Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 38
Ég er mjög stolt af
stöðu kvenna hjá
Verði enda er það ekki
algengt að konur séu í
meirihluta við stjórn og
framkvæmdastjórn
jafnstórra félaga.
Hún segir að kynjajafnrétti hafi lengi ríkt hjá Verði og að starfsfólk sé metið að
eigin verðleikum en ekki eftir kyni,
kynþætti eða öðrum álíka þáttum.
Kynjajafnrétti sé þannig greipt í
menningu félagsins. Árið 2014 varð
Vörður fyrsta fjármálafyrirtækið
á Íslandi til að fá jafnlaunavottun.
Félagið setti sér um leið skýra
stefnu, markmið og aðgerðar
áætlun til að tryggja jöfn tæki
færi og kjör starfsfólks af báðum
kynjum. Stjórn og framkvæmda
stjórn Varðar er til dæmis að meiri
hluta skipuð konum og hlutfall
millistjórnenda er nærri því að vera
jafnt. Fyrir það hlaut Vörður Jafn
vægisvog FKA á síðasta ári.
Þá var Vörður nýlega valið fyrir
tæki ársins í könnun VR og fékk
hæstu einkunn fyrir jafnrétti meðal
stórra fyrirtækja. „Ég er mjög stolt af
stöðu kvenna hjá Verði enda er það
ekki algengt að konur séu í meiri
hluta við stjórn og framkvæmda
stjórn jafnstórra félaga. Það sýnir
svo ekki verður um villst að Vörður
er framsækið fyrirtæki sem hefur
jafnrétti í öndvegi en situr ekki
fast í hefðbundnum kynjahlut
föllum, og það er virkilega ánægju
legt að starfa í slíku umhverfi. Það
sýnir líka að við erum tilbúin að
bregðast við kröfum nýrra tíma
hvort heldur sem er í innri starfsemi
okkar eða þjónustu við viðskipta
vini, og hjá þannig fyrirtæki er
virkilega skemmtilegt að vinna,“
segir Steinunn Hlíf og bætir við að
reynslan hafi kennt henni að fjöl
breytt samsetning mannauðs auki
víðsýni, kalli fram ólík sjónarhorn
og fjölbreytta nálgun verkefna, svo
ekki sé talað um almenna gleði og
ánægju.
Viðskiptavinir eiga val
um samskiptaleiðir
Hjá Verði er vönduð stefna forsenda
góðra verka og ákvarðana. Stefnan
varðar veginn að framtíðarsýn
félagsins sem er að vera besti kostur
viðskiptavina þegar kemur að
vörum og þjónustu á trygginga
markaði. Í stefnunni er horft til
ákveðinna lykilþátta en kjarni
hennar er að viðskiptavinurinn er
ávallt í öndvegi og hagsmunir hans
hafðir að leiðarljósi. Lögð er höfuð
áhersla á framúrskarandi góða
þjónustu, aukið þjónustuframboð
og fjölgun samskipta og sjálfsaf
greiðsluleiða, allt með það að mark
miði að gera þjónustuna þægilegri
fyrir viðskiptavini.
Steinunn Hlíf segir að markmiðið
til lengri tíma sé að viðskiptavinum
standi til boða mismunandi leiðir
til samskipta við félagið, hvenær
sem er sólarhringsins, allan ársins
hring, í gegnum þá miðla sem þeir
kjósa og á máli sem þeir skilja.
Það þýði að ekki sé eingöngu nóg
að hafa opið milli 916 heldur
verði viðskiptavinirnir að eiga
val. „Sumir vilja koma til okkar,
aðrir vilja hringja, senda tölvu
póst, eiga netspjall eða ganga frá
sínum málum í gegnum vefsíðuna
okkar. Allar þessar samskiptaleiðir
skipta viðskiptavini okkar máli
og hafa þær verið skilgreindar út
frá þörfum þeirra,“ segir Stein
unn Hlíf. Hún nefnir jafnframt að
Vörður sé í eigu Arion banka sem sé
leiðandi í þróun stafrænna lausna
á sínu sviði. Vörður ætli sér að auka
og styrkja samstarfið við Arion
banka og fylgja honum í að bjóða
viðskiptavinum framsæknar og
stafrænar lausnir. Samstarfið verði
þróað með það að leiðarljósi að
viðskiptavinir samstæðunnar njóti
þeirrar sérstöðu sem felst í sam
bandi félaganna.
Tryggingar á
örfáum mínútum
Vörður á og rekur stærsta líftrygg
ingafélag landsins og því er mikill
metnaður í að leiða þróun á þeim
markaði. Markvisst hefur verið
unnið að þróun stafrænna lausna
og þjónustu til samræmis við
óskir viðskiptavina. Steinunn Hlíf
segir að á síðasta ári hafi Vörður
boðið nýja stafræna lausn, fyrst
allra tryggingafélaga á Íslandi. Í
henni geti viðskiptavinir líf og
sjúk dómatryggt sig á nokkrum
mínútum. „Þjónustan hefur fengið
frábærar viðtökur. Hún er alsjálf
virk og gefur möguleika á því
að sækja um, ganga frá og virkja
tryggingar á nokkrum mínútum í
gegnum tölvu eða snjalltæki. Mark
miðið okkar er að fólk geti tryggt
sig hvar og hvenær sem er með sem
minnstri fyrirhöfn. Þess vegna
ákváðum við að nýta tæknina til
að einfalda aðgengi að þessum
mikilvægu tryggingum. Líf og
sjúkdómatryggingar eru mikilvægt
öryggisnet ef til veikinda kemur
eða sem öryggissjóður fyrir þá sem
eftir standa ef til fráfalls kemur.
Hingað til hefur verið nokkur fyrir
höfn að ganga frá slíkum trygg
ingum en nú höfum við einfaldað
það ferli öllum til hagsbóta,“ segir
Steinunn Hlíf.
Sköpum sameiginlegt
virði fyrir samfélagið
Í stefnu Varðar er skýrt kveðið á
um samfélagslega ábyrgð. „Vörður
starfar til hagsbóta fyrir viðskipta
vini sína, starfsfólk, eigendur og
samfélagið í heild og skapar þannig
sameiginlegt virði,“ segir Steinunn
Hlíf. Þannig einsetur Vörður sér í
allri starfsemi sinni að hafa jákvæð
áhrif á samfélagslega þróun og
umhverfið sem það starfar í. Rækt
við mannauðinn, ábyrg trygginga
starfsemi, ábyrgir stjórnunar
hættir, framlög og styrkir til góð
gerðar og félagssamtaka, rekstur
og þjónusta byggð á siðrænum
gildum, fræðsla, gegnsæi og virk
upplýsingagjöf er meðal kjarna
þátta í samfélagsstefnu Varðar.
Félagið ber jafnframt virðingu
fyrir náttúrunni og vinnur mark
visst að því að auka umhverfisvæna
þætti í allri starfsemi sinni og draga
úr neikvæðum áhrifum á umhverf
ið. Steinunn Hlíf segir að árið 2010
hafi Vörður sett umhverfismál inn
í stefnu sína og hafi síðan þá þróað
málaflokkinn yfir í heildstæða
stefnu um samfélagslega ábyrgð.
„Við erum til dæmis aðilar að Festu
og eitt af 104 fyrirtækjum sem und
irrituðu loftslagsyfirlýsingu Festu
og Reykjavíkurborgar árið 2016
þar sem fyrirtækin skuldbinda sig
til að draga úr losun gróðurhúsa
lofttegunda, minnka myndun
úrgangs og mæla árangurinn. Frá
árinu 2017 höfum við gefið árlega
út viðamikla sjálfbærniskýrslu þar
sem góða mynd er að fá á aðgerðir
okkar í samfélagsmálum. Í henni
kemur m.a. fram að Vörður vinnur
með heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun. Á
síðasta ári skiptum við til dæmis út
bílum félagsins og fengum nýja raf
magnsbíla til að minnka losun og
þá kolefnisjöfnuðum við rekstur
inn í samvinnu við Kolvið.“ Stein
unn segir jafnframt að samfélagsleg
ábyrgð og umhverfisvæn hegðun
sé til hagsbóta fyrir alla aðila, bæði
fyrirtækin sjálf, viðskiptavini og
starfsfólk.
Vörður er stefnulegt og
framsækið fyrirtæki
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu hjá
Verði tryggingum, hefur starfað hjá félaginu í 11 ár. Áður veitti hún forstöðu
árangurs- og verkefnastýringu hjá Landsbankanum. Steinunn er þátttakandi
í FKA og áhugasöm um jafnan hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum.
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Verði en fyrirtækið hlaut Jafnvægisvog FKA á síðasta ári og var nýverið valið fyrirtæki ársins í könnun VR.
16 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU