Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 24
24 www.virk.is
V
IR
K
Ráðgjafar VIRK
Viðmót og framkoma ráðgjafa
vöktu og vekja hjá mér traust á starfsemi VIRK
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
63%
26%
7%
3% 1%
Mjög
sammála
Sammála ÓsammálaHvorki
sammála né
ósammála
Mjög
ósammála
Að starfa sem ráðgjafi hjá VIRK er fjölbreytt
og krefjandi starf og einstakt tækifæri
til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar á Íslandi.
Ráðgjafar VIRK gegna lykilhlutverki í starfs-
endurhæfingu einstaklinga í þjónustu
VIRK. Ráðgjafar eru nú 48 talsins, flestir á
höfuðborgarsvæðinu en einnig starfa þeir
á tíu starfsstöðum úti á landi.
Gerðar eru þær menntunar- og
hæfniskröfur til ráðgjafa að þeir hafi
háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða
félagsvísinda og víðtæka reynslu á sviði
ráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar.
Ráðgjafastarfið krefst framúrskarandi
samskiptahæfni og þjónustulundar ásamt
sveigjanleika og færni í að tileinka sér nýja
þekkingu og vinnubrögð. Einnig er æskilegt
að ráðgjafi hafi mikla skipulagshæfni, góða
þekkingu á vinnumarkaði, velferðarkerfinu
og því nærsamfélagi sem hann starfar í.
Þegar ráðgjafi hefur störf hjá VIRK
starfsendurhæfingarsjóði eru tilnefndir
sérfræðingar sem handleiða hann mark-
visst fyrstu níu mánuðina í starfi. Þrír
sérfræðingar skipta með sér handleiðslunni
og ber hver sérfræðingur ábyrgð á henni
þrjá mánuði í senn. Eftir þessa níu mán-
uði ákveður sérfræðingateymið hvort
þörf sé á áframhaldandi stuðningi og þá
hvernig. Mikil áhersla er lögð á að nýr
ráðgjafi tileinki sér strax frá byrjun faglegt
verklag og þá hugmyndafræði sem VIRK
byggir á. Gátlisti er því settur fram til að
tryggja samræmda móttöku nýrra ráðgjafa
sem tiltekur þær faglegu áherslur sem
styðja ráðgjafann í að finna fyrir öryggi og
starfsánægju í nýju umhverfi.
VIRK gerir ráðgjöfum sínum kleift að
viðhalda faglegri þekkingu og færni í
umfangsmiklu ábyrgðarstarfi. Í boði
er öflug fræðsludagskrá fyrir ráðgjafa
þar sem þverfaglegt teymi sérfræðinga
hjá VIRK og utanaðkomandi aðilar
koma að kennslu. Miklar kröfur eru
gerðar til þekkingar á ólíkum þáttum s.s.
starfsendurhæfingu, velferðarkerfinu,
vinnumarkaðnum, „Áhugahvetjandi sam-
tali“, þjónustu, gæðamálum, umbóta-
starfi, samskiptahæfni, siðareglum og að
ráðgjafar uppfylli stefnu, gildi og ferla VIRK
ásamt lagalegum kröfum.
Hlutverk og ábyrgð
Ráðgjafi hefur umsjón með málum ein-
staklings í þjónustu og er tengiliður hans
í starfsendurhæfingarferlinu. Markmiðið er
að viðhalda og/eða efla virkni til vinnu og
varðveita vinnusamband einstaklings.
Meginhlutverk ráðgjafa er að þjónusta
einstakling á eftirfarandi hátt:
• Veita stuðning, ráðgjöf og hvatningu
þar sem stuðst er við „Áhugahvetjandi
samtal“ með áherslu á styrkleika
einstaklings.
• Skrá upplýsingar um stöðuna
samkvæmt útgefnum verkferlum í
gæðahandbók VIRK.
• Virða þagnarskyldu og tryggja góða
umgengni við trúnaðargögn.
• Leiðbeina um úrræði með það að
markmiði að einstaklingur verði virkur
á vinnumarkaði.
• Bera ábyrgð á gerð og eftirfylgd
einstaklingsbundinna áætlana í
samstarfi við heilbrigðis- og
velferðarkerfi.
• Eiga samstarf við sérfræðinga
VIRK og utanaðkomandi fagaðila í
starfsendurhæfingu þar sem
markmiðið er að tryggja þverfaglega
nálgun í einstaklingsmálum.
• Vera tengiliður við vinnuveitanda
einstaklings þegar við á sem og
aðra fagaðila.
• Stuðla að samhæfingu í öllu ferlinu
og tryggja gott upplýsingaflæði.
Súluritin hér til hliðar sýna niðurstöður úr
þjónustukönnun sem einstaklingar eru
beðnir að taka þátt í við lok þjónustu.