Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Síða 30
30 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
V
IÐ
TA
L
Ég var útbrunninn, það var aðdragandi þess að ég leitaði til
VIRK,“ segir Guðni Örn Jónsson húsasmíðameistari og bygg-
ingartæknifræðingur. Ég hitti hann á heimili hans, þar sem hann
hefur í krafti þekkingar sinnar og færni breytt óinnréttuðum
kjallara í fallega og frumlega íbúð.
Efri hæðir hússins eru nú að fá nauðsynlega
andlitslyftingu og viðgerðir. Segja má að
þetta ferli hússins sé sambærilegt við það
mikla starf sem Guðni Örn hefur unnið
með erfiða reynslu sem hann hefur af
hugrekki og þrautseigju tekist á við til að
bæta líf sitt. Nú síðasta ár með ríkulegu
samstarfi við VIRK.
„Ég byrjaði á grunninum og hef svo
unnið mig hægt og rólega upp úr
vanlíðan. Ég gekk á eigin fjármuni og
fékk endurhæfingarlífeyri hjá Tækni-
fræðingafélaginu og Lífeyrissjóði verk-
fræðinga til þess að geta af alhug beitt mér
í því mikla ferli sem við tók þegar ég ákvað
að hætta að byrgja sára reynslu inni. Ég
var sem barn og unglingur misnotaður
af eldri mönnum sem ég treysti vel. Þeir
nýttu aðstæður og yfirburði til þess að
gera mér þetta. Það kostaði mig mikið
sálarstríð að fara út í að opna þetta mál.
Ég leitaði til Stígamóta og Drekaslóðar og
vann þar í hópastarfi og fékk einkasamtöl.
Allt þetta var mikil hjálp,“ segir Guðni Örn
Jónsson.
við tók er Guðni tók að gera upp við hina
erfiðu reynslu úr fortíðinni. „Ég ólst upp
hjá góðum foreldrum og systkinum en allt
breyttist þegar misnotkunin hófst. Ég sagði
engum frá því sem gerst hafði. Beindi
reiði minni yfir í keppnisskap. Tók þátt í
íþróttum og fékk þar mikla útrás. Ég varð
ekki læs fyrr en ég var tólf ára gamall. En
þá breyttist margt. Einkunnir mínar tóku
beinlínis heljarstökk upp á við. Ég hafði
náð tökum á lestrartækni, hafði gaman af
að læra og nýtti mér það tækifæri vel. Ég
varð húsasmíðameistari og síðar byggingar-
tæknifræðingur og starfaði lengi hjá virtri
verkfræðistofu. Þar hætti ég samkvæmt
samkomulagi til að vinna í mínum málum.
Annað var ekki hægt, mér leið orðið svo
illa. Sjálfsmynd mín hafði raskast verulega
við misnotkunina og það var afskaplega
erfitt þegar mér varð ljóst að ég gat ekki
treyst fólki á eðlilegan hátt. Ég hafði vegna
reynslu minnar ranga mynd af trausti. Það
var verulega sárt að uppgötva þetta, það
er ekki langt síðan ég gerði það. En þessi
uppgötvun hefur samt hjálpað mér, ég er
að vinna í því að leiðrétta þessa skekkju. Ég
hef stundum ekki einu sinni getað treyst
sjálfum mér, – en þetta er allt að koma.
Ég er
minn eigin
fjársjóður
Guðni Örn Jónsson húsasmíðameistari
Hann sýnir mér stóra möppu þar sem hann
hefur skráð ýmsar hugsanir sem farið hafa
í gegnum huga hans í bataferlinu. Þar má
sjá bæði bréf og frásagnir sem tengjast
uppgjöri hans við liðinn tíma. Sem og sýnir
hann mér dagbók þar sem hann færir inn
líðan sína dag frá degi.
„Bataferlið tók langan tíma. Hófst í mínum
huga fyrir alvöru árið 2011, en ég var farinn
að reyna að losna miklu fyrr og með hléum
allt fram á þennan dag. Heimilislæknirinn
minn hefur verið stoð og stytta og árið
2006 fór ég í Hveragerði, það gerði mér
gott,“ segir hann. Árið 2002 skildu Guðni
og eiginkona hans til tuttugu ára og það
gerðist ekki átakalaust sem eðlilegt má
teljast.
Sjálfsmyndin raskaðist
„Við giftumst ung og vorum dugleg,
komum okkur upp íbúð og eignuðumst
þrjú börn, en smám saman var ekki lengur
forsenda fyrir þessu hjónabandi. Um tíma
komu upp verulegar deilur, en ég dró mig
út úr þeim,“ segir Guðni. Þessir erfiðleikar
voru aðeins forsmekkurinn að því sem