Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 112
ofþyngd og offitu, uppreisnaranda og spennusækni. Í langtíma-
rannsókn kutob og félaga (2010) kom fram að sá þáttur sem
hafði aðalforspárgildi um sjálfsvirðingu unglingsstúlkna var
útlit þeirra. Ýmsar rannsóknir benda til að ungt fólk sem ekki
er gagnkynhneigt eigi við vanlíðan að stríða og skorti stuðning
frá öðrum. rannsókn Vanden Berghe og félaga (2010) meðal
ungmenna sem voru lesbísk, samkynhneigð og tvíkynhneigð
sýndi að stærsti áhrifavaldur á geðheilbrigði þeirra var skortur
á styðjandi samskiptum. jafnframt kom fram í rannsókn need-
ham og félaga (2010) að ungar lesbískar eða tvíkynhneigðar
ungar konur greindu frá minni stuðningi frá foreldrum en
gagnkynhneigðar konur. Þær voru líklegri að vera með sjálfs-
vígshugsanir og nota fíkniefni. Þær sem voru tvíkynhneigðar
voru líklegri að vera með þunglyndiseinkenni og drekka ótæpi-
lega. Samkynhneigðir ungir karlmenn greindu frá minni stuðn -
ingi en þeir sem voru gagnkynhneigðir eða tvíkynhneigðir.
Verndandi þættir
rannsóknir hafa sýnt margvísleg tengsl á milli sjálfsvirðingar
(e. self esteem), sjálfstrúar (e. self-efficacy), líkamsímyndar,
gengis í skóla, hreyfingar, næringar, geðheilsu og samskipta við
foreldra. rannsókn meðal ungmenna hér á landi sýndi að heil-
brigðishegðun í formi líkamlegrar hreyfingar og neysla ávaxta
og grænmetis tengdist sjálfsvirðingu (kristjánsson o.fl., 2010).
fram kom í rannsókn McClure og félaga (2010) að þau ung-
menni sem stóðu sig betur í skóla og voru í hópíþróttum voru
í minni hættu að hafa litla sjálfsvirðingu. rannsóknir hafa
einnig leitt í ljós tengsl sjálfsvirðingar og námsárangurs við
vímuefnanotkun. Í rannsókn Wheeler (2010) kom fram að
stúlkur með meiri sjálfsvirðingu og betri námsárangur voru
mun ólíklegri að nota vímuefni ári síðar. Þær sem fengu a eða
B á prófum í stað C voru mun ólíklegri að nota vímuefni.
Einnig var námsgeta tengd ábyrgu kynlífi. Stúlkur með að
meðaltali a í stað C á prófum voru mun ólíklegri að vera
byrjaðar að stunda kynlíf ári síðar. Það hefur sýnt sig að for-
eldrar gegna mikilvægu hlutverki í velferð barna sinna. ung-
lingar sem áttu foreldra sem voru næmir á þarfir barna sinna
og gerðu þroskakröfur til þeirra höfðu meiri sjálfsvirðingu
(McClure o.fl., 2010). Í rannsókn Piko og hamvai (2010) kom
fram að ungmenni af báðum kynjum gátu rætt um vandamál
við foreldra sína en stúlkur þó í meira mæli og tengdist það lífs-
ánægju þeirra. Sýnt hefur verið fram á að sjálfstrú hefur jákvæð
tengsl við marga verndandi þætti eins og andlega líðan og
hreyfingu. fram kom í rannsókn Loton og Waters (2017) að
sjálfstrú skipti verulega miklu máli sem áhrifabreyta á milli
styrkjandi uppeldishátta foreldra (e. strength-based parenting)
og hamingju ungmenna og þess að draga úr andlegri vanlíðan
(þunglyndi og kvíða) þeirra. Í rannsókn Spence og félaga
(2010) kom í ljós að sjálfstrú meðal stúlkna hafði sterkari tengsl
við líkamlega hreyfingu en hjá piltum. jafnframt sýndi rann-
sókn kololo og félaga (2012) minni líkur á lítilli hreyfingu
meðal þeirra sem höfðu mikla sjálfstrú og átti það við bæði kyn.
Sjálfstrú hafði mesta forspárgildi í sambandi við að vinna gegn
hreyfingarleysi og í næsta sæti var líkamsímynd.
Það er ljóst af þessari umfjöllun um áhættuþætti, áhættu-
hegðun og verndandi þætti að heilbrigði ungs fólks er marg -
þætt fyrirbæri sem felur í sér líkamlega, andlega, félagslega og
kynferðislega þætti og ýmislegt sem tengist lífsstíl. Sjálfsvirðing
og sjálfstrú eru mikilvægir verndandi þættir en jafnframt góð
tengsl við foreldra og vini. að auki er skólinn sjálfur mikil-
vægur bakhjarl og sá námsárangur sem einstaklingurinn nær
þar er greinilega mikill áhrifavaldur um velferð hans.
Matstæki og skimunartæki sem meta
heilbrigði unglinga
Meginmunur á skimunartæki og matstæki er sá að skimunar-
tæki er notað við klínískar aðstæður, það hefur fremur fáar
spurningar, oft um 10–40, og tekur stuttan tíma að svara (de
Vaan o.fl., 2016; Martin og Winters, 1998). jafnframt þarf að
vera auðvelt að lesa úr því. Því er ætlað á grófan hátt að greina
vísbendingar um heilsufarsleg vandamál og/eða áhættuhegðun
og í framhaldinu fer viðkomandi í nánara greiningarferli ef þörf
krefur (Martin og Winters, 1998).
Lengi hefur verið lögð mikil áhersla á að skoða áhættuþætti
og áhættuhegðun unglinga og ungs fólks. Þetta hefur verið gert
með matstækjum en einnig skimunartækjum. fyrst verður
sjónum beint að matstækjum en síðar að skimunartækjum.
Matstæki
Á vegum bandarísku miðstöðvarinnar um sjúkdómavarnir
hefur könnunin Youth risk Behavior Suveillance System (YrBSS)
verið lögð fyrir í skólum í Bandaríkjunum í mörg ár meðal ung-
linga (CDC, e.d.). YrBSS byggist á sex meginflokkum áhættu-
hegðunar sem geta verið áhrifavaldar helstu dánarorsaka og
fötlunar meðal ungs fólk og fullorðinna. Þetta eru flokkarnir:
a) hegðun sem tengist ófyrirséðum skaða eða ofbeldi, b) kyn-
hegðun sem tengist óráðgerðum þungunum og kynsjúk-
dómum, einnig hiV, c) neysla áfengis og annarra vímuefna, d)
tóbaksnotkun, e) óheilbrigðar matarvenjur og f) ónóg hreyfing
(CDC, e.d.). Í YrBSS er mest áhersla lögð á áhættuhegðun.
gerðar hafa verið rannsóknir hérlendis þar sem notuð eru
matstæki til að leggja mat á heilbrigði ungs fólks. rannsóknir
og greining hefur gert rannsóknir nokkuð reglulega frá árinu
1992 til þess m.a. að skoða skólagöngu, líkamlegt, andlegt og
félagslegt heilbrigði. Spurningar koma inn á verndandi þætti
jafnt sem áhættuþætti og áhættuhegðun. Eins hefur á vegum
Embættis landlæknis verið gerð rannsókn nokkuð reglulega frá
árinu 2007 sem nefnist Heilsa og líðan Íslendinga og nær hún
meðal annars til ungs fólks 18 ára og eldra (Embætti landlæknis,
2012). Báðar þessar íslensku rannsóknir meðal ungs fólks eru
byggðar á matstækjum en eru ekki klínísk skimunartæki.
Matstæki sem hafa verið notuð erlendis til að meta vernd-
andi þætti ungs fólks hafa til dæmis verið 10 atriða matstæki
rosenberg (1989) um sjálfsvirðingu (e. self-esteem scale) og 10
atriða matstæki Schwarzer og jerusalem (1995) um almenna
sjálfstrú (e. general self-efficacy scale). Einnig má nefna mats -
tæki til að meta seiglu (e. resilience scale) ungs fólks, sem er 25
atriða (Wagnild og Young, 1993). Á vegum Search institute í
Bandaríkjunum hefur verið útbúið Developmental asset Pro -
sóley sesselja bender
112 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019