Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 58
58 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
A
Ð
S
E
N
D
G
R
E
IN
Árið 2011 bættist Hlynur Jónasson
markaðsmaður í verkefnahóp Útrásar
en hann kom upphaflega að starfsemi
Hlutverkaseturs sem sjálfboðaliði. Í stað
þess að markaðssetja vöru eða þjónustu
eins og hann var vanur þá „markaðssetti“
hann einstaklinga með geðraskanir fyrir
vinnumarkaðinn og setti samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja á oddinn. Hlynur kom
á tengslum milli atvinnuleitenda og
fyrirtækja sem hann tengdist persónulega.
Auk þessa þá kynnti hann verkefnið Útrás
og starfsemi VIRK um leið fyrir fjölda
fyrirtækja.
Markhópur
Meginmarkhópur Útrásar eru einstaklingar
með geðraskanir sem njóta örorku- eða
endurhæfingarlífeyris og hafa verið lengi
frá vinnumarkaði, einstaklingar sem
eygja litla von um að komast aftur út á
vinnumarkaðinn. Þessi hópur er ekki í
forgangi þegar kemur að atvinnuþátttöku
og samfélagið gerir heldur ekki ráð fyrir
því að hann sé vænlegur til árangurs. Í
þessum hópi leynast hins vegar margir
sem hafa löngun og getu til að vinna
hlutastörf, fái þeir viðeigandi stuðning og
eftirfylgd (Bond, Drake og Becker, 2008;
Bond og Jones, 2005; Drake og Bond,
2008; Krupa, 2007, 2010; Perkins,
Farmer og Lichfield, 2009; Rinaldi og
Perkins, 2008).
Markmið Útrásar
Markmið Útrásarverkefnisins er m.a. að
tengjast fyrirtækjum, skapa hlutastörf
og semja við opinber- og einkafyrirtæki
um atvinnuþátttöku fólks með skerta
starfsgetu. Einnig að kynna áherslur og sýn
markhópsins á hvers konar aðstoð reynist
þeim best ásamt því að hafa áhrif á viðhorf
almennings með því að kynna fyrir þeim
mikilvægi atvinnuþátttöku einstaklinga
með geðraskanir.
Framkvæmdin
Sylviane Lecoultre var ráðin til að meta
starfsgetu einstaklinga og hvers konar
undirbúnings væri þörf. Hún veitti einnig
ráðgjöf og sá um eftirfylgd og tengsl við
fagfólk LSH og aðra þjónustuaðila sem
sinna þessum hópi einstaklinga.
Hlynur Jónasson var ráðinn til að kynna verk-
efnið fyrir atvinnurekendum. Auk þess
að mynda tengsl við fyrirtæki aðstoðaði
hann atvinnuleitendur við gerð starfsferil-
skráa og undirbúning fyrir atvinnuviðtöl.
Einnig þurfti að samræma væntingar
atvinnuleitenda og vinnuveitenda. Litið
var á vinnustaðinn, samstarfsfólk og
vinnuveitandann sem skjólstæðinga sem
ekki síður þyrftu á stuðningi og ráðgjöf
að halda en atvinnuleitendurnir sjálfir.
Á 12 mánaða tímabili 2013–2014 setti
Hlynur Jónasson sig í samband við yfir
50 fyrirtæki og stofnanir. Meðal annarra
fyrirtækja sem réðu starfsmenn á vegum
Útrásar voru Geðheilsustöð Breiðholts,
Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða í Reykja-
vík, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Bændasamtökin, Stilling, Myllan, Sölu-
félag garðyrkjumanna, Sjávarklasinn, Jói
Fel, Arabær, List án landamæra, Friend in
Iceland-bókunarstofa, Time Tours, Gáma-
þjónustan, Samskip og Hreyfing.
Elín Ebba Ásmundsdóttir, sem einnig
er framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs,
var tengiliður starfsmanna Útrásar við
VIRK starfsendurhæfingarsjóð, háskóla-
samfélagið, fjölmiðla og viðsemjendur
Reykjavíkurborgar. Hún var einnig tengilið-
ur við þáttagerðarmenn kynningarmynd-
bandanna sem framleidd voru í tengslum
við verkefnið.
Samstarfssamningur var gerður við
Atvinnu með stuðningi (AMS) hjá
Vinnumálastofnun haustið 2013. AMS
býður fólki úr Útrásarverkefninu á nám-
skeið og gerir vinnustaðasamninga við
Tryggingastofnun ríkisins (TR). AMS hefur
aðgang að Útrás um starfsgetumöt.
Stuðningur og eftirfylgd
Eftir að atvinnuleitandi er kominn í vinnu
eru samskiptin regluleg sem tryggir
stuðning við fyrstu skrefin á vinnustaðnum
og jafnframt er hægt að leysa úr þeim
vandamálum sem upp kunna að koma.
Smám saman er svo dregið úr stuðningi.
Sama gildir um atvinnurekandann og/
eða samstarfsfólkið á vinnustaðnum.
Samskiptum er síðan haldið við eftir
þörfum í allt að þrjú ár og greiður aðgangur
er að tengiliði í gegnum netpóst eða síma.
Að finna starf og síðan halda því er flókið
og erfitt verkefni fyrir atvinnuleitanda
með geðraskanir. Tengiliðir úr geðheil-
brigðisþjónustunni sem og fjölskylda
og vinir hafa áhrif á ferlið hvort sem um
stuðning við viðkomandi er að ræða
eða úrtölur. Ef þess er kostur er best
að hafa sem flesta með í ferlinu því allir
þurfa að leggja sitt af mörkum svo vel
megi takast; geðheilbrigðisstarfsmenn,
atvinnuleitandinn, vinnuveitandinn, sam-
starfsmenn, stuðningsaðilar og tenglar
TR og VIRK. Opin og heiðarleg samskipti
eru forsenda þess að góð og uppbyggileg
vinnutengsl skapist. Allir verða að vera
hreinskiptnir um verkaskiptingu og hvort
skipulag gangi yfirleitt upp. Aðstoðin sem
atvinnuleitanda og samverkafólki er veitt
er einstaklingsmiðuð og sérsniðin.
Kynningarmyndbönd
Útbúin voru 3-4 mínútna kynningar-
myndbönd ætluð atvinnurekendum og
samstarfsfólki en einnig var litið á þau sem
lið í að hafa áhrif á viðhorf almennings. Ingi
Ragnar Ingason, kvikmyndagerðarmaður
og Alma Ómarsdóttir, fréttamaður stýrðu
því verkefni. Myndböndin eru um mikilvægi
atvinnuþátttöku, ávinning atvinnulífisins,
um mikilvægi þess að fá tækifæri til
að fá að byrja smátt og um mikilvægi
hlutastarfa. Hægt er að nálgast þessi
myndbönd á heimasíðu Hlutverkaseturs,
www.hlutverkasetur.is og á Youtube en
þau heita: Ávinningur atvinnulífsins, Að
byrja smátt, Mikilvægi þess að byrja smátt,
Snúa aftur á vinnumarkað og Mikilvægi
atvinnuþátttöku.