Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 13
Háleit markmið um aukið traust, ríkara gegnsæi og vandaðri stjórnarhætti voru meiri háttar nýmæli við myndun núverandi ríkis- stjórnar. Margir höfðu trú á að Katrínu Jakobsdóttur myndi takast að brjóta blað í þessum efnum. Þetta voru ekki bara tóm orð því forsætisráðherra hefur vissulega reynt að gera fyrirheitin að veruleika. Þess sáust strax merki í umræðum um fyrstu stefnuræðuna í desember 2017. Þar sendi heilbrigðisráðherra afar sterk skilaboð í þessum anda um pólitísk kaflaskipti þegar hún boðaði „siðareglur, gagnsæi og opnara samtal milli f lokka út í samfélagið“. Markmiði um siðareglur, gegnsæi og opið samtal fórnað Í janúar 2020 situr heilbrigðisráðherra svo fund í læknaráði Landspítalans og mælist til þess að starfsfólk stofnunar- innar segi ekki fólkinu í landinu aðra sögu af ástandi mála þar innan dyra en samrýmist pólitískri túlkun hennar. Ráðherravaldinu er beitt í þessum til- gangi með hótun um að erfitt verði að styðja spítalann ef óþægilegar álykt- anir haldi áfram að berast á færibandi. Jafnframt er ráðherravaldinu beitt á þessum fundi til þess að fara fram á að læknarnir taki að sér að vera haukar í horni ráðherra í málsvörn fyrir þær pólitísku ákvarðanir sem teknar hafa verið við ríkisstjórnarborðið. Í þeim vönduðu stjórnarháttum sem Katrín Jakobsdóttir boðaði í upp- hafi sáu menn hins vegar fyrir sér að læknar væru í því samhengi haukar í horni skjólstæðinga sinna fremur en í pólitísku horni ráðherra. Læknaráðsræða heilbrigðisráð- herra var eins sterk andstæða og hugsast getur við það háleita markmið að valda straumhvörfum í stjórnar- háttum. Hún var ekki í samræmi við góða siði, henni var ekki ætlað að auka gegnsæi og hún var ekki þáttur í að opna samtalið út í samfélagið. Frá pólitísku sjónarhorni er áhuga- vert að velta því fyrir sér hvers vegna heilbrigðisráðherra kýs að fórna með svo afgerandi hætti þessu mikla og virðingarverða fyrirheiti um nýjan tíma í opinberri stjórnsýslu. Ganga má út frá því sem vísu að svo reyndur og öflugur stjórnmálamaður geri það ekki fyrir slysni og heldur ekki að ástæðulausu. „Vilji, þrek og kjarkur“ Nærtækast er að leita svara í saman- burði á fyrirheitum við stjórnarmynd- unina og veruleika dagsins. Í umræðum um fyrstu stefnuræðuna í desember 2017 sagði heilbrigðisráðherra að VG hefði „vilja, þrek og kjark“ og gæti leitt „þann björgunarleiðangur fyrir íslenskt samfélag sem þjóðin þyrfti svo mjög á að halda“. Dýrasta loforðið í þessari ræðu var að auka samneysluna. Við ríkis- stjórnarborðið hefur viljinn, þrekið og kjarkurinn svo leitt til þeirrar pólitísku niðurstöðu að það hlutfall útgjalda sem fer til samneyslu er óbreytt frá því sem áður var og á samkvæmt fjármála- álætlun að haldast óbreytt út allt næsta kjörtímabil. Í sömu ræðu sagði heilbrigðisráð- herra: „Við erum að bjarga heilbrigðis- kerfinu, menntakerfinu og samgöng- unum frá langvinnri vanrækslu og ásælni peningaaflanna í landinu.“ En hvernig hafa tölur um heilbrigðiskerfið breyst síðan þá? Við fyrstu skoðun lítur dæmið alls ekki illa út. Framlög til heilbrigðismála eru sem sagt 25% hærri í ár en 2017. Þetta er sú tala sem ráðherra vill tala um og stjórnarþingmönnum er sagt að endurtaka svo oft sem við verður komið. En við nánari rýni í tölur kemur í ljós að heildarútgjöld ríkisins á þessum tíma hafa hækkað um 28%. Það er sú hækkun sem þurfti til að halda sam- neysluhlutfallinu óbreyttu. En þetta þýðir að heilbrigðisútgjöldin hafa hækkað minna en heildin. Þetta er samanburður, sem ráðherra vill ekki tala um. Stjórnarþingmenn- irnir hafa reynst henni haukar í horni í því. En hún vill líka eiga læknana að sem hauka í horni til að fjalla ekki um þessa hlið málsins. Hliðstæður má finna í viðskiptalífinu Þessar tölur gefa ekki tilefni til þess að segja að heilbrigðisráðherra hafi staðið sig verr en forverarnir. En í ljósi þeirra stóru og miklu fyrirheita sem gefin voru í byrjun stjórnarsamstarfsins er aftur á móti skiljanlegt að ráðherranum finnist pólitískt óþægilegt að hafa ekki gert miklu betur en þeir. Það er enn verið að halda í horfinu ástandi, sem ráðherra sjálfur taldi í umræðu um fyrstu stefnuræðuna að „veruleg hætta stafaði af“. Það er þekkt úr viðskiptalífinu að stjórnendur fyrirtækja sem flogið hafa hátt grípa stundum til misjafnra meðala til að komast hjá erfiðu umtali þegar vindur snýst. Sennilega hefur heilbrigðisráðherra fundið sig í svipaðri stöðu. Þá var ákveðið að fórna mark- miðinu um siðareglur, gagnsæi og opið samtal til að freista þess að stöðva erfitt umtal um stöðu heilbrigðisþjónust- unnar. Þetta sýnist vera pólitískt baksvið læknaráðsræðunnar. En fyrir vikið gæti svo farið að bæði fyrirheitin rynnu út í sandinn áður en yfir lýkur. Pólitískt baksvið læknaráðsræðunnar Ganga má út frá því sem vísu að svo reyndur og öflugur stjórnmála- maður geri það ekki fyrir slysni og heldur ekki að ástæðu- lausu. AF KÖGUNARHÓLI Þorsteinn Pálsson HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Það er hvergi betri staður fyrir ölpóst en inni í Fréttablaðinu. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendinga lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst a orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.