Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 68
og umbótastörf. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í
notkun sérhæfðra klínískra aðferða við upplýsingaöflun og í
mati á líkamlegu og sálfélagslegu ástandi sjúklinga. upplýsinga-
tækni og sérfræðingar sem leiðtogar eru einnig viðfangsefni
námskeiðsins.
Í Hjúkrun á sérsviði II eru meginmarkmiðin að nemendur
tileinki sér þekkingu um hjúkrun sem starfsmiðaða fræði grein
og beiti henni við útfærslur á gagnreyndum aðferðum eða
þjónustuformum sem ætlað er að sinna flóknum og sértækum
þörfum skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra. nemendur fá
þjálfun í ákvarðanatöku, framkvæmd og mat á sértækum hjúkr -
unarmeðferðarformum eða þjónustu fyrir tiltekinn skjól -
stæðingahóp á sérsviði eða þjálfa sig í innleiðingu á sértækum
hjúkrunarmeðferðarformum á sérsviði. Leiðtogahæfni, sjálf -
stæði í vinnubrögðum og samvinna við aðra er ígrunduð á
nám skeiðinu.
Á námskeiðunum er leitast við að beita fjölþættum kennslu -
aðferðum sem auka bæði þekkingu og færni nemenda. Sérstak-
lega er unnið með efri stig þekkingar samkvæmt flokk unar-
fræði Bloom (armstrong, Bloom’s taxo nomy). kennslu aðferðir
miða að því að þjálfa nemendur til að takast á við margþætt
störf sérfræðinga og gerð er krafa um virka þátttöku nemenda
í námskeiðinu. Í töflu 1 má sjá dæmi um innihald og kennslu -
aðferðir í sérfræðinámi hjúkrunarfræðinga við hjúkrunar -
fræðideild háskóla Íslands.
Sú þekking og færni sem nemendur í ofangreindum sér -
fræði námskeiðunum hafa tileinkað sér og beitt, einkum á
Landspítala–háskólasjúkrahúsi, hefur haft áhrif á framþróun
hjúkrunar á spítalanum. Þetta á ekki síst við eftir að starfsnám
til sérfræðiviðurkenningar hófst á spítalanum en þar gefst
hjúkrunarfræðingum færi á að þróa hugmyndir sínar áfram og
hrinda þeim í framkvæmd. Má sem dæmi nefna þróun á þjón-
ustu við taugasjúklinga, krabbameinssjúka og börn með gigt-
sjúkdóma og hægðatregðu sem hlotið hefur verðskuldaða
at hygli. námið hefur þannig gefið nemendum traustan grunn
til að þróa sig áfram innan síns sér sviðs.
Að lokum
heilbrigðisþjónustan tekur sífelldum breytingum. Þróun í
lyfjum, tækniframfarir og síðast en ekki síst aukin þekking
hefur gert það að verkum að sjúkdómar sem áður drógu fólk
til dauða eru nú læknanlegir eða hafa þróast yfir í að vera lang-
vinnir sjúkdómar. ævilengd hefur og aukist í takt við bætta
heilbrigðisþjónustu og almenn lífskjör. hjúkrunarfræðingar
vinna á öllum sviðum heilbrigðiskerfisins og menntun þeirra
þarf að undirbúa þá fyrir krefjandi og fjölbreytt starf. Mennt-
unin þarf jafnframt að undirbúa hjúkrunarfræðinga til að þróa
nýjungar og stuðla að framþróun í heilbrigðisþjónustunni. Vax-
andi þörf er fyrir sérfræðinga í hjúkrun hér á landi sem og er-
sigríður zoëga og helga jónsdóttir
68 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019
Tafla 1. Dæmi um kennsluhætti í klínísku meistaranámi
Kennsluhættir Hvernig Hæfni
Virk þátttaka nemenda nemendur fá tilfelli sem þeim er ætlað að hefur yfirgripsmikla þekkingu á námsefninu.
leysa og miðla til samnemenda. nemendur greinir upplýsingar um tilfelli og samþættir.
sjá um að kenna ákveðna þætti í líkams- Metur líkamlegt og andlegt ástand sjúklings
skoðun. og tengir við þekkingu í líffærafræði, líf -
nemendur meta frammistöðu hver annars. eðlis fræði og hjúkrunarfræði.
Miðlar þekkingu og kínískum upplýsingum
til samnemenda.
Vinnur með öðrum.
Metur frammistöðu annarra.
klínísk þjálfun í líkamsmati nemendur þjálfa sig í skoðun sjúklinga Beitir þekkingu við raunaðstæður.
undir leiðsögn deildarlækna á vettvangi. Miðlar upplýsingum og niðurstöðum skoð -
nemendur skila skýrslu til kennara um unar til hjúkrunarfræðinga og annarra fag-
niðurstöðu skoðunar. aðila.
klínískt nám með sérfræðingum í hjúkrun nemendur fylgja sérfræðingum í hjúkrun greinir störf sérfræðinga og leggur mat á
og fá innsýn inn í störf þeirra. nemendur hvernig þau fara saman við þekkingu úr efni
skila skýrslu um athuganir sínar og hug- námskeiðs.
leiðingar í tengslum við klíníska námið.
innleiðing hjúkrunarmeðferðar nemendur prófa meðferðarheild sem þeir Beitir þekkingu um sérhæft viðfangsefni.
hafa þróað, veita hana og meta árangur í Samþættir flókin þekkingaratriði.
klínísku umhverfi. Veitir sérhæfða hjúkrunarmeðferð.
Setur fram nýjungar í meðferð og stýrir breyt-
ingum.
Metur árangur af hjúkrun.