Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Stofnun
hálendisþjóð-
garðs er
baráttumál
Vinstri
grænna og
allir náttúru-
verndar-
sinnar hljóta
að styðja það.
Samstarf við
Kína fellur
ekki að stöðu
Íslands vegna
einræðis-
stefnu kín-
verja og
vanvirðingar
gagnvart
mannrétt-
indum.
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
Stofnun hálendisþjóðgarðs er meðal áherslu-mála í stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Fram-sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þarna er um að ræða mál sem Vinstri grænum er sérlega annt um meðan áhugi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er í lágmarki.
Nú þegar Vinstri græn vilja gera alvöru úr stofnun
hálendisþjóðgarðs kemur ekki á óvart að stór hluti
Sjálfstæðismanna vill ekki kenna sig við málið. Í
stjórnarsamstarfi verða Sjálfstæðismenn yfirleitt
alltaf jafn hissa þegar þeir komast að því að samstarfs-
flokki þeirra er full alvara með að koma í framkvæmd
áherslumálum sem áður hafði verið samið um. Innan
Sjálfstæðisflokks virðist litið svo á að ákvæðið um
hálendisþjóðgarð hafi verið sett þar til málamynda,
svona til að friða Vinstri græna, lokka þá til samstarfs
og drepa síðan málið með tuði og mótmælum.
Fagna ætti hugmynd um hálendisþjóðgarð sem yrði
sá stærsti í Evrópu. Á tímum þar sem mikilvægi nátt-
úruverndar ætti að vera öllum ljóst er sárt til þess að
vita að almenn ánægja skuli ekki ríkja með þessa hug-
mynd. Tilurð slíks hálendisþjóðgarðs væri til marks
um að Íslendingar vilji umfram allt vernda náttúru
sína. Um leið er dapurlegt að fylgjast með óánægjugóli
sveitarfélaga sem segja að verið sé að taka af þeim yfir-
ráð yfir svæðum. Fulltrúar þessara sveitarfélaga ættu
að hafa skynsemi til að fagna áformum um þjóðgarð
og standa þannig með náttúrunni. Verndun hennar
skiptir mun meira máli en yfirráð þeirra.
Stofnun hálendisþjóðgarðs er baráttumál Vinstri
grænna og allir náttúruverndarsinnar hljóta að
styðja það. Ekki kemur á óvart að andstaða sé við
málið meðal Sjálfstæðisflokksins, en þar á bæ hafa
menn sjaldnast sýnt í verki að þeim sé annt um
verndun náttúrunnar. Sjálfstæðismenn hafa yfirleitt
einungis áhuga á náttúrunni þegar kemur að því að
nýta hana til að græða peninga. Ekki þarf heldur að
furða sig á að hörð andstaða sé við málið meðal Mið-
flokksmanna, en engir þingmenn Alþingis leggjast
jafn ötullega á sveif með vondum málstað og einmitt
þeir. Það var nánast sjálfgefið að þingmaður þeirra,
formaður umhverfis- og skipulagsnefndar þingsins,
skyldi básúna þá skoðun sína að stofnun hálendis-
þjóðgarðs væri ótímabær. Ekki virðist sá þingmaður
mikið í takt við strauma samtímans, fremur en aðrir
þingmenn þess f lokks. Virkjanasinnar hvar í f lokki
sem þeir standa hafa síðan hópað sig saman og fara
með margtuggna möntru sína um nauðsyn virkjana á
hálendinu og yfirvofandi raforkuskort.
Því miður virðist ekki sérstök ástæða til bjartsýni
í þessu máli. Innan Sjálfstæðisflokks munu ýmsir
áhrifamenn beita sér gegn því. Vinstri græn munu
sjálfsagt taka því eins og hverju öðru hundsbiti og
barma sér í hljóði. Flokkurinn sem kennir sig við
umhverfisvernd er stöðugt að reka sig á að þetta ríkis-
stjórnarsamstarf er ekki að skila honum neinu nema
viðvarandi niðurlægingu. Samt hangir flokurinn
áfram í vonlausu samstarfi. Uppgjöf Vinstri grænna
virðist algjör.
Niðurlægingin
Fjórir tímar og tíu mínútur
Uppljóstrarinn og gleðipinninn
Björn Leví Gunnarsson heldur
áfram að gramsa í óhreina tau-
inu niðri á þingi. Í gær birti hann
öllum til gleði og uppörvunar
lista yfir alla þingmenn sem
hafa verið seinir á nefndarfund.
Hinn óháði Andrés Ingi Jónsson
á þar metið með því að vera
klukkutímum og tíu mínútum
of seinn á fund síðasta haust.
Vissulega geta verið margvís-
legar ástæður fyrir þessu, annar
fundur eða löng bið í klippingu.
Það er hins vegar mun skemmti-
legra að ímynda sér hvað hann
gæti hafa verið að gera. Hann
gæti hafa f logið til Björgvinjar
í Noregi og til baka. Eða horft á
kvikmyndina The Irishman og
einn þátt af Ófærð.
„Þeirra kona“
Áður en janúar er liðinn mun
þjóðin sitja uppi með nýjan
útvarpsstjóra. Listinn leyni-
legi hjá Capacent er orðinn
ansi stuttur og fer það að verða
stjórnarinnar, með starfandi
útvarpsstjóra sér við hlið, að
velja hver sé „þeirra kona“.
Ekki vilja þó allir stjórnar-
menn taka þátt. Heyrst hefur að
fulltrúi Sjálfstæðisf lokksins í
stjórninni sé að forðast ráðning-
arferlið með öllum hætti til að
koma í veg fyrir að sú sem verði
valin verði stimpluð sem full-
trúi Sjálfstæðisf lokksins. Hvort
það dugi mun svo sagan dæma
um. arib@frettabladid.is
Því eru mikil takmörk sett hvaða ráðstafanir eða aðgerðaleysi smáríki sem okkar getur stundað til að tryggja öryggi sitt í umróti og átökum
þjóða. Þá gildir öllu stærðin, hernaðarmáttur og
landlega. Þannig eru Danir og Norðmenn í þeim
skilningi smáþjóðir en eru þó tuttugufalt f leiri en
Íslendingar. Áhrif þeirra á ákvarðanir stórvelda
liggja efalítið í samstöðu Norðurlandanna fimm.
En er sá kostur slæmur? Varla fyrir okkur sem
eigum náið samstarf með öðrum þjóðum sem semja
sig að grunngildum lýðræðis og frelsis. Það ómiss-
andi samstarf er bæði tvíhliða og í beinu sambandi
við nákomin félagsríki innan alþjóðasamstarfsins í
Sameinuðu þjóðunum, OECD, NATO og Evrópusam-
bandinu í EES.
Samstarf við Kína fellur ekki að stöðu Íslands
vegna einræðisstefnu Kínverja og vanvirðingar gagn-
vart mannréttindum. Langt mál mætti gera þar úr
málefnum Norðurskautsins. Þar sækjast Kínverjar
eftir að hasla sér völl til varanlegrar viðveru sem og
hugsanlega á Íslandi og Noregi.
Vilji og geta til að uppfylla skyldur vegna aðildar
að alþjóðastofnunum er ójöfn. Því miður hefur
Ísland of oft verið neðarlega í þeim efnum og það
gengur ekki. Nú berast þær fregnir að Ísland hafi
ekki uppfyllt skyldur samþykkta OECD um eftir-
lit gegn peningaþvætti og hryðjuverkastarfsemi.
Alþjóðaumsvif hafa orðið umfangsmikil á ýmsum
sviðum í starfi okkar fámennu stjórnsýslu en þar
þarf að forgangsraða og fjölga með nýliðum, sem
ætti að þjálfa í viðkomandi alþjóðastofnunum. Í
þeim málum hefur utanríkisþjónustan að sjálf-
sögðu ríkum skyldum að gegna.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, gerir
þjóðaröryggi og stjórnsýslunni skil í nýlegri grein
í Fréttablaðinu. Þar spyr hann hvort íslenska ríkið
ætti með almennum hætti að fara með skipulags-
vald vegna helstu grunninnviða landsins á grund-
velli þjóðaröryggishagsmuna. Það hlýtur að vera
hagsmunamál okkar allra.
Fyrr og síðar
Einar
Benediktsson
fyrrverandi
sendiherra
2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN