Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Side 40
40 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
G
R
E
IN
Niðurstöður
spurningakönnunar
Þátttaka í spurningakönnuninni í lok
verkefnis var 63.5% (596 konur og 207
karlar) og rúmlega 50% þeirra höfðu verið
með í spurningakönnuninni við upphaf
verkefnisins. Af þeim sem tóku þátt voru
rúmlega 68% í fullu starfi en um 32% í
hlutastarfi. Flestir unnu á einum vinnustað
eða um 89% og unnu 79% þeirra í
dagvinnu. Rúmlega 40% þátttakenda
höfðu lokið háskólaprófi, 36% höfðu lokið
framhaldsskólaprófi/iðnmenntun og 24%
grunnskólaprófi. Þegar á heildina er litið
sögðust um 75% þátttakenda vera mjög
ánægðir eða fremur ánægðir í vinnunni en
einungis 7% sögðust vera fremur eða mjög
óánægðir í vinnunni. Þegar spurt var um
það hversu sáttir eða ósáttir starfsmenn
voru með vinnuálagið í vinnunni þá kom í
ljós að um 57% voru mjög sáttir eða fremur
sáttir en rúmlega 16% voru fremur ósáttir
eða mjög ósáttir við álagið í vinnunni. Um
70% þeirra sem voru í meðallagi eða
ósáttir við vinnuálagið voru líka óánægðir
í vinnunni.
Í töflu 2 eru sýndar niðurstöður nokkurra
spurninga úr spurningakönnuninni sem
gerð var í upphafi og við lok verkefnisins.
Miðað við þau markmið sem sett voru í
byrjun verkefnisins þá má sjá, samkvæmt
þeim tölum sem koma fram í töflu 1, að
margt hefur áunnist á þessu 3ja ára tíma-
bili sem verkefnið stóð yfir.
Niðurstöður sýna að það er mun algengara
að starfsfólk svari játandi þegar spurt er
hvort fjallað sé sérstaklega um viðbrögð
við veikindafjarveru í mannauðsstefnu
vinnustaðarins. Það hefur líka aukist að
haft er samband við starfsmenn sem eru
frá vinnustaðnum vegna bæði skammtíma-
og langtímaveikinda. Rannsóknir sýna
að mikilvægt er að hafa samband við
starfsmenn á meðan þeir eru fjarverandi
vegna veikinda en það eykur líkurnar á
því að þeir snúi aftur til vinnu (Gabbay,
M., Taylor, L., Sheppard, L. et al 2011).
Niðurstöður könnunarinnar sýna þó að
stór hluti þátttakenda veit ekki hvort
þetta sé gert á þeirra vinnustað. Það
þarf því að leggja enn meiri áherslu á
að haft sé samband við starfsmenn sem
eru fjarverandi vegna veikinda þannig
að þetta verði almenn reynsla allra á
vinnustaðnum.
Við innleiðingu á fjarverustefnu hjá
þátttökufyrirtækjum voru einnig innleidd
sérstök fjarverusamtöl og 75% svara því
nú játandi að starfsmenn geti verið boðaðir
í samtal um fjarveru en 51% svöruðu
þessu játandi í könnuninni við upphaf
verkefnis árið 2011. Þessi samtöl byggja
á tölulegum niðurstöðum um fjarveru og
er samtal um vinnustaðinn og hvað hægt
sé að gera til að auðvelda einstaklingnum
að minnka fjarveru frá vinnu. Samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar þá hefur
notkun fjarverusamtala aukist en enn eru
margir stjórnendur ekki að nýta sér þetta
tæki til að hafa áhrif á fjarveru starfsmanna
sinna og þá í leiðinni finna þá sem eiga
erfitt með að sinna vinnu sinni og veita
þeim viðeigandi stuðning.
Endurkoma til vinnu
Við uppsetningu og innleiðingu á fjar-
verustefnu var lögð áhersla á að í henni
kæmi einnig fram stefna fyrirtækisins hvað
varðar langtímafjarveru frá vinnustað og
endurkomu til vinnu eftir langtímaveikindi
eða slys. Niðurstöður könnunarinnar sýna
að það er nú í fleiri tilvikum til staðar
skráðar vinnureglur um hvernig bregðast
eigi við þegar starfsfólk kemur til baka
úr langtímaveikindum (tafla 2). Einungis
10% svöruðu þessari spurningu neitandi
í samanburði við 20% árið 2011 en enn
eru þó mjög margir sem svara að þeir viti
ekki hvort slíkar reglur séu til staðar (65%
úr 69% árið 2011). Um 66% þátttakenda
töldu þó að á þeirra vinnustað væri mjög
mikill eða fremur mikill vilji til að auðvelda
starfsfólki að koma til baka til vinnu í skert
starfshlutfall að loknum veikindum eða
slysum. Í 58% tilfella þá fengu þeir, sem
snéru til baka til vinnu í skertu starfshlutfalli
Tegund fræðslu Fræðsla fyrir Tími
Kynning á hlutverki VIRK
Kynning á verkefninu
Fræðsla um þarfagreiningu og
mótun stefnu
– Fræðsluáætlun
Stjórnendur, trúnaðarmenn og
almenna starfsmenn
Haust 2011
Forvarnir á vinnustað Stjórnendur, trúnaðarmenn og
almenna starfsmenn
Haust/Vetur
2011-2012
Samtal um fjarvistir Fyrir stjórnendur og
trúnaðarmenn
Vor 2012
Heilsa og vinnuvernd,
heilsuefling
Stjórnendur, trúnaðarmenn og
almenna starfsmenn
Haust 2012
Samþætting vinnu og fjölskyldulífs Stjórnendur,
trúnaðarmenn og almenna
starfsmenn
Vor 2013
Áætlun um endurkomu til vinnu,
viðhorf og sveigjanleiki.
Kynning á þjónustu ráðgjafa VIRK
Stjórnendur, trúnaðarmenn
og almenna starfsmenn
Haust 2013
Val á einum:
1. Líkamsbeiting
2. Einelti
3. Heilbrigður vinnustaður
Stjórnendur, trúnaðarmenn
og almenna starfsmenn
Vor/Haust
2014
Málþing um velferð, fjarvistir
og endurkomu til vinnu
Opin þátttakendum og
almenningi
Maí 2015
Tafla 1