Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 42
42 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
G
R
E
IN
innar sýndu að þeir sem voru óánægðir
í starfi, í samanburði við þá sem voru
ánægðir eða í meðallagi ánægðir, voru
líklegri til að svara að yfirmenn þeirra
aðstoðuðu þá stundum/sjaldan eða
aldrei við að auka færni þeirra í starfi og
var marktækur munur milli hópanna*.
Þegar spurt var hversu sáttir eða ósáttir
þátttakendur voru með þá möguleika sem
þeir höfðu til að þróast í starfi þá sögðust
61% vera fremur sáttir eða mjög sáttir
með þá möguleika á móti 13% sem voru
fremur ósáttir eða mjög ósáttir með sína
möguleika til að þróast í starfi. Þar kom
einnig fram marktækur munur á milli
hópanna þegar svar við þessari spurningu
var skoðað í tengslum við starfsánægju en
starfsmenn sem voru í meðallagi ánægðir
eða óánægðir í starfi voru mun líklegri til að
svara að þeir væru í meðallagi eða ósáttir
við þá möguleika sem þeir hefðu til að
þróast í starfi*.
Virkur vinnustaður – áhrif á
vinnustaðinn
Í spurningakönnuninni 2014 var einnig
spurt hversu ánægðir eða óánægðir
þátttakendur voru með þátttöku sína í
verkefninu Virkur vinnustaður. 63.6%
sögðust vera fremur eða mjög ánægðir
með þátttökuna sína en 6,2% voru fremur
eða mjög óánægðir. Ekki var munur milli
karla og kvenna en 83% þeirra sem voru
óánægðir í starfi sögðust vera í meðallagi
eða óánægðir með þátttökuna á móti
26% þeirra sem voru ánægðir í starfi en
marktækur munur var á milli hópanna*.
Þegar spurt var um áhrif verkefnisins á
vinnuumhverfið töldu 61.4% það hafa
haft fremur eða mjög góð áhrif en einungis
2.2% töldu verkefnið hafa haft fremur
eða mjög slæm áhrif á vinnuumhverfið.
Hér var einnig marktækur munur milli
hópanna þegar skoðuð voru tengsl
þessarar spurningar við starfsánægju en
73% af þeim sem voru óánægðir í starfi
töldu að verkefnið Virkur vinnustaður
hafi haft í meðallagi eða slæm áhrif á
vinnuumhverfið í samanburði við 30%
þeirra sem voru ánægðir í starfi.
Niðurstöður söfnunar
lykiltalna
Markviss söfnun á lykiltölum átti sér stað
hjá öllum þátttökufyrirtækjum öll þrjú árin
sem verkefnið stóð yfir. Fjarvera vegna
eigin veikinda og veikinda barna var skráð
í klukkustundum á sérstaklega útbúið
excel-skjal með læstum formúlum sem
reiknaði út lykiltölur fjarveru en það tryggði
áreiðanleika útreikninganna. Lykiltölur
fjarveru voru hlutfall fjarveru vegna veik-
inda af virkum vinnudögum á ári sem hér
voru 260 dagar og meðaltíðni fjarveru sem
var fjöldi skipta sem hver starfsmaður
var veikur á ári. Einnig var reiknað út
sérstaklega hvernig hlutfall fjarveru skiptist
milli skammtíma-, miðlungs- og langtíma
fjarveru sem og fjarveru vegna veikinda
barna.
Niðurstöður spurningakönnunarinnar 2014
sýna að nær 90% þátttakenda telja að
fjarvistir séu skráðar á skipulagðan hátt
á vinnustað þeirra, sem var mjög svipað
niðurstöðum úr könnuninni 2011. Hins
vegar kom í ljós að hærra hlutfall stjórnenda
í könnuninni 2014, eða um 50%, voru að
vinna markvisst með fjarverutölur sem
liður í rekstrartölum og áætlanagerð og
hafði þetta hlutfall hækkað úr 28% frá
könnuninni árið 2011. Enn voru þó margir
stjórnendur sem vissu ekki hvort þetta væri
gert eða 39% þeirra sem var þó minna en í
könnuninni 2011 (42%).
Þátttökufyrirtækin tóku saman hlutfall
fjarveru fyrir árin 2009 – 2011 eða þrjú ár
áður en verkefnið byrjaði. Ekki var safnað
saman tölum fyrir tíðni veikinda eða
skoðuð dreifing fjarveru milli skammtíma-,
miðlungs- eða langtímaveikinda fyrir þessi
ár eins og gert var fyrir árin þrjú sem
verkefnið stóð yfir. Í töflu 3 má sjá tölur fyrir
hlutfall fjarveru og tilheyrandi fjölda daga
sem eru meðaltöl fyrir árin þrjú áður en
verkefnið byrjaði í samanburði við sömu
tölur fyrir árin þrjú sem verkefnið stóð yfir.
Sjá má að hlutfall fjarveru hefur minnkað
úr 7,2% fyrir árin 2009 – 2011 í 6.1%
fyrir árin 2012 – 2014 sem er það tímabil
sem verkefnið náði yfir. Þetta þýðir að
meðalfjöldi veikindadaga á stöðugildi
hefur fækkað um nær 3 daga milli þessara
tveggja tímabila. Þegar skoðuð er fækkun
daga miðað við hvort um opinberan eða
einkarekinn vinnustað er að ræða þá kemur
í ljós að á einkareknu vinnustöðunum
hefur meðalfjöldi veikindadaga á stöðugildi
fækkað um nær 3 daga en hjá hinum
opinberu vinnustöðum um rúmlega 2
daga.
Í töflu 4 má síðan sjá hinar ýmsu lykiltölur
sem safnað var á þeim þremur árum
sem verkefnið náði yfir. Allar tölur eru
„Ég er svo þakklát fyrir
að þetta verkefni hafi farið
af stað og með svona
jákvæðum formerkjum,
þó ekkert sé gefið eftir og
að skólinn hafi verið þátt-
takandi í því. Þarna fékk
ég gott verkfæri til að vinna
með og viðhorfsbreytingin til
veikinda hefur skapað betra
og jákvæðara andrúmsloft.“
Hlutfall fjarveru 8,5% 4,8% 7,2% 7,5% 3,7% 6,1%
Fjöldi daga 22,0 12,5 18,7 19,5 9,7 15,9
Opinberir
vinnustaðir
Einkareknir
vinnustaðir
Meðaltal
allra
Meðaltal
allra
Opinberir
vinnustaðir
Einkareknir
vinnustaðir
2009-2011 2012-2014
Tafla 3