Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 37
Hildur Árnadóttir, stjórnar-formaður hjá Sjóvá, segir að áhersla fyrirtækisins sé ekki bara að jafna kynjahlutföll í yfirstjórn heldur í öllum lögum starfseminnar. „Áherslan á jafn- réttismálin birtist þannig fyrst í stjórninni og skilar sér síðan í allt fyrirtækið, það eru allir að róa í sömu átt. Þetta hefur haft mjög jákvæð áhrif á fyrirtækjamenn- inguna og einnig ánægju við- skiptavina,“ segir Hildur. Sjóvá skorar hæst allra fyrir- tækja á GEMMAQ-kvarðanum en þar fær fyrirtækið 10 í einkunn. „GEMMAQ er nýr kynjakvarði sem sýnilegur er á Keldunni en mælikvarðinn veitir fjárfestum og almenningi upplýsingar um stöðu kynjajafnréttis í leiðtogastöðum skráðra félaga. Við erum því mjög stolt af því að hafa náð hæstu ein- kunn þar, fyrst skráðra félaga á Íslandi,“ segir Hildur. Hjá Sjóvá er jafnt hlutfall karla og kvenna í framkvæmdastjórn og hlutfall kvenna í stjórn er 60%. „Auðvitað getur þessi tala verið f ljót að breytast en við erum með fimm manna stjórn og í henni eru alltaf ýmist tvær eða þrjár konur. Það er í takt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun, þar sem jafnrétti kynjanna er tilgreint sem sérstakt markmið. Þetta eru markmið sem bæði lönd og fyrirtæki og stofn- anir eru almennt að tileinka sér og vinna eftir,“ segir Hildur. Sjóvá hefur einsett sér að vera í fararbroddi í jafnréttismálum og er fyrirtækið þátttakandi og styrktaraðili að Jafnvægisvoginni sem er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi við FKA, forsætis- ráðuneytið og nokkur fyrirtæki. „Tilgangur verkefnisins er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi og að virkja íslenskt viðskiptalíf til þess að verða fyrirmynd annarra þjóða á þessu sviði,“ segir Hildur. „Ef við ætlum að ná einhverjum framförum almennt og ná að leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, bæði sem fyrirtæki og þjóð, þá verðum við að virkja allan mannauðinn.“ Hildur segir að fjölbreyttur mannauður hafi jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja, stuðli að betri ákvarðanatöku hvort sem það er í stjórn, framkvæmdastjórn eða annars staðar í starfseminni og skili aukinni verðmætasköpun. „Ég myndi segja að jafnrétti í stjórn dragi fram fjölbreyttara viðhorf og hjálpi til við að ná fram ígrundaðri ákvarðanatöku. Horft er á f leiri sjónarmið og jafnframt tel ég að við séum að skapa fyrir- myndir fyrir kynslóðirnar sem koma á eftir okkur,“ segir Hildur. Tókum ákvörðun um að komast á þennan stað „Við erum á frábærum og eftirsóknarverðum stað í jafn- réttismálunum og það er alls ekki tilviljun. Við tókum ákvörðun um að við vildum ná ákveðnum markmiðum og réðumst í mark- vissar aðgerðir til að ná þeim,“ segir Auður Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og ráð- gjafarsviðs. „Við fylgdum ákveðnu plani sem leiddi okkur í þessa átt, erum með skilgreinda mælikvarða sem við fylgjum vel eftir og rýnum reglu- lega. Árangurinn sem við sjáum af þessu er margþættur. Starfs- ánægja hjá okkur er mikil og við erum efst í ánægju viðskiptavina á tryggingamarkaði. Við fengum jafnlaunamerki velferðarráðu- neytisins 2017 og erum eitt fimm stærri Fyrirmyndarfyrirtækja VR.“ Auður segir að það sé ekki nóg að segjast bara ætla að ná þessum markmiðum í ræðum á tyllidög- um. „Þetta er vinna og ákvarðanir rétt eins og annað, og þannig næst raunverulegur árangur.“ „Ef ég tek dæmi, þá förum við yfir þær einingar þar sem við þurfum að ráða inn fólk og skoðum hvernig samsetningin er þar. Við skoðum hvað við þurfum til að efla þessa einingu enn frekar og skoðum hvort kynjahlutföllin séu rétt,“ segir Auður. „Það teljum við hafa skilað okkur miklum árangri. Eins og Hildur kom inn á þá er fjölbreytni hjá okkur og fjölbreytnin skapar betri ákvarðanir. Við erum með breiðari sýn á þau málefni sem koma inn til okkar. Viðskiptavina- hópur okkar er mjög fjölbreyttur. Með því að endurspegla það í okkar starfsfólki þá náum við betri árangri.“ Auður segir að fyrirtækið hafi góða sögu að segja og vilji miðla henni áfram til að vera hvatning fyrir önnur fyrirtæki. „Með því að vera hluti af hreyfiaflsverkefni FKA og forsætisráðuneytisins í Jafnvægisvogarverkefninu erum við að leggja okkar lóð á þær vogarskálar og viljum miðla okkar reynslu til annarra,“ segir hún. Aukið jafnrétti er allra hagur Sigríður Vala Halldórsdóttir, forstöðumaður hagdeildar, tekur undir að það skipti máli að hafa fjölbreyttan hóp af starfsfólki. Hún segir að ekki sé búið að gera síðasta ár upp, en að undanfarin ár hafi vátryggingareksturinn gengið mjög vel. „Þetta er árangur sem hefur náðst með samstilltu átaki fólks sem vinnur hér, vel samsettum hóp að mínu mati. Auðvitað er vátryggingarekstur- inn háður ýmsum utanaðkomandi aðstæðum, en við viljum meina, eins og Hildur og Auður komu inn á, að þegar fjölbreyttur hópur fólks kemur að málunum þá náum við betri árangri heldur en ella.“ „Starfsánægja er mjög mikil sem ég tel að sé styrkleikamerki fyrir fyrirtæki, sérstaklega þegar þau eru að sækjast eftir fólki í vinnu. Þú vilt fyrst og fremst vinna þar sem er starfsfólkið er ánægt en líka þar sem er hugað að jafnrétti fólks, enda tengist þetta auð- vitað. Maður finnur fyrir þessum áherslum vinnandi hér og það skiptir mjög miklu máli fyrir okkur starfsfólkið að finna að það eru jöfn tækifæri, hvort sem það eru konur eða karlar.“ Sigríður segir að starfsánægjan smiti út frá sér. Ánægt starfsfólk þýðir ánægðir viðskiptavinir. „Við höfum verið svo farsæl að vera efst í Ánægjuvoginni tvö ár í röð. Við viljum meina að þetta sé ekki tilviljun, þetta er árangur af þeirri vinnu sem við höfum verið í meðal annars í jafnréttismálum.“ Ánægt starfsfólk og ánægðir viðskiptavinir Karlotta Halldórsdóttir verkefna- stjóri forvarna segir að það sé óhætt að segja að það sé frábært að vinna hjá Sjóvá. „Við höfum lagt mikla áherslu á að það sé gaman í vinnunni og fólki líði vel. Við erum sem fyrr segir sannfærð um það að það sé fylgni á milli þess að vera með ánægt starfsfólk og ánægða viðskiptavini og við erum gott dæmi um það. Karlotta segir að þegar fyrir- tækið setji sér svona skýr mark- mið eins og það hefur gert síðustu ár þá fylgi starfsfólkið með. „Við höfum líka verið með mikið af átaksmánuðum á síðasta ári. Við höfum verið með stefnumiðuð þemu sem setja viðskiptavini í fyrsta sæti og allir taka þátt. Ég held það skipti miklu máli og bæti starfsandann ef allir geta lagt sitt af mörkum. Að öllum finnist sitt framlag skipta máli til að ná settu markmiði,“ segir Karlotta. „Það smitar líka út fyrir fyrir- tækið,“ bætir Auður við. „Okkur tekst að laða mjög gott og hæft fólk til okkar. Það er samkeppnis- forskot líka.“ Karlotta tekur undir þetta. „Þegar við erum með kynningar og fyrirlestra og segjum okkar sögu fáum við oft þó nokkrar starfsumsóknir í kjölfarið. Við finnum að fólki finnst eftir- sóknarvert að starfa hjá Sjóvá, á stað sem leggur mikið upp úr að jafnrétti milli kynja sé metið.“ Við erum á eftir- sóknarverðum stað í jafnréttismálunum og það er ekki tilviljun. Við tókum ákvörðun um að við vildum ná ákveðnum markmiðum og réðumst í aðgerðir til að ná þeim. Auður Daníelsdóttir Áhersla á jafnrétti skilar árangri Sjóvá leggur áherslu á jafnrétti innan fyrirtækisins og hefur sett sér skýr markmið hvað það varðar. Hlutfall kynja í stjórnum er mjög jafnt og starfsánægjan er með því mesta sem mælist. Þær Auður Daníelsdóttir, Karlotta Halldórsdóttir, Sigríður Vala Halldórsdóttir og Hildur Árnadóttir segja Sjóvá í fremstu röð í jafnréttismálum. KYNNINGARBLAÐ 15 F I M MT U DAG U R 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 KONUR Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.