Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 84
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
JÚ, TÍÐARANDINN,
HÁSKINN Í NÁTT-
ÚRUNNI, HAMFARAHLÝNUNIN
GERIR ÞAÐ AÐ VERKUM AÐ NÚ
VERÐA ALLIR AÐ SNÚA BÖKUM
SAMAN.
Guðmundur Steingrímsson
POLKI EN LÍKA
SUÐRÆNT OG SEIÐ-
ANDI BALKANBÚGÍ, ROKK OG
DISKÓ. SEM SAGT ALLUR
FJANDINN.
Halldór Gylfason
Hl j ó m s v e i t i r n a r Sk á r ren ek ker t og Geirfuglarnir hafa drottnað yfir polkadansgólfum í sl e n sk r a s a m-
komuhúsa svo lengi að þær voru
skipaðar ungum mönnum þegar
samkeppnin byrjaði.
Eftir áratuga viðkvæmt ógnar-
jafnvægi dregur nú til tíðinda þegar
þeir eru skyndilega orðnir sáttfúsir,
miðaldra karlpungar og til í að telja
í fyrsta skipti saman í „útdauða tón-
list í takt við tímann“ eins og Geir-
fuglinn Halldór Gylfason kýs að
kalla það.
„Gætið að því að Skárren ekkert
og Geirfuglarnir hafi haldið polkan-
um lifandi með böllum úti á landi,“
bætir Guðmundur Steingrímsson,
harmóníkuleikari Skárren ekkert,
við svo ábúðarfullur að ætla mætti
að hann talaði enn úr ræðustól
Alþingis.
„Geirfuglarnir voru á Austur-
landi síðasta sumar og Skárren
ekkert hefur spilað árlega í áratug
í Flatey og svo upp á síðkastið líka
á Flateyri. En núna kemur polkinn
til höfuðborgarinnar með ærlegu
bóndadagsballi í Iðnó,“ heldur
Guðmundur áfram og beinir orðum
sínum til húsbænda og karla:
„Testósterón, hrútspungar, lopa-
peysur og brennivín. Upp með stíg-
vélin, þrammaðu af stað og láttu sjá
þig!“
Feðraveldi smeðraveldi
En af hverju núna og hvers vegna
velja Geirfuglarnir og Skárren ekk-
ert bóndadaginn til þess að sameina
krafta sína með upphrópunum um
testó, brennivín, lopa og stígvél?
Hefur kannski feðraveldið marserað
við polka í gegnum tíðina?
„Feðraveldi smeðraveldi,“ svarar
Guðmundur ákveðinn. „Af og frá.
Polkinn er taktfastur, gengur hreint
til verks en er líka auðmjúkur og
fullur virðingar. Eins og bóndi. Við
segjum á þessum degi: Bjóðið bónd-
anum á ball. Ekki bara húsbónd-
anum heldur líka bóndanum inni í
ykkur, bæði konum og körlum. Allir
eru bændur inn við beinið. Nú á sá
bóndi skilið skrall. Það þarf að leyfa
honum smá.“
Þar fyrir utan segir Guðmundur
beinlínis greina ákall eftir polka
í tíðarandanum. „Og hvers vegna
sameinumst við núna í polkanum?
Jú, tíðarandinn, háskinn í nátt-
úrunni, hamfarahlýnunin gerir
það að verkum að nú verða allir að
snúa bökum saman. Nikkan er von.
Polkinn sameinar.“
Jafnstórir og Reagan/Gorbatsjev
„Þetta er útdauð tónlist en í takt við
tímann,“ bætir Halldór við þegar
hann nær orðinu af Guðmundi. „Við
viljum líka endurvekja ballið, ball-
stemninguna sem hefur vikið fyrir
pöbbum og matarboðum.“
„Við sjáum engan tilgang í frekari
skærum,“ heldur Guðmundur áfram
í þeim sáttatóni sem hann segir að
muni einkenna samkomuna í Iðnó.
„Við í polkanum tölum aldrei mikið
en það sem við segjum er alltaf
merkilegt og það er ekki víst að allir
átti sig á hversu stór viðburður þetta
er í polkasenunni á Íslandi. Þetta er
jafnstórt og Höfði-86. Reagan og
Gorbatsjev.“
„Einmitt. Polki, en líka suðrænt
og seiðandi balkanbúgí, rokk og
diskó. Sem sagt allur fjandinn.
Geirfuglarnir geta varla beðið. Við
hlökkum svakalega til enda er fátt
ánægjulegra en fullt dansgólf,“
skýtur Halldór inn en skilur eftir
smugu fyrir Guðmund: „Jú, við
erum líka afskaplega suðrænir á
köflum. Og slavneskir jafnvel. Allt
diskó hjá okkur endar hins vegar
alltaf í polka. Það bara gerist.“
Sjaldséður Geirfugl
„Við erum líka að bjóða Frey Eyjólfs-
son velkominn heim eftir margra
ára dvöl í útlöndum. Hann er gjör-
samlega að farast úr eftirvæntingu,“
segir Halldór þegar hann telur upp
fagnaðarefnin og bendir á að eitt-
hvað óvænt gæti gerst og menn jafn-
vel stokkið á milli hljómsveita.
„Við Skárren ekkert menn erum
að springa úr eftirvæntingu, þótt
við látum auðvitað lítið á því bera.
Halda verður ró sinni. Sveitirnar
hafa aldrei spilað saman áður og
þetta eru því mikil tímamót. Skárr-
en ekkert byrjar. Svo Geirfuglar. Svo
kannski allir saman. Hver veit?“
Svarið við þessari og fleiri spurn-
ingum fást í Iðnó að kvöldi bónda-
dagsins 24. janúar en húsið verður
opnað klukkan 22 og ballið hefst
klukkustund síðar.
toti@frettabladid.is
Samstöðupolki og
suðrænir þorratónar
Stórveldin á íslensku polkasenunni fagna bóndadeginum með
slíku tímamótaballi að harmóníkuleikarinn Guðmundur Stein-
grímsson finnur helst hliðstæðu í leiðtogafundinum í Höfða 1986.
Polkahetjur sameinaðar á besta aldri en Guðmundur Steingrímsson hafnar nýjum útreikningum um að fólk nái lág-
punkti lífsins 47,2 ára gamalt. „Kjaftæði, segi ég. Hver heldur ball á lágpunkti lífsins?“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
Dagskráin
á Hringbraut
Magnús Geir í
Mannamáli
Magnús Geir Þórðarson, nýráðinn
þjóðleikhússtjóri er gestur Sigmundar
Ernis í Mannamáli í kvöld kl. 20:00
og ræðir af hispursleysi um viðskilnaðinn
við RÚV, farsælan leikhúsferil, ótrúleg
æskuár, sviðsbakteríuna – og ástina sem
hann fann að lokum, en hún færði
honum veglegan fjölskyldupakka.