Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 63
Gæði náms og reglur um nám í
hjúkrunarfræði á Íslandi
Samkvæmt flokkun Shanghai Academic Ranking of World Uni-
versities (ARWU) (shanghairanking.com/index.html) rað að ist
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands í 100. til 150. sæti af öllu
hjúkrunarfræðinámi sem samtökin skoða um heim allan og
hefur náð einna lengst á þeim lista af öllum greinum Háskóla
Íslands (Herdís Sveinsdóttir, 2018). Kennarar og stjórnendur við
Hjúkrunarfræðideild hafa sett sér það markmið að verða með
þeim 100 bestu og bjóða áfram upp á framúrskarandi nám í
hjúkrunarfræði sem uppfyllir alþjóðlegar kröfur og þjónar ís-
lensku samfélagi. Allar ákvarðanir um nám og námsleiðir taka
mið af því að allir nemendur fái framúrskarandi menntun.
Nám í hjúkrunarfræði tekur mið af 3. gr. reglugerðar 512/
2013 um menntun, réttindi og skyldur hjúkrunarfræðinga og
skilyrði til að hljóta starfsleyfi, en þar er kveðið á um skilyrði
fyrir veitingu starfsleyfis. Þar kemur fram að menntunin skuli
uppfylla skilyrði tilskipunar 2005/36/EB um viðurkenningu á
faglegri menntun og hæfi (Directive 2005/36/EC).
Í 31. grein tilskipunarinnar (bls. 19) er kveðið á um lág-
markslengd námsins, fræðilega og klíníska, og um efnislegt
innihald námsins og hvar klínískt nám skuli fara fram (viðauki
5.2.1., bls. 90). Lágmarkslengd klíníska námsins, skilgreint sem
bein samskipti við heilbrigða eða sjúka einstaklinga, er 2300
stundir. Nemendur sem stunda nám í hjúkrunarfræði geta ekki
lokið þessum klínísku stundum innan hefðbundins háskólaárs.
Þeir þurfa því að ljúka sem samsvarar fjórum mánuðum í klín-
ísku starfi undir handleiðslu hjúkrunarfræðings samhliða námi.
Þarna er horft til þess að nemendur nýti sumrin til að afla sér
þessarar reynslu eða að námi loknu.
Í grein 31.5. (bls. 20) tilskipunarinnar stendur m.a. um klín-
íska þjálfun að hún skuli fara fram á sjúkrahúsum, í heilsugæslu
eða á öðrum vettvangi þar sem nemandinn er í beinum sam-
skiptum við sjúklinga. Á vettvangi lærir nemandinn í samstarfi
við aðra að skipuleggja, veita og meta heildstæða hjúkrun með
hliðsjón af þeirri þekkingu og hæfni sem hann hefur öðlast í
fræðilegu námi. Klíníska kennslan er á ábyrgð hjúkrunarkenn-
ara og er veitt í samstarfi við og með aðstoð hjúkrunarfræðinga.
Nemandinn skal ekki einungis læra að vinna í teymi heldur
jafnframt að stýra teyminu og skipuleggja hjúkrunarmeðferð,
þar með talið heilbrigðisfræðslu til einstaklinga og hópa. Evr-
ópusamtök hjúkrunarfræðinga (European Federation of Nurs -
es, EFN) hafa unnið leiðarvísi um innleiðingu tilskipunar innar
í mismunandi löndum (EFN, 2015) og hefur sá leiðarvísir verið
þýddur á íslensku og er til hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Um uppbyggingu og þróun klínískrar kennslu á Íslandi
er áhugasömum bent á tvær tiltölulega nýjar greinar um námið
(Helga Jónsdóttir o.fl., 2013; Sveinsdóttir o.fl., 2019).
Þá stendur í tilskipuninni að nemendur skuli fá klíníska
kennslu í hjúkrun á ýmsum sviðum hjúkrunar m.a. bráða -
hjúkr un, nýbura- og barnahjúkrun, mæðravernd, heilsugæslu,
hjúkrun sjúklinga sem fara í almennar eða sérhæfðar skurð -
aðgerðir og sjúklinga sem þarfnast almennrar eða sérhæfðrar
hjúkrunar vegna sjúkdóma sinna.
Skipulag náms, inntökuskilyrði
og fjöldi nemenda
Allt skipulag náms í hjúkrunarfræði tekur mið af ofangreindu.
Það sem takmarkar fjölda nemenda eru námspláss og þá sér-
staklega á þeim vettvangi sem nefndur er að ofan. Klínískt nám
í þeirri námsleið sem hér er til umfjöllunar mun að miklu leyti
fara fram á tímum þegar hefðbundið nám er þar ekki, en eng-
inn mun útskrifast með BS-próf í hjúkrunarfræði nema hafa
uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru í tilskipuninni.
Við skipulag námsleiðarinnar hefur engum efnisþáttum
verið sleppt en hins vegar hefur tekist að þjappa saman því efni
sem námið tekur til. Námsleiðin er skipulögð sem tveggja ára
nám, 11 mánuðir hvort ár, eða 22 mánuðir alls. Jafnframt þurfa
nemendur að bæta við sig klínískum námsstundum sem nema
allt að fjórum mánuðum til að uppfylla viðmið tilskipunarinnar
um lengd klínísks náms.
Inntökuskilyrði er að nemandi hafi lokið BA-, BS- eða BEd-
prófi með lágmarkseinkunninni 6,5. Hann skal jafnframt hafa
lokið að lágmarki 40 einingum samtals í undirstöðugreinum
hjúkrunar, þ.e. aðferðafræði/tölfræði, félags-, sálfræði- og líf -
fræði greinum. Allir nemendur fá metið lokaverkefni úr fyrra
námi og valeiningar sem eru í núverandi námsskrá BS-náms í
hjúkrunarfræði. Námsmatsnefnd Hjúkrunarfræði deildar mun
meta námskeið sem nemendur leggja fram inn í námið.
Forsendur fyrir því að námsleiðin fari af stað er að 15 nem-
endur skrái sig til náms. Hámarksfjöldi nemanda er hins vegar
20. Verði umsækjendur fleiri verður ákveðnum reglum fylgt
við val á inntöku þeirra.
Lokaorð
Í dag er óljóst hversu margir nemendur munu sækja um náms-
leiðina. Ekki hefur farið fram formleg könnun á því hver áhugi
á þessu námi er, en sterkar vísbendingar eru um að hann sé til
staðar. Þá er vilji fyrir því meðal ráðamanna að leitað sé leiða
til að bjóða fólki með háskólapróf upp á möguleika til að skipta
um starfsvettvang og ljúka öðru háskólaprófi á styttri tíma en
hefðbundið nám tekur, í fagi sem er krefjandi en jafnframt þar
sem vantar fólk til starfa. Styttri tími þýðir að námið er samfellt
og fellur vel að kröfum nútímans hér á landi með hliðsjón af
sams konar þróun í Evrópu um það hvernig námi skuli háttað.
Við sem störfum við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
göngum inn í nýja tíma full bjartsýni um að þessi tilraun, sem
hefst haustið 2020, verði til góðs.
sértæk námsleið til bs-prófs við hjúkrunarfræðideild háskóla íslands
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 63
Námsleiðin er skipulögð sem tveggja ára nám,
11 mánuðir hvort ár, eða 22 mánuðir alls. Jafn-
framt þurfa nemendur að bæta við sig klínískum
námsstundum sem nema allt að fjórum mánuð -
um til að uppfylla viðmið tilskipunarinnar um
lengd klínísks náms.