Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Side 31

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Side 31
31www.virk.is VIÐTAL Reiðin varð keppnisskap Mér hefur einnig verið það sár vissa að keppnisskapið mitt kom til af innibyrgðri reiði. En á hinn bóginn hefði þetta getað farið ver, svo sannarlega. Ég tók í sjálfu sér góða ákvörðun þar sem strákur. Ég fór ekki í óreglu sem unglingur. Það gerðist síðar en á því hef ég líka tekið. Ég sagði við föður minn fyrir nokkrum árum: „Ég er hættur að drekka.“ Og hef staðið við það. Ég drakk til að deyfa sársauka en ég ákvað að hætta því og vinna á sársaukanum á annan og uppbyggilegri hátt. Og mér tókst það. Svo fjölmargt hefur breyst við alla þá sjálfsvinnu sem ég hef innt af hendi og vegna þeirrar aðstoðar sem ég hef fengið, meðal annars fyrir tilstilli VIRK. Segja má að ég hafi löngum verið sjálfum mér harður húsbóndi. Ég gerði meiri kröfur á mig heldur en umhverfi mitt og loks gat ég ekki staðið undir þeim. Ég tók að mér fleiri verkefni en möguleiki var á að sinna og átti til að vaka sólarhringum saman til að ljúka þeim. Þetta hafði ekki góð áhrif á andlega heilsu mína. Ég kunni ekki að setja sjálfum mér eða öðrum mörk. Aldurinn færðist yfir mig og loks gat ég ekki meira, þá var það sem ég „brann út“ um tíma. Svona gekk þetta, dálítið upp og niður þar til árið 2011 að ég gat alls ekki meira. Þegar ég var orðinn mjög þreyttur helltist yfir þunglyndi sem án efa á rætur í misnotkun þeirri sem ég varð fyrir sem barn og unglingur. Lengi vel afneitaði ég þessari reynslu. Og sennilega hefur það verið bjargráð hugans á þeim tíma. En árið 2011 kom að því að ég tók ákvörðun um að gera eitthvað verulegt í þessum málum. Fékk erfið þunglyndisköst Lengi vel fékk ég erfið þunglyndisköst en eftir að ég hóf að vinna úr reynslu minni hefur þunglyndið verið auðveldara viðfangs, ég kann núna að vinna úr því og er fljótur að finna einkennin og bregðast við. Ég segi stundum: Fortíðin var þunglyndið, framtíðin er kvíðinn. Þá er lítið pláss fyrir líðandi stund. Nú hefur orðið breyting á. Vil gera hlutina mjög vel, hef ljósmyndaminni og stundum hefur verið sagt við mig að ég hafi einhverfueinkenni. Í framhaldi af slíkum athugasemdum ákvað ég að leita eftir greiningu hjá lækni. Í ljós kom að ég er haldinn ofvirkni og athyglisbresti. Þetta kann að hljóma sem ókostir en þessu má líka snúa upp í kosti. Ég hef komið miklu í verk. En ég hef með aðstoð, meðal annars frá ráðgjöfum frá VIRK, sálfræðingi og geðlækni sem ég komst í samband við, komist að raun um að ég þarf að setja sjálfum mér ramma og halda mig innan hans. Vandræði mín hafa oft verið þau að ég tek allt of mikið að mér og fæ svo verkkvíða og í framhaldi af því frestunaráráttu. Síðan komu alltof miklar vinnutarnir. Þetta leiðir eðlilega til þess að fólk brennur út. Ég vil ekki vera svona, ég vil vera „venjulegur“ og hef þess vegna sett mér rammann. Hef alltaf risið upp aftur Misnotkunin hefur verið mér sár en ég veit ekki hvernig líf mitt hefði orðið hefði ég ekki orðið fyrir henni. Það er erfitt að tala í viðtengingarhætti. Ég hef oft gefist upp um tíma en alltaf risið upp aftur. Það eru góðu fréttirnar. Ég hef marga góða eiginleika sem ég met æ meira. Ég veit líka núna að ég er ekki sá eini í heiminum sem hefur liðið illa vegna reynslu minnar. Ég sagði foreldrum mínum árið 2000 fyrst frá misnotkuninni sem ég varð fyrir á vettvangi trúfélags sem barn og frá misnotkun sem ég nokkru síðar varð fyrir af hendi golfkennara. Stundum hef ég verið reiður við þau fyrir að passa mig ekki betur. En jafnframt veit ég að þau gátu það ekki. Þau eru bestu foreldrar sem hægt er að hugsa sér. Þöggunin var líka mikil á þessum tíma. Ég er fæddur 1958 og þegar ég var að alast upp var svona hlutum tekið með mikilli tortryggni, jafnvel þótt maður reyndi að segja frá. Ég átti líka í höggi við menn sem voru í yfirburðastöðu gagnvart mér. Hjá VIRK komst ég strax í samband við mjög góðan ráðgjafa og í framhaldi af því var mér vísað á námskeið og einnig hafði ég frumkvæði sjálfur í þeim efnum. Ég fór á batanámskeið hjá Guðfinnu Eydal sem gerði mér gott. Einnig fór ég í líkamsrækt hjá Heilsuborg í fyrravetur. Í janúar í fyrra varð svo vendipunktur í mínum málum. Þá var mér beint af VIRK á námskeið til Profectus. Þar hitti ég ráðgjafa sem las mig gjörsamlega og hjálpaði mér gríðarlega mikið. Ég hafði haft litla trú á sjálfum mér en þarna hitti ég mann sem sagði fallega hluti við mig og stoppaði mig af, sagði mér að loka, hætta að vinna í misnotkunarmálunum. Ég hafði skrifað greinar og ýmislegt annað gerði ég. En þetta var í raun búið að skila mér því sem mögulegt var. Þetta sá ráðgjafinn hjá Profectus. Ég fór að sinna sjálfum mér meira og það leiddi til góðs. Allt breyttist til hins betra. Er nú eigin húsbóndi Mér var líka kennt að taka mér öðru hvoru frí frá erfiðum uppgjörsmálum. Einu sinni var sagt við mig hjá Stígamótum: „Nú ferð þú í jólafrí Guðni.“ Það er ótrúlega gott að hvíla sig á stöðugum hugsunum um erfið úrlausnarefni. Þetta er gott ráð. Núna líður mér vel innra með mér. Ég ætlaði að taka fjögur ár, heilt kjörtímabil, til að vinna í mínum málum. En það tók skemmri tíma að ná árangri en ég bjóst við. Sálfræðitímarnir á vegum VIRK og tímarnir hjá geðlækninum vegna ofvirkninnar og athyglisbrestsins hafa skilað mér miklu. Ég hef fengið góð ráð sem ég gríp til þegar ég þarf. Ramminn er svo afskaplega mikilvægur. Ég hef gert mér ljóst að ég á aðeins eitt líf, ég er minn eigin fjársjóður og þarf að halda vel utan um hann. Nú er ég eigin húsbóndi á vinnumarkað- inum, vinn við ráðgjafastörf í sambandi við endurbætur á byggingum og sem dóms- kvaddur matsmaður. Ég er með starfsmann í hlutastarfi og þetta gengur vel. Ég er lánssamur maður og er hægt og rólega að nálgast drauma drauma minna. Ég er sáttur við stöðu mína eins og hún er og mér hefur tekist að skapa mér gott líf, þar hefur margt komið til, meðal annars gott samstarf við VIRK.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir „Ég hef fengið góð ráð sem ég gríp til þegar ég þarf. Ramminn er svo afskap- lega mikilvægur.“

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.