Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 10
10 www.virk.is
V
IR
K
Þjónustuaðilar í starfs-
endurhæfingu um allt land
Til þess að tryggja fjölbreytta og ein-
staklingsmiðaða þjónustu kaupir VIRK
þjónustu af fagfólki um allt land. Fjöldi
þjónustuaðila sem eru í samstarfi við VIRK
um starfsendurhæfingarúrræði er nú tæp-
lega 700. Þar af eru 118 sjálfstætt starfandi
sálfræðingar sem veita einstaklingum með
geðrænan vanda bæði einstaklingsviðtöl
sem og fjölbreyttar hópmeðferðir.
Þá starfa einnig með VIRK rúmlega 200
sjúkraþjálfarar sem veita einstaklings-
þjónustu og hópúrræði fyrir einstaklinga
með stoðkerfisraskanir. Einnig hefur færst
í aukana að fagaðilar, s.s. sálfræðingar og
sjúkraþjálfarar, þrói saman úrræði sem
taka mið af aðstæðum þeirra einstaklinga
sem eru í þjónustu á vegum VIRK.
Lögð er rík áhersla á að aðlaga menntun og
starfsreynslu einstaklings að störfum sem
eru í boði á vinnumarkaði. Einnig er skoðað
hvernig hægt sé að byggja ofan á þekkingu
sem er til staðar eða hvort starfstengd
námsúrræði geti aukið starfsmöguleikana.
Um 90 símenntunaraðilar veita náms-
úrræði með það að markmiði að auka
möguleika á vinnumarkaði.
Rúmlega 80 þjónustuaðilar veita þjónustu
sem flokkast sem heilsueflandi úrræði.
Undir þann flokk fellur m.a. líkamsrækt
með stuðningi íþróttafræðings, vatns-
leikfimi og ýmis hópúrræði á vegum fag-
aðila. Lögð er rík áhersla á að fagfólk vinni
að því að gera einstakling ábyrgan fyrir
eigin hreyfingu.
Fjöldi þjónustuaðila veitir atvinnutengd úrr-
æði og má þar helst nefna vinnuprófanir,
úttekt og ráðgjöf á vinnustað við endur-
komu til vinnu sem og undirbúning fyrir
atvinnuleit.
VIRK er með samning við átta starfs-
endurhæfingarstöðvar en það er liður í því
að tryggja að til staðar sé fagleg þekking og
reynsla á sviði starfsendurhæfingar á öllu
landinu. Á starfsendurhæfingarstöðvun-
um er boðið upp á heildstæð einstaklings-
bundin úrræði sem mæta þörfum ein-
staklinga í samræmi við matsferil VIRK.
Kaup VIRK á þjónustu fagaðila hafa aukist
mikið á undanförnum árum og á árinu
2014 námu þau um 920 milljónum króna
og voru stærsti útgjaldaliður VIRK á því
ári. Mynd 6 sýnir þróun útgjalda vegna
aðkeyptrar þjónustu fagaðila frá árinu
2010 og mynd 7 sýnir skiptingu útgjalda
milli mismunandi tegunda af úrræðum á
árinu 2014.
Samstarf við ýmsa fagaðila
innan velferðarkerfisins
VIRK hefur unnið markvisst að því að
byggja upp samstarf við aðrar stofnanir
innan velferðarkerfisins. Þessi samvinna
hefur skilað góðum árangri á mörgum
sviðum og hefur orðið til þess að margir
einstaklingar sem glíma við mjög flókinn
og þungan vanda hafa fengið markvissari
og betri þjónustu en áður. Þetta er þáttur
í því að byggja upp heildarkerfi þar
sem þjónusta mismunandi aðila innan
velferðarkerfisins er samræmd og hefur
það að markmiði að koma einstaklingum
til virkrar þátttöku á vinnumarkaði.
VIRK gegnir í dag mikilvægu hlutverki
innan velferðarkerfisins og hefur lagt mikið
afl í að samþætta þjónustu atvinnutengdrar
starfsendurhæfingar við þjónustu annarra
Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu
frá fagaðilum um allt land
2010-2014
1.000.000.000
900.000.000
800.000.000
700.000.000
600.000.000
500.000.000
400.000.000
300.000.000
200.000.000
100.000.000
0
Árið 2010 Árið 2011 Árið 2012 Árið 2013 Árið 2014
Mynd 6
Kr
Mynd 7
Skipting útgjalda á árinu 2014
vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum
Sérhæfð
starfsendurhæfingarúrræði
Nám og námskeið
Annað
Sálfræðiþjónusta
Sjúkraþjálfun
Heilsuefling / líkamsrækt61%17%
7%
5%
6%
4%