Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 18
18 www.virk.is
V
IR
K
VIRK hefur fengið ráðgjafafyrirtækið
Talnakönnun til að leggja sjálfstætt mat á
ávinning af starfseminni á árunum 2013
og 2014 út frá ópersónugreinanlegum
upplýsingum um einstaklinga sem skráðar
eru af ráðgjöfum í gagnagrunn VIRK. Þessar
upplýsingar eru svo settar í samhengi við
útgjöld VIRK á hverju ári fyrir sig. Skoðuð
er framfærslustaða einstaklinga við lok
þjónustu hjá VIRK á þessum árum og
ýmsar lýðfræðilegar breytur sem skráðar
hafa verið í gagnagrunn VIRK. Þessar
upplýsingar eru síðan settar í samhengi
við upplýsingar um laun mismunandi
starfsgreina og bótafjárhæðir hjá TR og
lífeyrissjóðum.
Til að gera þetta þarf Talnakönnun að gefa
sér tilteknar forsendur þar sem ekki er
vitað hvað hefði orðið um einstaklinga sem
ljúka þjónustu hjá VIRK ef þjónustan hefði
ekki verið til staðar. Sumir hefðu getað náð
árangri upp á eigin spýtur á meðan aðrir
hefðu hugsanlega hlotið varanlega örorku.
Til að nálgast þetta gaf Talnakönnun sér
eftirfarandi forsendur:
• Ef einstaklingur er á örorkulífeyri hjá
lífeyrissjóðum eða TR við komu til VIRK
og útskrifast á vinnumarkað er reiknað
með að einstaklingurinn hefði farið á
varanlega örorku án aðkomu VIRK.
Þetta er í takt við þá staðreynd að mjög
fáir einstaklingar á örorkulífeyri fara aftur
á vinnumarkað.
• Ef einstaklingur er á endurhæfingarlíf-
eyri hjá TR við komu til VIRK og
útskrifast á vinnumarkað er reiknað
með að helmingur þeirra hefði farið á
örorku út starfsævina. Þetta er í
samræmi við þær tölur sem hafa komið
frá TR en þær sýna að um helmingur
þeirra sem fer á endurhæfingarlífeyri
endar á örorkulífeyri. Reiknað er með
að hinn helmingurinn hefði komist á
vinnumarkað eftir 60 mánuði.
• Reiknað er með að aðrir en þeir
sem útskrifuðust á endurhæfingar- og
örorkulífeyri hefðu verið óvinnufærir í
fimm ár ef þeir hefðu ekki notið
þjónustu VIRK en enginn hefði farið á
varanlega örorku. Frá þessum fimm
árum (60 mánuðum) dragast síðan
mánuðir í starfsendurhæfingu. Þetta er
mjög varfærin forsenda. Ekki er gert ráð
fyrir varanlegri örorku hjá neinum, en
hún kostar samfélagið mjög mikið.
Út frá þessum forsendum var niðurstaða
fyrir hvern og einn reiknuð út og þannig
fundin heildartala fyrir þá sem fara í launaða
vinnu. Niðurstaða þessara útreikninga
gefur um 9,7 milljarða króna í ávinning á
árinu 2013 og 11,2 milljarða króna á árinu
2014. Ábatinn af starfseminni skilar sér
bæði til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða
og ríkisins í formi aukinna skatttekna
og til einstaklinganna sem um ræðir.
Þessar stærðir eru settar í samhengi við
rekstrarkostnað VIRK á þessum árum á
mynd 18.
Það er auðvitað ekki einfalt að finna
einhlítan mælikvarða á árangur VIRK
en mikilvægt er að skoðaðar séu sömu
kennitölur á hverju ári og að aðferðin byggi
á skynsamlegri nálgun. Þessi nálgun
Talnakönnunar byggir á fremur varfærnum
forsendum og jafnvel þó forsendum
sé talsvert hnikað til þá er niðurstaða
Talnakönnunar sú að starfsemi VIRK sé
mjög arðbær.
Árangursrík starfsendurhæfing er þannig
ein af allra arðbærustu fjárfestingunum í
okkar samfélagi og því mikilvægt að standa
vörð um uppbyggingu hennar til framtíðar.
Um leið er mikilvægt að aðrir aðilar
velferðarkerfisins og innan atvinnulífsins
styðji við þessa fjárfestingu með því að
hvetja einstaklinga til sjálfshjálpar og
leggja áherslu á mikilvægi þátttöku á
vinnumarkaði á öllum þjónustustigum.
Þetta á bæði við um þá sem bera ábyrgð
á framfærslu einstaklinga í veikindum
og einnig fagaðila innan félags- og
heilbrigðiskerfisins. Það þarf að vera til
staðar skýr sýn og stefna sem tryggir að
mismunandi aðilar velferðarkerfisins vinni
saman að þessu markmiði.
Rekstrarkostnaður og ávinningur af starfi VIRK árin 2013 og 2014
í milljörðum króna
Mynd 18
Milljarðar kr
12
10
8
6
4
2
0
1,3
9,7
11,2
2,0
2013 2014
Rekstrarkostnaður VIRK Metinn ávinningur af starfsemi VIRK
Ár