Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 40
BYKO vill gera
jafnréttismálum
hátt undir höfði og erum
við komin vel á veg í
jafnlaunavottun. Konum
í ábyrgðarstörfum hefur
fjölgað mikið hjá fyrir-
tækinu á síðustu árum
og stefnan er að auka
þátttöku kvenna á sem
flestum sviðum.
Sigríður Gröndal
BYKO er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingavöru-markaði fyrir bæði fagmenn
og einstaklinga í framkvæmdahug.
BYKO er þátttakandi í jafnvægis-
vog FKA og 40 prósent af verslunar-
stjórum á smásölusviði eru konur,
sem er góður árangur í karllægum
heimi byggingavörumarkaðarins.
Fjórðungur af framkvæmdastjórn-
inni eru konur, þær eru 60 prósent
af stjórninni og fjórðungur af
stjórnendum á smásölu-, fagsölu-,
markaðs- og viðskiptaþróunar-
sviði.
Umhverfisvænar vörur
„BYKO er góður vinnustaður, sem
sést m.a. á því að starfsaldur er
langur og starfsánægja er mikil.
Það skilar sér í betri þjónustu til
viðskiptavina, sem við leggjum
mikla áherslu á,“ segir Sigríður
Gröndal, framkvæmdastjóri
vörustjórnunar- og markaðssviðs.
„BYKO vill gera jafnréttismálum
hátt undir höfði og erum við
komin vel á veg í jafnlaunavottun.
Konum í ábyrgðarstörfum hefur
fjölgað mikið hjá fyrirtækinu á
síðustu árum og stefnan er að auka
þátttöku kvenna á sem flestum
sviðum.
Við gerum okkur grein fyrir
ábyrgðinni sem hvílir á okkur
varðandi loftslagsmál og höfum
mótað metnaðarfulla og skýra
stefnu í umhverfismálum sem
mótar bæði daglega starfsemi
og framtíðarsýn fyrirtækisins,“
segir Sigríður. „Við höfum t.d. lagt
mikið upp úr því að vera í forystu
varðandi umhverfisvænar vörur og
bjóðum þær í öllum vöruflokkum.
Við tókum þátt í að byggja fyrsta
Svansvottaða húsið á Íslandi fyrir
fjórum árum, en þá hófum við að
leggja áherslu á að bjóða upp á
umhverfisvænar vörur.
Við höfum tekið þátt í öllum
Verk & vit sýningum frá upphafi
og verðum að sjálfsögðu með í ár,“
segir Sigríður. „Þangað koma 25
þúsund manns, svo sýningin er
mjög áhrifaríkur vettvangur til að
hitta fólk og kynna fyrirtækið. Við
höfum líka umhverfissjónarmið
að leiðarljósi í hönnun á básnum
okkar og endurnýtum hann sem
málningardeild í verslun okkar
eftir sýninguna.“
Umhverfisvænt hugarfar
„Vistvænt BYKO er hugtak sem
lýsir því hvernig við vinnum að
umhverfismálum í starfsemi
okkar og í samstarfi við aðra og
minnkum þannig stöðugt vist-
spor fyrirtækisins,“ segir Berglind
Ósk Ólafsdóttir, verkefnastjóri
umhverfismála. „BYKO tekur skýra
afstöðu í umhverfismálum og setur
sér markmið um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda, minnka
úrgang, mæla árangurinn og upp-
lýsa um stöðu mála.
Við leggjum áherslu á að
umhverfisvottanir komi frá óháð-
um aðilum og að umhverfismerkið
sé viðurkennt. Viðurkenndu
umhverfismerkin sem við leggjum
áherslu á eru Norræna umhverfis-
merkið Svanurinn, Evrópublómið
og Blái engillinn,“ segir Berglind.
„Þar að auki tilgreinum við þegar
vörurnar okkar koma úr sjálfbærri
skógrækt, en það þýðir að timbrið
sé ræktað samkvæmt ákveðnum
sjálfbærniviðmiðum.
Við leggjum einnig áherslu á
að minnka eigin kolefnisspor
og BYKO hefur kolefnisbundið
reksturinn undanfarin 30 ár með
skógrækt í eigin landi að Drumb-
oddsstöðum í Biskupstungum,“
útskýrir Berglind. „Eigendur og
starfsmenn BYKO fóru árlega að
gróðursetja við Drumboddsstaði
frá árinu 1987-2007 og hafa gróður-
sett um 130 þúsund tré. Í sumar
verður þessi hefð endurvakin, bæði
því hún vekur gleði og til að stuðla
að kolefnishlutlausum rekstri.
Þar að auki var plastburðar-
pokum skipt yfir í bréfpoka, við
reynum að lágmarka sóun og nú
flokka allar starfsstöðvar okkar
eftir umhverfis- og flokkunar-
handbók sem við gáfum út,“ segir
Berglind. „BYKO endurnýjaði líka
hluta af tækja- og bílaflota sínum
og skipti út jarðefnaeldsneyti
fyrir rafmagn. Við notum nú þrjá
rafmagnsbíla og 40 af 63 vinnu-
tækjum eru rafknúin. Við settum
upp fimm hleðslustöðvar fyrir
viðskiptavini við verslanir BYKO
í Breidd, Selfossi og á Akureyri og
sex hleðslustöðvar fyrir starfs-
menn. Við ætlum svo að setja upp
fleiri stöðvar á árinu þegar eftir-
spurnin eykst.
Við bjóðum starfsfólki okkar
líka upp á samgöngusamninga
til að hvetja það til að nota vist-
vænan samgöngumáta og um 10
prósent starfsfólks nýta sér þá, en
þeim fjölgar sífellt. Við fengum
einnig hjólavottun frá Hjólafærni
árið 2019, þannig að við bjóðum
starfsfólki okkar upp á læstar
hjólageymslur og búningsaðstöðu
og erum með hjólagrindur fyrir
viðskiptavini,“ segir Berglind. „Við
hvetjum okkar fólk líka til að taka
þátt í viðburðum sem tengjast
hreyfingu og heilbrigði, eins og t.d.
Hjólað í vinnuna og Lífshlaupið og
bjóðum upp á heilsufarsmælingar
og árlega líkamsræktarstyrki.
Í starfsfólki okkar búa gríðarlega
mikil verðmæti í formi þekkingar
sem hjálpar viðskiptavinum að
velja réttar vörur fyrir vistvænar
byggingar. Regluleg fræðsla er
líka mikilvægur liður í að stuðla
að jákvæðni og breyttum starfs-
háttum í þágu umhverfismála,“
segir Berglind. „Við erum reglulega
með umhverfisfræðslu fyrir starfs-
fólk okkar og fagaðila og kynnum
verktökum til dæmis vistvænar
byggingar og vistvænt vöruúrval.
Árið 2019 hélt BYKO líka svokall-
aðan Umhverfisdag í fyrsta sinn,
þar sem boðið var upp á vörukynn-
ingar og áhugaverða örfyrirlestra.
Hann verður haldinn aftur á vor-
mánuðum.“
Framtíðin er stafræn
Júlía Pálmadóttir Sighvats, for-
stöðumaður viðskiptaþróunar-
sviðs, segir að sviðið hafi tvo
megináhersluþætti, tæknileg
innviði og verkefnastofu. „Hlut-
verk tæknilegra innviða er að
tryggja að rekstrarumhverfi sé við
góða heilsu, sinna endurnýjun á
búnaði og koma að vali á viðskipta-
kerfum,“ segir Júlía. „Við erum líka
stöðugt að endurskoða og hagræða
rekstrarumhverfi til að vera undir-
búin fyrir tækninýjungar sem
ryðja sér til rúms í heildsölu- og
smásöluverslunum.“
Hlutverk verkefnastofu er svo
að sinna stefnumótandi verk-
efnum. „Fyrirtæki eins og BYKO,
sem leggur mikla áherslu á góða
þjónustu við viðskiptavini, þarf
að bjóða upp á aukna stafræna
þjónustu,“ segir Júlía. „Til þess
þurfa innviðir að styðja við slíka
þróun og í byrjun janúar á þessu
ári setti sviðið stórt verkefni í gang,
en þá var grunnkerfi BYKO skipt
út ásamt þremur tengdum kerfum,
en framkvæmdin er hornsteinn
þróunar á stafrænni þjónustu.
Það er mín skoðun að umhverfis-
mál og aukin þróun á stafrænni
þjónustu eigi sér mikla samleið, en
þar komum við inn á pappírslaus
viðskipti og bætta upplýsingagjöf
til viðskiptavina, til dæmis um
umhverfisvottun á vörum.
Tækniþróun í heildsölu- og
smávöruverslun er í örri þróun og
BYKO fylgist vel með,“ segir Júlía.
„Við erum spennt fyrir þeim tæki-
færum sem það gefur okkur til að
verða öflugri í stafrænni þjónustu.“
Gaman að sjá konum fjölga
Íris Sigtryggsdóttir er verslunar-
og rekstrarstjóri BYKO í Breidd,
sem er stærsta verslun BYKO, en
fyrirtækið rekur verslanir á fimm
stöðum.
„Þjónusta er okkar starf alla daga
og hér í Breiddinni starfa um það
bil 130 manns. Mannauðurinn er
lykilinn í mínu starfi og mikilvæg-
asti hlekkurinn í okkar þjónustu,“
segir Íris. „BYKO er í stöðugri
þróun og það er verulega gaman
að taka þátt í því. Tæknin er orðin
stór liður í umhverfi okkar og við
erum við stöðugt að bæta okkur
þar, bæði varðandi það sem snýr
að viðskiptavinum okkar og til að
hagræða í daglegum störfum.
Konum hefur fjölgað verulega
síðustu árin og vinnustaðurinn er
orðinn nokkuð blandaður,“ segir
Íris. „BYKO er frábær vinnustaður,
konur eiga svo sannarlega erindi
hingað og það er ánægjulegt að sjá
konum í stjórnunarstöðum fjölga.
Hér eru verulega spennandi og
fjölbreytt störf fyrir bæði konur
og karla, byggingamarkaðurinn er
í stöðugri þróun og verkefnin eru
krefjandi og skemmtileg.“
Konur í karllægu umhverfi
BYKO er fjölmennur og fjölbreyttur vinnustaður sem hentar konum og körlum. Konum hefur
fjölgað verulega síðustu ár og þær setja nú mark sitt á stefnu og rekstur BYKO á ýmsa vegu.
Sigríður Grön-
dal, fram-
kvæmdastjóri
vörustjórnunar-
og markaðs-
sviðs, Íris
Sigtryggsdóttir
verslunarstjóri,
Júlía Pálma-
dóttir Sighvats,
forstöðumaður
viðskipta-
þróunarsviðs,
og Berglind Ósk
Ólafsdóttir,
verkefnastjóri
umhverfismála.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTONB RINK
18 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU