Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 44
Móðuramma mín er hjúkrunarfræðingur. Þegar ég var lítil fékk ég stundum að fylgja henni eftir í vinnunni, elta hana eftir endalausum göngum Borgarspítalans, hinkra inni á kaffistofu á meðan hún sinnti einhverju sem var ekki endilega við hæfi barna og dást í hljóði að fumleysi hennar og kjarki þegar hún sprautaði einhvern í hand- legginn eða skipti um umbúðir á ljótu sári. af öllum sem ég hef haft persónuleg kynni af nálgast hún það mest að vera einhvers konar stríðshetja. Í heilahimnubólgufaraldrinum fyrir 40 árum fór hún grátandi heim úr vinnunni eftir að smábörn dóu í fangi hennar. hún hefur glímt við bakverki allt sitt líf eftir að hún nýútskrifuð færði hjálparlaust til þungan sjúkling. Þegar hún talaði um starfið sitt átti minna lífsreynt fólk það til að biðjast vægðar; það þoldi vart að heyra um það sem hún varð vitni að upp á hvern dag, helst brosandi og hughreystandi aðra. Samt lét hún eftir sér að tala mikið um starfið vegna þess að hjúkrun var líf hennar og köllun. hjúkrunarfræðingur var það sem hún gerði og það sem hún var. Eftir að ævistarfinu lauk er ég ekki frá því að hún hafi fengið snert af stríðsfrétta- mannaveiki. En það er þegar fyrrverandi stríðsfréttaritarar verða sinnulausir og áhuga- litlir um daglegt líf vegna þess að hversdagurinn er heldur rislágur og óraunverulegur í samanburði við lífið á vígstöðvunum. En ég get vel skilið hvers vegna hún og fleiri hlýddu kallinu og menntuðu sig til að sinna þessu starfi. fátt er göfugra en að sinna sjúkum: lina þjáningar, halda lífinu í fólki og hjálpa því aftur til heilsu. Í samanburði við starf hjúkrunarfræðingsins virðast flest önnur störf fremur léttvæg. Þannig er það bara; með fullri virðingu fyrir öðrum störfum og með skilningi á að tilurð, viðhald og endurnýjun samfélaga veltur á því að ólíkt fólk komi saman og taki sér ólíka hluti fyrir hendur. Mannkynið er svo mögnuð dýrategund katrín Oddsdóttir, lögfræðingur, stjórnarskrárfrömuður og mannvinur með meiru, komst vel að orði þegar hún sagði eitthvað á þá leið að mannkynið væri svo mögnuð dýrategund vegna þess að þegar einhver slasast eða veikist kemur bíll með sírenur og færir í öruggt skjól. Ég er því hjartanlega sammála. Þetta er stór hluti af fegurð mann- skepnunnar. Þegar ég eða dóttir mín eða einhver í fjölskyldunni veikist og við erum óviss um framhaldið hringjum við á næstu heilsugæslu og fáum samband við hjúkrunarfræðing. Þegar ég tala við hjúkrunarfræðing finnst mér ég einmitt komin í öruggt skjól. reynsla mín af ráðleggingum og viðbrögðum ykkar er alfarið góð. Mín tilfinning er sú að virðing og þakklæti fólks almennt fyrir framlagi hjúkrunar- fræðinga séu algerð og svo sjálfsögð að það telji varla þörf á að hafa um það fleiri orð. 44 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 Opið bréf til hjúkrunarfræðinga Guðrún Eva Mínervudóttir Guðrún Eva Mínervudóttir með dóttur sinni Mínervu Marteinsdóttur. Mynd- ina tók Marteinn Þórsson. „En ég get vel skilið hvers vegna hún og fleiri hlýddu kallinu og menntuðu sig til að sinna þessu starfi. Fátt er göfugra en að sinna sjúkum: lina þjáningar, halda lífinu í fólki og hjálpa því aftur til heilsu. Í samanburði við starf hjúkrunarfræðingsins virðast flest önnur störf fremur léttvæg.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.