Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 28
Ég veit ekkert
betra en að tengja
konur og koma þeim inn
á radarinn og læra af
þeim. Í starfinu felst að
vera límið og vængir
fyrir félagskonur, sem
mér finnst frábært.
Eitt besta fjárfestingartækifæri kvenna er að skrá sig í FKA,“ segir Andrea glöð í bragði og
bætir við að það sé mjög gefandi
að vera framkvæmdastjóri FKA.
„Dagarnir eru allavega í laginu en
hvert sem ég fer upplifi ég mikla
stemningu fyrir félaginu. Svo er ég
í rauninni að vinna, borða og lifa
gildin mín við að vera að stússast
í þessu þannig að dagarnir f ljúga
áfram. Bæði er margt að taka inn
en svo er bara gaman hjá okkur
og mikil lífsgæði fólgin í því að
vera að vinna með góðu fólki og
finna fyrir velvild og tilgangi með
því sem þú ert að gera. Oft finnst
mér ég vera að fá borgað fyrir að
vera að draga andann því ég er
svo lukkuleg. Það smitar síðan út
frá sér. Við vitum öll hvað það er
leiðinlegt þegar það er leiðinlegt
og mikilvægt að teflonhúða sig við
ákveðnar aðstæður.“
Andrea starfaði áður sem stjórn-
endaráðgjafi, framkvæmdastjóri
og mannauðsstjóri hjá RÚV þar
sem hún fór fyrir miklum breyt-
ingum í Efstaleitinu. Hún er með
MS-gráðu frá viðskipta- og hag-
fræðideild í mannauðsstjórnun,
BA-gráðu í félags- og kynjafræði og
hefur lokið MA-diplóma í jákvæðri
sálfræði. „Námskeiðablætið hefur
leitt mig út og suður, enda hefur oft
verið mikið að gera. Konur eru oft
mjög duglegar. Þær ættu kannski
að vera duglegar að hvíla sig líka,“
segir Andrea og glottir.
Það eru stór verkefni á borðinu
hjá FKA þessi misserin og nefnir
Andrea FKA Viðurkenningar-
hátíðina, Fjölmiðlaverkefni FKA
og RÚV og stefnumótunarvinnu
sem er á fullu. „Svo er það Sýni-
leikadagur FKA, markaðstorg
tækifæra, sem verður 28. mars.
Ég hvet allar félagskonur til að
kynna sér þann dag á heima-
síðunni og fylgjast vel með. Það er
líka gaman að segja frá því að það
hefur verið mjög mikil fjölgun í
félaginu síðustu vikurnar þannig
að það er nýliðamóttaka komin á
dagskrá í lok janúar. Ég veit ekkert
betra en að tengja konur og koma
þeim inn á radarinn og læra af
þeim. Í starfinu felst að vera límið
og vængir fyrir félagskonur, sem
mér finnst frábært,“ segir Andrea.
„Svo er þetta magnaða ár hafið
sem verður eitthvað stórkost-
legt. Stemningin er bara þannig
að hún er áþreifanleg og ég held
að árinu megi líkja við jakabyltu.
Akkúrat þannig móment þið vitið,
breytingar hvert sem litið er – og á
breytingaskeiði svitna konur. Það
er löngum vitað!“
FKA er límið og vængirnir
Andrea Róbertsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Félags kvenna í atvinnulífinu síðasta
haust. Hún segir tímann til að slæpast í stórum málaflokkum liðinn og telur að fræðsla,
samtal og ferskar nálganir séu lykillinn að því að tækla stærstu áskoranir samtímans.
Andrea segist
upplifa mikla og
góða stemningu
fyrir FKA og að
það hafi orðið
mikil fjölgun í
félaginu síðustu
vikurnar, enda
margt á teikni-
borðinu.
MYND/ÁSTA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Frá því að Raquelita tók við stjórnartaumunum hefur fyrirtækið gengið í gegnum
ýmsar breytingar og áherslan á
kjarnastarfsemina aukist. Raquel-
ita hafði enga reynslu í rekstri eða
stjórnun áður en henni var boðin
staða framkvæmdastjóra, einungis
mánuði eftir útskrift sem tölvunar-
fræðingur frá HR. Raquelita var þó
búin að vinna hjá Stokki í nokkur
ár sem prófari og verkefnastjóri.
„Ég vissi ekkert hvað ég var að
fara út í en þarna fékk ég frábært
tækifæri og þrátt fyrir reynsluleysi
ákvað ég að taka stöðuna og sé ekki
eftir því.
Starfsemin snýst um að þróa og
búa til öpp og höfum við yfir ára-
tuga reynslu og því mikinn þekk-
ingarbanka. Við erum leiðandi á
okkar sviði og höfum búið til öpp
fyrir marga viðskiptavini, eins og
Domino’s, Strætó, Lottó, Alfreð,
Aur og Iceland Travel, og fleiri
frábær fyrirtæki. Planið er að sækja
fram og stækka viðskiptahópinn
enn frekar, og fá tækifæri til að
kynnast enn fleiri fyrirtækjum.“
Hönnunarsprettir Stokks
„Hægt er að koma til okkar með
hugmynd og við tökum svokall-
aðan hönnunarsprett (e. design
sprint) með viðskiptavinum, sem
byggist á aðferðafræði frá Google.
Við tökum hugmynd á hvaða stigi
sem er og mótum hana, bætum,
þróum og prófum á fimm dögum.
Að því loknu skilum við af okkur
skýrslu og frumgerð sem viðskipta-
vinir geta svo unnið með áfram
og tekið þá upplýstari ákvarðanir.
Þegar við tökum hönnunarsprett
fyrir einstaklinga eða fyrirtæki
gefum við viðskiptavinum alla
okkar athygli í heila vinnuviku,“
segir Raquelita og bætir við að
þetta sé stíft ferli sem taki á en sé
um leið ótrúlega skemmtilegt.
Fjölbreytni
„Hugbúnaðarþróun er mjög
fjölbreytt starf, sérstaklega hjá
fyrirtæki eins og Stokki þar sem að
allir fá tækifæri til að hoppa á milli
mismunandi verkefna og prófa sig
áfram í nýjustu tólunum. Það sem
að ég tel að geri okkur einnig sterk
á okkar sviði er að við leggjum
okkur fram við að skilja hvernig
notendur haga sér þegar við
hönnum öppin okkar. Við skoðum
til dæmis notendahegðun og upp-
lifun út frá sálfræði- og félagslegum
þáttum, og byggjum allan grunn
út frá nánum samtölum við við-
skiptavini okkar. Við búum ekki
bara til lausnir, við búum til upp-
lifun,“ segir Raquelita að lokum.
Við búum til upplifun
Raquelita Rós Aguilar er framkvæmdastjóri hjá Stokki
Software, sem er leiðandi fyrirtæki í þróun á öppum.
„Við tökum hugmynd á hvaða stigi sem er og mótum hana, bætum, þróum
og prófum á fimm dögum,“ segir Raquelita. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vilt þú vera partur af hreyfiafli kvenna
í íslensku atvinnulífi?
Skráning á WWW.FKA.IS
6 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU