Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 13
Hvatningarstyrkir til frumkvöðla
í hjúkrun á Íslandi
Arna Skúladóttir, frumkvöðull á sviði hjúkrunar barna með
svefnvandamál og foreldra þeirra
arna skipulagði meðferð við svefnvandamálum barna og
byggði hana á meistararitgerð sinni við hjúkrunarfræðideild
hÍ. hún hefur í áraraðir aðstoðað foreldra sem eiga börn sem
hafa átt í erfiðleikum með svefn og er hún höfundur að bókinni
Draumaland: Svefn og svefnvenjur barna sem kom út árið 2006.
Bókin naut mikilla vinsælda enda mikilvæg fyrir foreldra barna
með svefnörðugleika. hún er einnig höfundur að metsölubók-
inni Veganesti — frá fæðingu til fjögurra ára aldurs.
arna stofnaði foreldraskólann um áramótin 2004–2005.
Skólinn var með símaþjónustu auk þess að halda námskeið
fyrir foreldra ungra barna. hún byggði einnig upp þjónustu við
sama hóp á göngudeild Barnaspítala hringsins og varð það til
þess að innlagnir á spítalann vegna svefnmála barna heyra nú
til algjörrar undantekningar.
Ásta Thoroddsen, brautryðjandi í upplýsingatækni í hjúkrun
á Íslandi
Ásta er brautryðjandi í upplýsingatækni í hjúkrun á Íslandi.
Starf hennar hefur m.a. falið í sér þýðingu, uppbyggingu og
innleiðingu flokkunarkerfa, auk þess sem hún hefur skipulagt
kennslu nemenda og starfandi hjúkrunar fræðinga. Ásta hefur
þannig unnið að staðlaðri og vandaðri skráningu í hjúkrun hér
á landi, og með núverandi verkefnum og fram tíðar áformum
stuðlar Ásta enn að nýsköpun í upplýsingatækni sem nýtist í
heilbrigðisþjónustu.
Ásgeir Valur Snorrason, brautryðjandi í skipulagningu og
kennslu í svæfingahjúkrun og herminámi í kennslu hjúkr-
unarfræðinga
Ásgeir Valur hefur verið brautryðjandi í skipulagningu og
kennslu svæfingahjúkrunar við háskóla Íslands. hann er braut -
ryðjandi í hermikennslu í endurlífgun og viðbrögðum við
bráða tilfellum og lífshættulegum tilfellum og er stofnandi
Bráðaskólans sem er sá eini sinni tegundar á Íslandi.
Ásgeir Valur innleiddi herminám í kennslu hjúkrunarfræð-
inga og hefur það síðan skilað sér til annarra heilbrigðisstétta.
Mikilvægt er að efla og styrkja víðtæka þekkingu og færni
hjúkrunarfræðinga í bráðahjúkrun. Breytingar og innleiðing
nýrra kennsluhátta eru undirstaða framfara í menntun og hefur
Ásgeir Valur átt virkan þátt í þeirri þróun.
Helga Sif Friðjónsdóttir, frumkvöðull og leiðtogi í inn-
leiðingu á hugtakinu skaðaminnkun á Íslandi, hjúkrun jaðar-
settra hópa hér á landi og áhugahvetjandi samtali
helga Sif er bæði frumkvöðull og leiðtogi í þeim verkefnum
sem hún hefur brennandi áhuga á. hún innleiddi hugmynda -
fræði skaðaminnkunar hérlendis fyrir meira en 10 árum. Þá
setti hún á fót frú ragnheiði sem þjónar fólki í vímuefnaneyslu
og tekur þátt í fræðslu sjálfboðaliða frú ragnheiðar. hún
opnaði augu heilbrigðisstarfsfólks fyrir mikilvægi þess að hlúa
að þessum jaðarsetta hópi sem hefur oft mætt miklum for-
afmælis- og hvatningarstyrkir í tilefni aldarafmælis
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 13
F.v.: Arna Skúladóttir, Ásta Thoroddsen, Helga Sif Friðjónsdóttir og Ásgeir Valur Snorrason. Á myndina vantar Nönnu Friðriksdóttur.