Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 11

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 11
11www.virk.is VIRK stofnana. Áhersla er alltaf lögð á það að finna einstaklingum réttan farveg í góðu samstarfi við aðra fagaðila innan kerfisins. Samstarf við lífeyrissjóði Markviss uppbygging hefur átt sér stað á samstarfi milli VIRK og lífeyrissjóða um allt land. VIRK er í nánu samstarfi við marga af stærstu lífeyrissjóðum landsins þar sem sérfræðingar VIRK fara yfir allar umsóknir um örorkulífeyri og bjóða einstaklingum upp á starfsendurhæfingarþjónustu ef metið er að hún sé raunhæf og muni skila árangri fyrir viðkomandi einstakling. Þetta verklag hefur reynst vel og stefnt er að því að bjóða lífeyrissjóðum um allt land upp á svipaða þjónustu. Tilvísunum frá trúnaðarlæknum lífeyrissjóðanna til VIRK hefur fjölgað á undanförnum árum og eins er það algengara nú en áður að einstaklingar séu komnir í þjónustu VIRK áður en þeir sækja um örorkulífeyri. Gæði og öryggi Hjá VIRK er lögð áhersla á að vinna fag- lega og tryggja öryggi upplýsinga og gagna. VIRK hefur sett sér það markmið að fá vottun á starfsemi sinni samkvæmt alþjóðlegum gæðastjórnunarstaðli IST EN ISO 9001 fyrir lok árs 2015. Tilgangur ISO 9001 vottunarinnar er m.a. að tryggja öguð vinnubrögð þar sem stjórnendur og starfsfólk, ráðgjafar og aðrir samstarfsaðilar VIRK þekkja ábyrgð sína, hlutverk og þær kröfur sem gerðar eru óháð starfssvæðum og vinna eftir því. Vottunin krefst stýringar á þessu verklagi með rekjanleika, árangursmælingum, reglulegum úttektum og endurskoðun á verklagi, úrvinnslu ábendinga og um- bótum þar sem þörf er á. Útgáfustýrt verklag hefur margskonar ávinning í för með sér bæði fyrir VIRK og þjóðfélagið í heild, m.a. auðveldar það alla þjálfun starfsfólks, ráðgjafa og samstarfsaðila VIRK, minnkar líkur á mis- tökum, auðveldar þróun þjónustunnar og bætir yfirsýn. VIRK er á mörgum sviðum þegar farið að vinna samkvæmt kröfum ISO 9001. Með gæða- og öryggisstjórnun er VIRK að starfa eftir faglegum og viðurkenndum stöðluðum vinnubrögðum. Kynning á þjónustu VIRK VIRK vinnur í samstarfi við stéttarfélög og sjúkrasjóði stéttarfélaga um allt land þar sem einstaklingar fá kynningu á starfsemi VIRK. Læknar eru einnig að verða meira meðvitaðir um þjónustuna. Margar ábendingar hafa hins vegar borist um það á undanförnum árum að almenningur viti ekki nægilega mikið um tilvist og þjónustu VIRK og því var ákveðið að fara af stað með kynningarátak í febrúar á þessu ári. Markmiðið með átakinu var að koma starfsemi VIRK á framfæri við almenning á jákvæðan hátt til að tryggja það að einstaklingar viti að þessi þjónusta er til staðar og að atvinnurekendur sjái þjónustuþega VIRK í jákvæðu ljósi til að auka möguleika einstaklinga á vinnumarkaði í kjölfar starfsendurhæfingar. Viðbrögð við átakinu hafa verið jákvæð. Tekin voru viðtöl við einstaklinga sem hafa lokið þjónustu hjá VIRK og gefin mynd af stöðu þeirra fyrir og eftir þjónustu. Fjöldi einstaklinga í þjónustu Í töflu 1 koma fram upplýsingar um fjölda einstaklinga sem hafa komið til VIRK frá upphafi og til loka árs 2014. Jafn- framt er þar að finna upplýsingar um fjölda einstaklinga í þjónustu um síðustu áramót. Aðsókn að þjónustu VIRK hefur aukist ár frá ári og á síðasta ári komu tæplega 1800 einstaklingar inn í þjónustu VIRK. Mynd 8 sýnir fjölda nýrra þjónustuþega á hverju ári frá árinu 2010. Frá árinu 2012 hefur orðið mikil aukning og fyrir því eru margþættar ástæður. Þar á meðal setning laga nr. 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu sem tryggði öllum einstaklingum rétt til þjónustunnar að uppfylltum ákveðnum faglegum skilyrðum. Mikil fjölgun hefur einnig orðið meðal einstaklinga sem hafa verið lengi frá vinnumarkaði og glíma við fjölþættan vanda. Gera má ráð fyrir að hér séum við m.a. að takast á við afleiðingar kreppunnar, þar sem mun stærri hópar en áður hafa verið án atvinnu í nokkur ár. Heildarfjöldi sem hefur leitað til VIRK 7.642 Fjöldi í reglulegum viðtölum eða eftirfylgni 2.285 Fjöldi sem hefur lokið þjónustu (útskrifast) 3.765 Fjöldi sem hefur hætt þjónustu 1.592 Tafla 1 Fjöldi einstaklinga m.v. 31. desember 2014 Fjöldi nýrra einstaklinga 2010-2014 Mynd 8 2000 1500 1000 500 0 Árið 2010 Árið 2011 Árið 2012 Árið 2013 Árið 2014 Fjöldi 1.155 1.304 1.236 1.639 1.782
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.