Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 49
Sameign, séreign, tilgreind séreign og samspil þessara réttinda við almanna- tryggingar gera almenn- ingi erfitt að átta sig á réttindum sínum. Vinna ætti markvisst að því að einfalda kerfið. Harpa er doktor í verkfræði og tók fyrst kvenna við stöðu framkvæmdastjóra LSR. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Harpa hefur starfað á fjár-málamarkaði í ellefu ár; í viðskiptabönkum, Seðla- bankanum og nú sem fram- kvæmdastjóri LSR. „Ég hef verið á einhvers konar ferðalagi, úr viðskiptabanka á fallandi fæti fór ég í Seðlabankann, hringamiðju fjármálamarkaðsins, og starfaði við áhugaverð við- fangsefni eins og uppbyggingu fjármálakerfisins eftir hrun og ýmsar greiningar í tengslum við afnám fjármagnshafta, en þegar starf framkvæmdastjóra LSR var auglýst síðastliðið vor fannst mér kjörið að bjóða fram þekkingu mína og reynslu á öðrum vett- vangi og læra eitthvað nýtt því samhliða,“ segir Harpa. Konur í forystu hjá mörgum íslenskum lífeyrissjóðum Mikil breyting hefur orðið á kynja- hlutfalli stjórnenda lífeyrissjóða á Íslandi á stuttum tíma en síðustu áratugi hefur lífeyrissjóðunum að mestu verið stýrt af karlmönnum. Harpa tók fyrst kvenna við stöðu framkvæmdastjóra LSR í lok síðasta sumars og á þeim tíma var Unnur Pétursdóttir formaður stjórnar. „Það er auðvitað skrýtið að hugsa til þess að það skuli ekki vera fyrr en á hundraðasta starfsári LSR sem kona verður framkvæmdastjóri sjóðsins í fyrsta sinn. Þetta er jákvætt og það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá þróun síðustu ára þar sem konum í æðstu stöðum hjá lífeyrissjóðum hefur fjölgað hratt. Íslenskir lífeyrissjóðir eru umfangsmiklir fjárfestar og því mikið hreyfiafl í samfélaginu og mér finnst skipta miklu máli að stefnt sé að því að jafna kynjahlutföll í æðstu stöðum þeirra,“ segir Harpa. Ábyrgar fjárfestingar LSR hefur sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar. „Með ábyrgum fjárfestingum er átt við að litið sé til umhverfis- mála, samfélagslegra þátta og stjórnarhátta við mat, ákvörðun og eftirfylgni fjárfestinga LSR. Umhverfismál lúta meðal ann- ars að loftslagsbreytingum og mengun. Samfélagslegir þættir, eins og vinnuaðstæður, mann- réttindi og jafnrétti skipta máli og að lokum er litið til stjórnarhátta en þar undir falla þættir eins og hagsmunaárekstrar, samsetning stjórna og annað. Með ábyrgri fjárfestingastefnu getur sjóðurinn haft jákvæð áhrif á samfélagið í heild sinni,“ upplýsir Harpa. Hún segir eðli starfsemi lífeyris- sjóða að hugsa til framtíðar. „Lífeyrissjóðir taka við fé sjóð- félaga í dag og greiða út áratugum síðar. Það er því rökrétt að huga að öllum þáttum í því samhengi, og líta til þess hvernig umhverfið og samfélagið verður á þeim tíma þegar lífeyrir er greiddur út, því þessir þættir geta haft veruleg áhrif á lífsgæði. Þetta hangir því allt saman,“ segir Harpa. „Við sjáum samhljóm í framan- greindu hjá þeirri kynslóð sem er að koma á vinnumarkaðinn á næstu árum. Sú kynslóð leggur mikla áherslu á að vinnustaðurinn sé samfélagslega ábyrgur.“ Margar áskoranir í fjárfestingarumhverfinu Starfsemi lífeyrissjóða felst einkum í þremur þáttum: Að taka á móti iðgjöldum, ávaxta fé sjóð- félaga og greiða lífeyri. „Með lækkandi vöxtum og hækkandi lífaldri standa lífeyris- sjóðir frammi fyrir áskorunum sem gæti þurft að bregðast við. Flestir lífeyrissjóðir hafa náð góðri ávöxtun undanfarið en með við- varandi lágum vöxtum er hætt við að ávöxtun lækki sem kann að leiða til þess að endurskoða þurfi lífeyrissjóðakerfið að einhverju leyti. Þetta gæti falist í því að skoða hvort hækka þurfi inngreiðslur, lækka útgreiðslur, hækka líf- Finnst skemmtilegt að læra eitthvað nýtt Harpa Jónsdóttir er fyrsta konan til að gegna stöðu fram- kvæmdastjóra í 100 ára sögu LSR, Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins. Hún segir lífeyrissjóði geta haft jákvæð áhrif á samfélagið með fjárfestingarstefnu sinni. eyrisaldur eða fara blandaða leið,“ útskýrir Harpa. „Við þess konar stefnumótun er mikilvægt að vanda til verka og stilla upp mismunandi sviðs- myndum með það að markmiði að taka vandaða og vel ígrundaða ákvörðun. LSR vill gjarnan leggja sitt af mörkum í slíkri vinnu.“ Margir kostir við full­ fjármagnað lífeyriskerfi Ísland er eitt örfárra ríkja í heim- inum með fullfjármagnað lífeyris- kerfi og að mestu leyti samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. „Í því felst að hver kynslóð safnar í sjóð fyrir sig í stað þess að velta kostnaði við lífeyrisgreiðslur yfir á komandi kynslóðir. Margar þjóðir með gegnumstreymiskerfi glíma við vanda vegna fólks- fækkunar. Gegnumstreymiskerfi virkar þannig að engin sjóðsöfnun á sér stað heldur er lífeyrir fjár- magnaður með skatttekjum. Það er því fólk á vinnumarkaði sem fjármagnar lífeyri þeirra sem eru á eftirlaunum,“ útskýrir Harpa. Þetta gangi ágætlega ef fólks- fjöldi sé nokkuð stöðugur eða fari vaxandi. „Við aðstæður fólksfækkunar, eins og við erum að horfa upp á núna, er erfitt að halda slíku kerfi gangandi þar sem lífeyrisþegum fjölgar og fólki á vinnumarkaði fækkar. Fullfjármagnað kerfi er laust við þessa áhættu og að auki óháð þeim pólitísku ákvörðunum sem óhjákvæmilegar eru þegar lífeyrir er fjármagnaður með skatt- tekjum,“ segir Harpa. Einföldun lífeyriskerfisins Að sögn Hörpu er lífeyriskerfið orðið óþarflega flókið. „Sameign, séreign, tilgreind séreign og samspil þessara rétt- inda við almannatryggingar gera almenningi erfitt að átta sig á réttindum sínum. Vinna ætti markvisst að því að einfalda kerfið með það að markmiði að auðvelda fólki heildaryfirsýn til þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir um hvernig það vill haga sínum starfs- lokum. Við slíka stefnumótandi vinnu þurfa lífeyrissjóðirnir að koma að borðinu því þeir þekkja kerfið og sjóðfélaga sína,“ segir Harpa. Spennandi tímar fram undan Harpa er í eðli sínu fróðleiksfús. Hún á að baki langt nám með doktorspróf í verkfræði sem krefst mikils aga og vilja til að leita nýrra lausna. „Á tímum fjórðu iðnbyltingar- innar, með tæknina í fyrirrúmi, er slíkt gott veganesti. Fram undan eru mörg spennandi tækifæri til að nýta stafrænar lausnir í starfsemi sjóðsins, sjóðfélögum til hagsbóta með aukinni sjálfvirkni og einn- ig til góðs fyrir umhverfið með minni pappírsnotkun. Hið sama má segja varðandi nýja hugsun í fjárfestingum með samfélags- lega ábyrgð að leiðarljósi en LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins og sem slíkur getur sjóðurinn haft áhrif,“ segir Harpa. LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, er að Engjateigi 11. Sími 510 6100. Sjá nánar á lsr.is. KYNNINGARBLAÐ 27 F I M MT U DAG U R 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 KONUR Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.