Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 9
9www.virk.is
VIRK
Þverfagleg matsteymi
Þverfagleg matsteymi starfa á vegum VIRK
og koma um 45 sérfræðingar að þeim.
Flestir þessara sérfræðinga eru staðsettir
á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru til
staðar sérfræðingar á Akureyri, Austurlandi
og Reykjanesi. Um er að ræða lækna,
sálfræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa
og félagsráðgjafa. Þessir sérfræðingar
starfa fyrir VIRK sem sjálfstætt starfandi
sérfræðingar samkvæmt sérstökum
samningum og vinnuframlag þeirra er
mismunandi mikið. Flestir þeirra sinna
einnig öðrum störfum, annað hvort sem
sjálfstætt starfandi sérfræðingar eða hjá
öðrum aðilum.
Hlutverk þessara aðila er mismunandi eftir
sérhæfingu og teymum. Matsteymin hjá
VIRK gegna eftirfarandi hlutverkum:
• Raunhæfimat starfsendurhæfingar.
Læknir og eftir aðstæðum sjúkraþjálfari
og sálfræðingur koma að raunhæfimati
starfsendurhæfingar. Þar er metið hvort
starfsendurhæfing sé raunhæf og muni
skila árangri fyrir einstaklinginn út frá
stöðu hans.
• Þverfagleg rýni. Öll mál einstaklinga
hjá VIRK eru rýnd af þverfaglegum
teymum sem samanstanda af læknum,
sjúkraþjálfurum og sálfræðingum auk
ráðgjafans í hverju tilfelli fyrir sig.
Þessi teymi aðstoða ráðgjafa við að
byggja upp árangursríka endur-
hæfingaráætlun í takt við þarfir hvers
og eins einstaklings. Slík þverfagleg
aðkoma að málum er studd af rann-
sóknum á sviði starfsendurhæfingar.
Frá síðasta hausti hefur það verið
markmið VIRK að rýna öll mál
sem eru í starfsendurhæfingarferli
á þriggja mánaða fresti. Tilgangur þess
er að tryggja markvissa upplýsingaöflun,
markmiðasetningu og úrræðakaup strax
í upphafi ferils einstaklings hjá VIRK og
síðan á þriggja mánaða fresti á meðan
á þjónustunni stendur.
• Sérhæft mat. Þegar mál einstaklinga
eru flókin, töluverð endurhæfing hefur
átt sér stað, langur tími er liðinn frá því
að einstaklingur var á vinnumarkaði
og/eða lítill framgangur er í starfsendur-
hæfingu er vísað í sérhæft mat. Sérhæft
mat er þverfaglegt endurhæfingarmat
og markmið þess er að fá mat sérfræð-
inga á starfsendurhæfingarmöguleikum
einstaklingsins svo unnt sé á mark-
vissan máta að vinna að árangursríkri
starfsendurhæfingaráætlun. Í sérhæfðu
mati hittir einstaklingur viðkomandi
sérfræðinga sem geta þá verið læknir,
sálfræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi
og félagsráðgjafi allt eftir aðstæðum og
þörfum viðkomandi einstaklings.
• Starfsgetumat. Fer fram ef áætlun úr
sérhæfðu mati er lokið og ekki hefur
náðst sá árangur sem vænst var.
Forsenda fyrir formlegu starfsgetumati
er einnig að einstaklingur treysti sér
ekki í fullt starf/fyrra starfshlutfall þrátt
fyrir að búið sé að reyna markvissa
starfsendurhæfingu. Í starfsgetumati
er eftirfarandi spurningum svarað:
Er starfsendurhæfing fullreynd?
Hver er starfsgetan?
Á mynd 4 má sjá hvernig starfsemi þessara
þverfaglegu matsteyma hjá VIRK tengist
starfsendurhæfingarferlinu.
Starfsemi þverfaglegra matsteyma hjá
VIRK hefur eflst mikið á undanförnum
tveimur árum samhliða aukinni áherslu
á þverfaglega þjónustu og markvissara
ferli í starfsendurhæfingu. Þetta má sjá á
mynd 5 sem inniheldur upplýsingar um
heildarfjölda raunhæfimata, sérhæfðra
mata og starfsgetumata frá janúar 2013 til
og með febrúar 2015.
Mynd 5 2013 2014 2015
50
73
177
145
62
26
49
73
60
77
85
104
41
99
36
88
71
82
65
139
86
162
85
132
53
120
Janúar Mars Maí Júlí September Nóvember DesemberFebrúar Apríl Júní Ágúst Október
Heildarfjöldi raunhæfimata, sérhæfðra mata og starfsgetumata í hverjum mánuði
frá janúar 2013 til febrúar 2015
200
100
160
140
120
100
80
60
40
20
0