Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 31
31www.virk.is
VIÐTAL
Reiðin varð keppnisskap
Mér hefur einnig verið það sár vissa að
keppnisskapið mitt kom til af innibyrgðri
reiði. En á hinn bóginn hefði þetta getað
farið ver, svo sannarlega. Ég tók í sjálfu sér
góða ákvörðun þar sem strákur. Ég fór ekki
í óreglu sem unglingur. Það gerðist síðar
en á því hef ég líka tekið. Ég sagði við föður
minn fyrir nokkrum árum: „Ég er hættur að
drekka.“ Og hef staðið við það. Ég drakk til
að deyfa sársauka en ég ákvað að hætta
því og vinna á sársaukanum á annan og
uppbyggilegri hátt. Og mér tókst það.
Svo fjölmargt hefur breyst við alla þá
sjálfsvinnu sem ég hef innt af hendi og
vegna þeirrar aðstoðar sem ég hef fengið,
meðal annars fyrir tilstilli VIRK.
Segja má að ég hafi löngum verið sjálfum
mér harður húsbóndi. Ég gerði meiri kröfur
á mig heldur en umhverfi mitt og loks gat ég
ekki staðið undir þeim. Ég tók að mér fleiri
verkefni en möguleiki var á að sinna og átti
til að vaka sólarhringum saman til að ljúka
þeim. Þetta hafði ekki góð áhrif á andlega
heilsu mína. Ég kunni ekki að setja sjálfum
mér eða öðrum mörk. Aldurinn færðist yfir
mig og loks gat ég ekki meira, þá var það
sem ég „brann út“ um tíma.
Svona gekk þetta, dálítið upp og niður þar
til árið 2011 að ég gat alls ekki meira. Þegar
ég var orðinn mjög þreyttur helltist yfir
þunglyndi sem án efa á rætur í misnotkun
þeirri sem ég varð fyrir sem barn og
unglingur. Lengi vel afneitaði ég þessari
reynslu. Og sennilega hefur það verið
bjargráð hugans á þeim tíma. En árið 2011
kom að því að ég tók ákvörðun um að gera
eitthvað verulegt í þessum málum.
Fékk erfið þunglyndisköst
Lengi vel fékk ég erfið þunglyndisköst
en eftir að ég hóf að vinna úr reynslu
minni hefur þunglyndið verið auðveldara
viðfangs, ég kann núna að vinna úr því og
er fljótur að finna einkennin og bregðast við.
Ég segi stundum: Fortíðin var þunglyndið,
framtíðin er kvíðinn. Þá er lítið pláss fyrir
líðandi stund. Nú hefur orðið breyting á. Vil
gera hlutina mjög vel, hef ljósmyndaminni
og stundum hefur verið sagt við mig að ég
hafi einhverfueinkenni.
Í framhaldi af slíkum athugasemdum
ákvað ég að leita eftir greiningu hjá lækni.
Í ljós kom að ég er haldinn ofvirkni og
athyglisbresti. Þetta kann að hljóma sem
ókostir en þessu má líka snúa upp í kosti.
Ég hef komið miklu í verk. En ég hef með
aðstoð, meðal annars frá ráðgjöfum frá
VIRK, sálfræðingi og geðlækni sem ég
komst í samband við, komist að raun um
að ég þarf að setja sjálfum mér ramma og
halda mig innan hans. Vandræði mín hafa
oft verið þau að ég tek allt of mikið að mér
og fæ svo verkkvíða og í framhaldi af því
frestunaráráttu. Síðan komu alltof miklar
vinnutarnir. Þetta leiðir eðlilega til þess að
fólk brennur út. Ég vil ekki vera svona, ég
vil vera „venjulegur“ og hef þess vegna
sett mér rammann.
Hef alltaf risið upp aftur
Misnotkunin hefur verið mér sár en ég veit
ekki hvernig líf mitt hefði orðið hefði ég
ekki orðið fyrir henni. Það er erfitt að tala í
viðtengingarhætti. Ég hef oft gefist upp um
tíma en alltaf risið upp aftur. Það eru góðu
fréttirnar. Ég hef marga góða eiginleika
sem ég met æ meira. Ég veit líka núna að
ég er ekki sá eini í heiminum sem hefur
liðið illa vegna reynslu minnar.
Ég sagði foreldrum mínum árið 2000
fyrst frá misnotkuninni sem ég varð fyrir
á vettvangi trúfélags sem barn og frá
misnotkun sem ég nokkru síðar varð fyrir
af hendi golfkennara. Stundum hef ég verið
reiður við þau fyrir að passa mig ekki betur.
En jafnframt veit ég að þau gátu það ekki.
Þau eru bestu foreldrar sem hægt er að
hugsa sér. Þöggunin var líka mikil á þessum
tíma. Ég er fæddur 1958 og þegar ég var
að alast upp var svona hlutum tekið með
mikilli tortryggni, jafnvel þótt maður reyndi
að segja frá. Ég átti líka í höggi við menn
sem voru í yfirburðastöðu gagnvart mér.
Hjá VIRK komst ég strax í samband við
mjög góðan ráðgjafa og í framhaldi af því
var mér vísað á námskeið og einnig hafði
ég frumkvæði sjálfur í þeim efnum. Ég fór
á batanámskeið hjá Guðfinnu Eydal sem
gerði mér gott. Einnig fór ég í líkamsrækt
hjá Heilsuborg í fyrravetur. Í janúar í fyrra
varð svo vendipunktur í mínum málum.
Þá var mér beint af VIRK á námskeið
til Profectus. Þar hitti ég ráðgjafa sem
las mig gjörsamlega og hjálpaði mér
gríðarlega mikið. Ég hafði haft litla trú á
sjálfum mér en þarna hitti ég mann sem
sagði fallega hluti við mig og stoppaði mig
af, sagði mér að loka, hætta að vinna í
misnotkunarmálunum. Ég hafði skrifað
greinar og ýmislegt annað gerði ég. En
þetta var í raun búið að skila mér því
sem mögulegt var. Þetta sá ráðgjafinn hjá
Profectus. Ég fór að sinna sjálfum mér
meira og það leiddi til góðs. Allt breyttist
til hins betra.
Er nú eigin húsbóndi
Mér var líka kennt að taka mér öðru hvoru
frí frá erfiðum uppgjörsmálum. Einu sinni
var sagt við mig hjá Stígamótum: „Nú ferð
þú í jólafrí Guðni.“ Það er ótrúlega gott að
hvíla sig á stöðugum hugsunum um erfið
úrlausnarefni. Þetta er gott ráð.
Núna líður mér vel innra með mér. Ég
ætlaði að taka fjögur ár, heilt kjörtímabil,
til að vinna í mínum málum. En það tók
skemmri tíma að ná árangri en ég bjóst við.
Sálfræðitímarnir á vegum VIRK og tímarnir
hjá geðlækninum vegna ofvirkninnar og
athyglisbrestsins hafa skilað mér miklu.
Ég hef fengið góð ráð sem ég gríp til þegar
ég þarf. Ramminn er svo afskaplega
mikilvægur. Ég hef gert mér ljóst að ég á
aðeins eitt líf, ég er minn eigin fjársjóður og
þarf að halda vel utan um hann.
Nú er ég eigin húsbóndi á vinnumarkað-
inum, vinn við ráðgjafastörf í sambandi við
endurbætur á byggingum og sem dóms-
kvaddur matsmaður. Ég er með starfsmann
í hlutastarfi og þetta gengur vel.
Ég er lánssamur maður og er hægt og
rólega að nálgast drauma drauma minna.
Ég er sáttur við stöðu mína eins og hún er
og mér hefur tekist að skapa mér gott líf,
þar hefur margt komið til, meðal annars
gott samstarf við VIRK.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
„Ég hef fengið góð ráð sem
ég gríp til þegar ég þarf.
Ramminn er svo afskap-
lega mikilvægur.“