Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 66
Heilbrigðiskerfi nútímans einkennist af síaukinni sérhæfingu og
þekkingu. Í dag er veitt meðferð sem hefði þótt óhugsandi fyrir ekki
svo löngu og þörf er á fagfólki sem hefur sértæka færni og þekkingu
til að veita slíka meðferð. Sérfræðiþekking í hjúkrun hefur vaxið í
takt við þróun síðustu ára. Sérfræðingar í hjúkrun eru eftirsóttir
starfskraftar og vaxandi þörf er fyrir þekkingu þeirra og hæfni til að
sinna fólki með flókinn heilsufarsvanda. En sérfræðiþekking verður
ekki til með reynslunni einni saman. Þörf er á formlegu námi þar
sem hjúkrunarfræðingar öðlast slíka þekkingu og þjálfa færni og
hæfni til að veita sértæka meðferð, leiðbeina öðrum og skipuleggja
þjónustu við ákveðna hópa í takt við nýjustu þekkingu hverju sinni.
Klínískt meistaranám
Meistaranám í hjúkrunarfræði hefur verið í boði við hjúkrunarfræðideild háskóla
Íslands frá árinu 1998. Í mars 2019 höfðu 199 einstaklingar lokið meistaranámi við
hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands, þar af 20 í ljósmóðurfræði. upphaflega var
rannsóknaþjálfun veigamesti þáttur námsins en með auknum fjölda doktorsmennt -
aðra hjúkrunarfræðinga og almennt aukinni þekkingu á sérsviðum hjúkrunar hafa
klínískar áherslur orðið fyrirferðarmeiri. nýlegar breytingar á seinni stigum grunn-
náms í hjúkrunarfræði hafa jafnframt gert kleift að meta fjórðung þess náms (30
ECTS) til meistaranáms. hefur það auðveldað og aukið áhuga hjúkrunarfræðinga á
meistaranámi. nemendur í meistaranámi í hjúkrunarfræði í hjúkrunarfræðideild há-
skóla Íslands geta valið um stjórnunarleið, rannsóknarleið og klíníska sérhæfingu. Í
þessari grein verður lögð áhersla á að fjalla um hið síðastnefnda, klínískt meistaranám
í hjúkrunarfræði.
klínískt meistaranám hefur tekið töluverðum breytingum í áranna rás. Verulegt
framboð er af sérhæfðum námskeiðum á mörgum sérsviðum og skipta þau nokkrum
tugum. Áður sóttu nemendur slíka þekkingu í meira mæli til útlanda. Þá hafa áherslur
í námi breyst og má sem dæmi nefna að heilsufarsmat sem áður var lykilnámskeið í
meistaranámi er nú hluti grunnnáms. Meira svigrúm gefst til að þjálfa nemendur í
fjölþættri upplýsingaöflun við heilsufarsmat og dýpka fyrirliggjandi þekkingu. Í takt
66 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019
Markmið klínísks meistaranáms eru að hjúkrunarfræðingar séu
mjög færir í að sinna flóknum verkefnum á afmörkuðu sérsviði og
hjá ákveðnum sjúklingahópum, sérstaklega fólki með flókinn
heilsufarsvanda sem krefst margþættrar þjónustu.
Sérfræðimenntun í hjúkrunarfræði
Sigíður Zoëga, dósent í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og sérfræðingur
í hjúkrun á Landspítala
Helga Jónsdóttir, prófessor í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og
forstöðumaður fræðasviðs langveikra fullorðinna á Landspítala