Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 80

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 80
Útdráttur Tilgangur. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvað kveikti á árásargjarnri hegðun sjúklinga á geðdeildum og hvaða aðferðum starfsfólk beitti til að koma í veg fyrir hana. Aðferð. um var að ræða eigindlega rannsókn þar sem stuðst var við aðferðafræði grundaðrar kenningar. Viðtöl voru við níu einstaklinga sem starfa við hjúkrunarstörf á geðdeildum Landspítala, þrjá karl- menn og sex konur. Meginflokkur hugtaka var greindur og undir- flokkar. Niðurstöður. helsta áhyggjuefni viðmælenda var hið ófyrirséða, ann- ars vegar að sjúklingar gætu á hvaða tímapunkti sem er sýnt árásar- gjarna hegðun og hins vegar að sjúklingar eða starfsmenn meiddust ef til átaka kæmi. Viðmælendur nefndu nokkrar aðferðir til að fyrir- byggja árásargjarna hegðun eða draga úr líkum á henni: að starfsfólk væri í líkamlegu og andlegu jafnvægi, að draga þyri úr vinnuálagi starfsmanna, starfsmenn þyru að læra að róa sjúklinga, þeir þyru að kunna að afstýra aukinni spennu hjá sjúklingum, vinna vel saman og stjórna umhverfinu. Ályktun. Þó aldrei verði hægt að koma alveg í veg fyrir árásargjarna hegðun sjúklinga á geðdeildum eru ýmsar leiðir sem starfsfólk getur farið til að draga úr líkum á að hún eigi sér stað. Lykilorð: árásargjörn hegðun, grunduð kenning, hið ófyrirséða. Inngangur Árásargjörn hegðun gagnvart starfsfólki er orðin vandamál víða á sjúkrahúsum um allan heim og er starfsfólki hættara við oeldi á ákveðnum sviðum innan sjúkrastofnana en öðrum (Bickes o.fl., 2017; hahn o.fl., 2012; Wei o.fl., 2016). Árásargjörn hegðun er íþyngjandi fyrir starfsfólk, hefur áhrif á heilsu þess og stuðlar að óánægju í starfi, kvíða, arveru frá vinnu og löngun til að hætta störfum eða fá flutning á aðrar deildir (Borgne o.fl., 2015; Shier o.fl., 2018; Yang o.fl., 2012). Þá getur aukinn rekstrarkostnaður fylgt aðgerðum til að takast á við árásargjarna hegðun (flood o.fl., 2008; hahn o.fl., 2008). Oast eru gerendur sjúklingar og aðstandendur þeirra. Árásargjörn hegðun gagnvart samstarfsfólki er þó einnig þekkt (hahn o.fl., 2008). Þó margt hafi verið gert á undanförnum árum til að leita leiða með gagnreyndri þekkingu til að draga úr árásargjarnri hegðun eru ástæður hennar bæði flóknar og ólíkar (Mavandandi o.fl., 2016). Má þar nefna óánægju með meðferð, langan biðtíma, erfiðleika með að ná tali af lækni, út- skriarferlið, frelsisskerðingu, sjúkdómsástand, ágreining á milli sjúklinga og starfsfólks og regluverk á deildum (farrell og Shafiei, 2012; hahn o.fl., 2008; kumar o.fl., 2016). algengast er á sjúkrahúsum að starfsfólk geðdeilda, slysa- og bráðadeilda og öldrunardeilda verði fyrir árásargjarnri hegðun. Oeldi á sér þó stað í einu eða öðru formi á fleiri deildum spítala (Pan o.fl., 2015). rannsóknir sýna að allt að 94% hjúkrunarfræðinga og starfsfólks undir þeirra stjórn verður fyrir árásargjarnri hegðun af hálfu sjúklinga og ættingja þeirra. aðrar starfsstéttir, eins og læknar, félagsráðgjafar, sálfræð - ingar, ljósmæður, geislafræðingar og iðjuþjálfar, verða einnig fyrir árásargjarnri hegðun bæði af hálfu samstarfsfólks og skjólstæðinga (farrell og Shafiei, 2012; hahn o.fl., 2008; kumar o.fl., 2016; Shier o.fl., 2018). Á geðdeildum hefur á umliðnum árum mikil vinna verið lögð í að leita leiða til að draga úr árásargjarnri hegðun sjúk- linga. Árásargjörn hegðun sjúklinga gagnvart starfsfólki leiðir o til þess að sjúklingurinn er beittur þvingunum sem geta ha neikvæð áhrif á sjúklinginn, á meðferðarsamband við sjúkling- inn og á starfsfólkið (isobel og Edwards, 2016). um leið og 80 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 jón Snorrason, sérfræðingur í geðhjúkrun, geðsviði Landspítalans guðrún úlildur grímsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, geðsviði Landspítalans Hið ófyrirséða — fyrirbyggjandi aðgerðir gegn oeldi á geðdeildum Nýjungar: Álag á starfsfólk og vanlíðan gerir því erfiðara fyrir að meta líkur á árásargjarnri hegðun sjúklinga og koma í veg fyrir hana. Hagnýting: niðurstöðurnar má hagnýta í fræðslu og á nám- skeiðum fyrir starfsfólk á geðdeildum og öðrum deildum þar sem starfsfólk verður fyrir árásargjarnri hegðun. Þekking: Starfsfólk þarf að fá fræðslu og þjálfun í að meta og bregðast við æsingi og spennu sjúklinga. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: hjúkrunarfræðingar geta nýtt sér niðurstöðurnar við umbætur í hjúkrun árásargjarnra sjúklinga. Hagnýting rannsóknarniðurstaðna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.