Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 68
68 www.virk.is
U
P
P
LÝ
S
IN
G
A
R
UPPLÝSINGAR
Hér er fjallað um bókina: Handbook of Voca-
tional Rehabilitation and Disability Evaluation:
Application and implementation of the ICF.
Bókinni er ritstýrt af Reuben Escorpizo, Debra
Homa, Sören Brage og Gerold Stucki og er
gefin út af Springer International Publishing
Switzerland árið 2015.
Skert starfsgeta (disability) hefur áhrif á
lífsgæði einstaklinga, samfélög og hagkerfi
þjóða og er vaxandi vandamál sem bregðast
þarf við. Í þeim tilgangi hafa verið sett fram
markmið til úrbóta á alþjóðavísu (UN, WHO,
ILO o.fl.). Til að geta brugðist við vandanum er
nauðsynlegt að geta lýst minnkaðri starfsgetu
eða fötlun á samræmdan, gagnsæjan hátt og
ráða yfir matsaðferðum sem eru viðeigandi
þvert yfir mismunandi menningarheima og
heilbrigðiskerfi. Slíkt myndi meðal annars
auðvelda samanburð rannsókna. Við þurfum
þannig að geta talað sama tungumál óháð
fagstéttum eða menningarmun. Samhliða
því þurfum við að finna árangursríkar leiðir
í starfsendurhæfingu og styðja þannig við
endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkað
þrátt fyrir hindranir.
Í bókinni Handbook of Vocational Rehab-
ilitation and Disability Evaluation: Application
and Implementation of the ICF er leitast við
að varpa ljósi á þetta vandamál og hvernig
hægt er að nýta ICF kerfið (Alþjóðlega
flokkunarkerfið um færni, fötlun og heilsu)
til að ná fram sameiginlegum skilningi og
samræma vinnulag. Þó ICF kerfið sé ekki
matstæki heldur flokkunarkerfi þá má byggja
á því til að draga skipulega fram þá þætti sem
hafa áhrif á starfsgetu og vinna þarf með í
starfsendurhæfingu, velja á milli mismunandi
áherslna í starfsendurhæfingu og meta
starfsgetu þegar endurhæfing telst fullreynd.
Leitað er leiða til að brúa bilið frá ICF kerfinu
yfir í matstæki og finna leiðir til að gera það
einfalt og áhrifaríkt í notkun.
Bókin er 567 blaðsíður, hún skiptist í fjóra
hluta og 25 kafla. Í lok hvers kafla er ítarlegur
heimildalisti ásamt spurningum tengdum efni
kaflans og svörum við þeim.
Í fyrsta hluta bókarinnar (Introduction) er í
meginatriðum fjallað um grunnhugtök í starfs-
endurhæfingu, hugtök tengd mati á skertri
starfsgetu og innbyrðis tengsl þeirra. Grunnur
ICF kerfisins er stuttlega útskýrður og kynnt
eru mismunandi kjarnasöfn. Tvö þeirra eru
kjarnasett fyrir mat á skertri starfsgetu eða
fötlun (disability evaluation) og kjarnasett fyrir
starfsendurhæfingu (vocational rehabilitation).
Í öðrum hluta bókarinnar (State of the Field:
Vocational Rehabilitation and Disability Evalu-
ation) er fjallað um mismunandi áherslur í
starfsendurhæfingu og greiningu á þeim þáttum
sem valda minnkaðri starfsgetu hjá mismun-
andi sjúklingahópum. Ítarlega er fjallað um þá
sem búa við langvinna stoðkerfisverki, heila-
skaða eftir höfuðhögg (traumatic brain injury),
Handbook of Vocational Rehabilitation and Disability Evaluation:
Application and implementation of the ICF
Ragnheiður Jónsdóttir
Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild Sjúkrahúss Akureyrar og matsstjóri fyrir Virk
Bókarýni