Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 47
47www.virk.is
VIÐTAL
„Samstarfið gekk frá upphafi mjög vel.
En okkur fannst þetta verkefni Virkur
vinnustaður þó dálítið óljóst fyrst, þekktum
ekki til VIRK þá og vorum löngu byrjuð að
halda utan um fjarvistarskráningu.
Okkur fannst í fyrstu að VIRK vildi fá
upplýsingar, sem krefðust töluvert mikillar
þátttöku stjórnenda og starfsmanna.
Þetta var svo rætt á stöðufundi hjá VIRK.
Við upplýstum að veturinn 2011 til 2012
hefði samstarfið við VIRK verið dálítið erfitt
fyrir okkur skipulagslega. Bæði vegna
vaktavinnukerfisins og erfiðleika við að
taka starfsfólk úr vinnu til fræðslu, þegar
búðin væri opin.
En það er nú svo, þegar upp er staðið, að
einmitt þennan vetur fengu stjórnendur
afar staðgóða fræðslu, sem hefur komið
sér vel.“
Þær Fjóla Kristín og Valgerður María
segja að eftir fyrsta veturinn hafi verið
búið að fínpússa verklagið. „Þetta var jú
þróunarverkefni, ekki bara hjá okkur heldur
einnig hjá VIRK. Eftir þennan fyrsta vetur
fór allt að ganga sem smurt fyrir sig.“
Þær segja VIRK hafa sent upplýsingar
um þema hvers tímabils meðan á
þróunarverkefninu stóð. „Svo sem um-
fjallanir um heilsu, hreyfingu, matarræði,
einkalíf og starf og endurkomu til vinnu, svo
dæmi séu nefnd. Alltaf var eitthvað ákveð-
ið tekið fyrir á hverri önn. Smám saman
gekk betur að koma hlutunum heim og
saman og bóka fundi með starfsmönnum
– sem voru forvitnir um þetta samstarf
IKEA við VIRK.“
Fræðsla stjórnenda
mikilvæg
En hvað finnst ykkur standa upp úr eftir
samstarfið?
„Það sem okkur finnst standa upp úr hvað
þetta þróunarverkefni snertir er fræðslan
sem stjórnendur fengu. Hún gerði það
að verkum að þeir áttu auðveldara með
að ræða fjarveru starfsfólks við það.
Stjórnendur öðluðust aukna kunnáttu í
hvernig ætti að ræða fjarveru við starfsfólk.
Þegar málið er nálgast frá sjónarhóli
fjarveru varð þetta ekki eins viðkvæmt
umræðuefni. Sjónarhornið var þá fjarveran
og áhrif hennar á vinnustaðinn. Við starfs-
mannastjórarnir tókum fjarverusamtölin til
að byrja með, síðan tóku deildarstjórarnir
við. Þetta gerðist í kjölfar fundar sem VIRK
stóð fyrir, þar sem fjallað var um hvernig
árangursríkast væri að ræða fjarveru við
„Ánægja starfsmanna
hefur vaxið á undan-
förnum árum almennt.
Að töluverðu leyti má
eflaust rekja það til
aukinnar fræðslu frá
VIRK til deildarstjóra.“
Valgerður María og Fjóla Kristín