Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 9
Sögusýning í Árbæjarsafni
opnuð 19. júní
Í tilefni 100 ára afmælis félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var
sett á fót sögusýning í Árbæjarsafni. Sýningin verður opnuð 19.
júní og stendur fram í október. Sýningin hjúkrun í 100 ár segir
sögu hjúkrunar í samhengi við breytingar á stöðu kynjanna og
þróun í tækni og vísindum.
um aldamótin 1900 umbreyttist íslenskt samfélag. fólkið
yfirgaf sveitirnar og settist að í þéttbýlinu þar sem sumir bjuggu
við velsæld en kjör annarra voru kröpp. Lélegt húsnæði ásamt
skorti á mat og almennu hreinlæti ógnuðu heilsu bæjarbúa og
nábýlið auðveldaði dreifingu sjúkdóma. Ábyrgð á umönnun
sjúkra, sem hafði legið á heimilunum, fluttist yfir á góðgerðar-
félög sem gáfu mat og fatnað og skipulögðu heimahjúkrun og
heilsuvernd fyrir þá efnaminni.
Menntaðar hjúkrunarkonur voru þar framarlega í flokki.
Margar voru danskar og höfðu flutt til landsins gagngert til þess
að starfa á sjúkrastofnunum sem þá voru að rísa í nágrenni
reykjavíkur. hjúkrun var nýtt og sérhæft starf sem krafðist, ef
vel átti að fara, umhyggju og næmni fyrir þörfum sjúklinganna,
agaðra vinnubragða og mikillar skipulagningar. námið var þrjú
ár og íslenskar stúlkur sóttu það erlendis að hluta eða öllu leyti
fram til ársins 1931 þegar hjúkrunarkvennaskólinn tók til starfa.
Þegar félag íslenskra hjúkrunarkvenna var stofnað árið 1919
voru starfandi 11 menntaðar hjúkrunarkonur sem allar voru
ógiftar og barnlausar og bjuggu á þeim sjúkrastofnunum sem
þær störfuðu við. Langt var liðið á tuttugustu öldina áður en
breytt viðhorf til hlutverks kvenna, fækkun vinnustunda, sum-
arfrí, innleiðing fæðingarorlofs, opnun leikskóla og bætt
framboð getnaðarvarna gerði konum kleift að starfa utan heim-
ilis samhliða fjölskyldulífi. .
Enn í dag byggist hjúkrun á sama grunni og fyrir hundrað
árum og miðar að því að skapa sjúklingnum öruggt umhverfi
og þannig hindra, stöðva eða lina afleiðingar sjúkdóma og slysa.
Í dag eru starfandi tæplega 3.000 hjúkrunarfræðingar sem
vinna fjölbreytt og oft og tíðum mjög sérhæfð störf sem breyt -
ast í takt við framfarir sem verða á sviði vísinda og tækni. Þrátt
fyrir þetta eru fáir karlmenn hjúkrunarfræðingar og vísbend-
ingar eru um að þar sé um að kenna gömlum hugmyndum
samfélagsins um hjúkrun og stöðu kynjanna. Er ekki kominn
tími til að brjóta glerþakið?
nánari dagskrá afmælisársins er hægt að kynna sér á vef
félagsins, www.hjukrun.is.
aldarafmæli félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 9
Enn í dag byggist hjúkrun á sama grunni og
fyrir hundrað árum og miðar að því að skapa
sjúklingnum öruggt umhverfi og þannig hindra,
stöðva eða lina afleiðingar sjúkdóma og slysa.