Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 34
„að fá að tala við hjúkrunarfræðing samdægurs en þurfa ekki
að bíða í tvær til þrjár vikur eftir viðtalstíma hjá lækni er stór-
kostleg bæting á þjónustu,“ segir unnur Þor móðs dóttir hjúkr-
unarstjóri.
Á heilsugæslunni á Selfossi hefur verið tekið upp nýtt fyrir-
komulag við afgreiðslu þjónustuþega, svokölluð teymis vinna.
Tilgangur teymisvinnu er að forgangsraða og dreifa verkefnum
á þann fagaðila sem er hæfastur eða best til þess fallinn að sinna
þeim hverju sinni. Tvö teymi eru í gangi og skiptast þau í rautt
og blátt teymi. Það stýrist af heimilislækni þjónustuþega hvoru
teyminu skjólstæðingur tilheyrir. unnur Þormóðsdóttir, hjúkr-
unarstjóri á heilsugæslu heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Sel-
fossi, er ein af þeim sem hefur stýrt teymisvinnunni og ber
ábyrgð á henni. hún svaraði nokkrum spurningum blaðsins.
Markmiðið að veita skilvirkari
þjónustu
„Teymisvinnan með símsvöruninni hófst formlega 1. febrúar
2019 en við byrjuðum að æfa okkur um miðjan janúar 2019.
Staðan var sú að notendur þjónustunnar höfðu oft þurft að bíða
vikum saman eftir tíma hjá lækni og yfirleitt lá ekki fyrir hvert
erindið var fyrr en í tímann var komið. Stundum kom þá í ljós
að viðkomandi erindi hefði átt að sinna fyrr eða þá að það var
þess eðlis að einhver annar gat sinnt því og þá mun fyrr. Þegar
biðin er löng leitar fólk meira í bráðaþjónustuúrræði sem er
dýrara fyrir alla og ekki fyrir minniháttar veikindi,“ segir
unnur. aðdragandi teymisvinnunnar er búinn að vera rúmlega
ár þar sem undirbúningshópur hefur verið að vinna að þessu
verkefni. „Starfsfólk heilsugæslunnar á Selfossi er alltaf að
reyna að finna út úr því hvernig við getum sinnt þörfum íbúa
betur og veitt skilvirkari þjónustu og því var ákveðið að prófa
aðra aðferð en þekkt er,“ bætir unnur við.
nýja fyrirkomulagið byggist á teymisvinnu þar sem skjól -
stæðingur á sinn heimilislækni en tilheyrir teymi lækna og
hjúkrunarfræðinga sem hjálpast að við að aðstoða þá sem leita
á heilsugæslustöðina hratt og örugglega. Teymin eru tvö og eru
allir íbúar, sem heyra undir heilsugæslustöðina á Selfossi, í öðru
hvoru teyminu, segir unnur.
Langur biðlisti mun heyra sögunni til
unnur var beðin um að lýsa því hvernig teymisvinnan virkar.
„Þegar hringt er inn og óskað eftir tíma hjá lækni er skjól -
stæðingur settur á símatíma hjá hjúkrunarfræðingum sem
hringja til baka og fara yfir tilefnið. Sum erindi má leysa í
gegnum síma eða hjá hjúkrunarfræðingi á heilsugæslu stöðinni.
Þeir sem þurfa að hitta lækni fá tíma eftir að vandamálinu hefur
verið forgangsraðað eftir alvarleika, það getur verið samdægurs
eða seinna ef ekki liggur eins mikið á og verður þá hægt eftir
atvikum að undirbúa það viðtal með því að panta t.d. viðeig-
andi rannsóknir. Með þessu móti teljum við okkur nýta betur
þá breidd sem fagfólk okkar býr yfir til að leysa í sameiningu
mál skjólstæðinga heilsugæslustöðvar Selfoss. Langur biðtími
mun þá heyra sögunni til ef tilefnið er aðkallandi og má ekki
bíða, ásamt því að undirbúningur verður betri og afgreiðsla á
rannsóknarniðurstöðum verður skilvirkari.“
allir hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslu stöð inni
á Selfossi koma að teymisvinnunni. inn í teymið fléttast svo
starfskraftar sjúkraliða, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, iðju þjálfa
auk annarra sérfræðinga þegar við á.
Þegar unnur var spurð hvort heilsugæslan á Selfossi hefði
sótt fyrirmynd af teymisvinnunni eitthvað annað kom fram að
leitað hefði verið eftir upplýsingum á ýmsum stöðum og
skoðað hafi verið verklag hjá stöðvunum í grafarvogi, Efstaleiti
og á húsavík. „Einnig hefur verið horft til verklags erlendis eins
og í Svíþjóð. Enginn vinnur þetta eins og við ger um þetta. En
auðvitað byggist hugmyndin á mörgum þátt um sem við að -
lögum svo að okkar,“ segir hún.
„Okkur finnst þetta koma vel út en þetta er aðeins meiri
vinna en við bjuggumst við. allir fá samtal við hjúkrunarfræð-
ing sem getur leyst úr stórum hluta þeirra tilfella sem koma til
okkar,“ segir unnur aðspurð hvernig nýja teymisvinnan hefur
komið út að mati hennar og starfsfólksins.
34 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019
Heilsugæslan á Selfossi — Teymisvinna virkar vel
Magnús Hlynur Hreiðarsson
Ferill teymisvinnunnar á heilsugæslustöð Selfoss