Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Síða 53
53www.virk.is
VIÐTAL
„Við sjáum nú æ betur að ungt fólk með
geðrofssjúkdóma getur unnið meira og
betur en við gerðum okkur áður grein
fyrir,“ segja þau.
Hvernig hefur gengið að aðlaga IPS að
íslensku umhverfi?
„Vissulega hefur þurft aðlögun IPS að
okkar veruleika. Hugmyndin að IPS er
upprunnin frá Ameríku en er að dreifa
sér um allan heim. Búið er að taka þetta
meðferðarúrræði upp á öllum Norður-
löndunum og víðar í Evrópu. En á
Norðurlöndunum er félagslega kerfið allt
öðruvísi en í Bandaríkjunum. Því hafa
komið upp vissir hnökrar á að samræma
og aðlaga IPS því kerfi, þ.e. félags- og
tryggingakerfi, sem við á Íslandi og öðrum
Norðurlöndum búum við,“ segir Valur.
Nanna bætir við að það þurfi að aðlaga öll
meðferðarúrræði íslensku umhverfi. „En
án þess að skemma módelið.“
Tryggðarskali er gátlisti
Valur segir ákveðinn tryggðarskala fylgja
IPS. „Hann er 26 atriða gátlisti og búið að
þýða hann á íslensku. Þar eru spurningar
settar fram og við fáum stig fyrir að
fylgja skalanum. Eins konar einkunnar-
gjöf fyrir 26 atriði, sem hvert um sig er
fjölþætt. Færum við algjörlega eftir IPS
hugmyndafræðinni fengjum við fullt hús
stiga. En það er ekki hægt vegna ólíks
umhverfis. Sé IPS ráðgjafi að sinna 20
einstaklingum fær hann toppeinkunn fyrir
það, sinni hann fleirum lækkar einkunnin.
Við skorum lægra af því að við sinnum
fleirum. Tryggðarskali þýðir að halda tryggð
við hin ýmsu atriði IPS hugmyndafræð-
innar. Baldur Heiðar Sigurðsson sál-
fræðingur fann þetta góða íslenska nafn á
gátlista IPS hugmyndafræðinnar.“
Nanna bætir við að því færri stig sem fáist
því minna sé farið eftir hugmyndafræði
IPS. „Hægt er að skora 150 stig,“ segir
hún.
„Við Sveina Berglind Jónsdóttir sálfræðing
og deildarstjóri hjá VIRK fórum til
Danmerkur til að hitta kollegana og þeir
sögðu okkur að við myndum skora lágt
til að byrja með. Þannig væri það bara.
Við vorum með 79 stig fyrir um það bil
ári. Lægst mega stigin vera 74, þar fyrir
neðan er ekki lengur verið að fara eftir
þessu úrræði. Nú erum við hins vegar að
skora 96 til 98 stig, sem er svipað og Danir
gera. Við erum mjög sátt með þetta,“ segir
Valur.
Nanna getur þess að nákvæmni Vals og
vandvirkni eigi stóran þátt í þessari góðu
niðurstöðu sem nú er á borðinu. „Hlynur
Jónasson atvinnuráðgjafi á vegum VIRK,
sem vinnur að IPS-verkefninu með okkur,
hefur mjög góða þekkingu á atvinnulífinu
og góð tengsl við atvinnurekendur. Þeir fá
góðar upplýsingar í upphafi og tryggingu
fyrir því að við munum koma að málum ef
eitthvað kemur upp á, þannig hefur skap-
ast mikill og góður áhugi atvinnurekenda á
IPS-verkefninu“ segir Valur.
Gengur vel að finna vinnu
Nanna og Valur segja þátttakendur í
IPS úrræðinu vera ungt fólk sem hafi
ekki mikla menntun. En flest hafi það
fengið vinnu sem það hefur áhuga á,
t.d. við lagerstörf, á kaffihúsum eða
bílaleigum, verkamannavinnu og tölvu-
og verslunarstörf. „Þetta byrjaði 2012
en á þessu tímabili hefur IPS fólkið
okkar, sem við köllum svo, tekist að fá
hin fjölbreyttustu störf. Nú eru þrettán
manns í atvinnu, átta manns eru að skoða
mögulega atvinnuþátttöku og brottfall
er fjórir einstaklingar. Samtals eru þetta
tuttugu og fimm manns sem hafa eða eru
að tengjast atvinnumarkaðinum.“
Nanna segir hafa verið ákveðið að á
meðan þessir einstaklingar séu í verk-
efninu njóti þeir þjónustu á Laugarási.
„Ein af grunnstoðum í verkefninu er náið
samstarf við „klíniska kerfið“. Tilnefningar
þeirra sem sýna áhuga á vinnu koma frá
þverfaglegu teymi og síðan taka boltann
Valur félagsráðgjafi, Hlynur atvinnuráðgjafi
og Svanborg Guðmundsdóttir iðjuþjálfi.
Viðtöl fara fram og síðan fer Hlynur í að
finna vinnu fyrir viðkomandi. Hlynur og
hinir í IPS teyminu halda svo áfram að
hitta viðkomandi og fylgjast með og eru
í góðu sambandi við vinnuveitendurna,
sem er mikilvægt.“
Samstarfið við VIRK
gengur vel
Þau Nanna og Valur leggja áherslu á að
samstarfið við VIRK gangi mjög vel, en það
fer nú að miklu leyti fram í samstarfinu við
Hlyn. „Hann er okkar stoð og stytta í þessu
verkefni og orðinn hluti af starfseminni
hér. Fyrst þegar þetta samstarf byrjaði
2012 vorum við með mánaðarlega
samráðsfundi. En þeim hefur fækkað
eftir að Hlynur tók til starfa við hlið okkar.
Hann er tengiliður, kemur hér oft og er í
afar góðu sambandi við skjólstæðinga og
starfsfólk. Hann hefur líka svolítið aðra
sýn en við, horfir ekki eins stíft á einkenni
sjúkdómsins. Hann horfir á styrkleikana,“
segir Nanna. Valur getur þess að hann hafi
verið í góðu samstarfi við Sveinu Berglindi
Jónsdóttur hjá VIRK.
En hvernig gengur skjólstæðingunum að
vinna samkvæmt IPS úrræðinu?
„Það gengur vel. Ef eitthvað kemur upp á
er haft samband. Ef til dæmis einstaklingur
mætir ekki er hringt í hann og ef hann er
veikur er látið vita. Boðleiðirnar eru stuttar
og það er áhrifaríkt. Væru ekki þessi nánu
tengsl þá væri mun líklegra að viðkomandi
myndi detta út úr vinnunni,“ segir Nanna.
„Samskiptin við atvinnurekendur hafa
verið einstaklega góð. Þeir hafa sýnt gott
hjartalag. Þetta samstarf með öðru eykur
líkur á því að fólk komist á vinnumarkaðinn
og nái bata. Einstaklingum frá Laugar-
ásnum hefur líka verið vel tekið af sam-
starfsfólki. Mótttökurnar hafa verið betri
en við bjuggumst við. Gott samstarf við
þjónustuna hér hefur gert atvinnurekendur
„Samskiptin við
atvinnurekendur hafa
verið einstaklega góð.
Þeir hafa sýnt gott
hjartalag. Þetta samstarf
með öðru eykur líkur á
því að fólk komist á
vinnumarkaðinn
og nái bata.“