirra í yngri aldurshópum söguðust ekki vita um slíka starfsemi hjá vinnustaðnum*. Þetta bendir til þess að fræða þarf yngri starfsmenn betur um þessa mikilvægu þætti á vinnustaðnum sem hafa það að markmiði að stuðla að auknu öryggi og ánægju starfsmanna. Spurt var hvort boðið væri upp á einhvers konar heilsueflandi úrræði á vinnutíma eða utan hans og svöruðu 79% að svo væri en 21% sögðu nei. Hærra hlutfall þeirra sem voru óánægðir í vinnunni svöruðu þessari spurningu neitandi en þeir sem voru ánægðir eða í meðallagi ánægðir og var marktækur munur á milli hópanna*. Flest þátttökufyrirtækjanna buðu upp á líkamsræktarstyrki, bæði á líkamsræktarstöðvum og í sund og buðu upp á heilsusamlegan mat í mötuneytunum og ávexti yfir daginn. Mörg veittu ákveðna samgöngustyrki til starfsmanna sem hjóluðu eða gengu í vinnuna og einnig voru gönguhópar leyfðir á vinnutímanum eða starfsmönnum gert kleift að stunda líkamsrækt á vinnutíma. Önnur dæmi um heilsueflandi úrræði sem þátttökufyrirtækin buðu upp á voru meðal annars: dansnámskeið, reglulegar heilsufarsmælingar og bólusetningar, teygjuæfingaprógrömm á tölvum, nám- skeið í streitustjórnun, sálfræðiaðstoð, skjávinnugleraugu og leiðbeiningar um rétta líkamsbeitingu og mat á vinnuum- hverfi hjá sjúkraþjálfara. Tækifæri til að þróast í starfi Möguleiki til að þróast í starfi er mikil- vægur starfsmönnum og rannsóknir sýna að þessi þáttur hefur áhrif á starfsánægju (Paterson, T.D., Luthans, F. & Jeung, W. 2014). Rúmlega 51% þátttakenda sögð- ust alltaf, mjög oft eða fremur oft fá hjálp frá næsta yfirmanni við að auka færni sína í starfi á móti 21% sem sögðust fremur sjaldan, mjög sjaldan eða aldrei fá slíka hjálp. Niðurstöður spurningakönnunar- „Það er léttir að vera búin að hugsa og útbúa vinnu- ferli þegar kemur að veik- indum starfsmanna og að þeir þekki vinnuferlið, það kemur ekki aftan að nein- um, því þetta getur verið viðkvæmt málefni.“ Tafla 2 Niðurstöður úr könnununum 2011 og 2014 sem tengjast markmiðum verkefnisins. Er skráð starfsmannastefna á vinnustað? 48% 63% 39% 28% Er sérstök umfjöllun um viðbrögð við veikindafjarvistum í stefnu? 38% 64% 46% 31% Fjallar stefna um að starfsmenn geti verið boðaðir í samtal um fjarvistir? 51% 75% 33% 19% Hafa stjórnendur markvisst samband ef fjarvist er lengri en ein vika? 33% 45% 52% 45% Hafa stjórnendur reglulega samband við starfsmenn í langtímaveikindum? 26% 40% 66% 55% Eru skráðar vinnureglur um viðbrögð þegar fólk kemur til baka í vinnu úr langtímaveikindum? 11% 25% 69% 65% Hefur þú rætt formlega við starfsmenn um fjarvistir síðustu 12 mánuði? 29% 34% N/A N/A Já 2011 Já 2014 Veit ekki 2011 Veit ekki 2014 Niðurstöður nokkurra spurninga frá könn-uninni 2011 og 2014 sem tengjast mark-miðum verkefnisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.