Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 64
Við erum búin að
leggja mikinn
metnað á síðustu árum í
allan innri strúktúr og
fagmennskan er orðin
miklu meiri en hún var
en fagmennska er fyrsta
gildi fyrirtækisins.
Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) veitti nýverið í fyrsta sinn viðurkenningu til fyrir-
tækja, sveitarfélaga og stofnana
fyrir að skara fram úr í jafn-
réttismálum á liðnu ári. Markmið
Jafnvægisvogarinnar er að auka
jafnvægi kynjanna í efstu lögum
stjórnunar sveitarstjórna, fyrir-
tækja og stofnana þar sem oftar
en ekki hefur hallað á konur. Tvö
sveitarfélög og 16 fyrirtæki fengu
viðurkenninguna að þessu sinni,
þar á meðal Íslandshótel sem er
jafnframt eina ferðaþjónustufyrir-
tækið sem hlaut viðurkenninguna.
„Það er heiður að fá þessa viður-
kenningu,“ segir Erna Dís Ingólfs-
dóttir, framkvæmdastjóri mann-
auðs- og gæðasviðs Íslandshótela.
„Okkur finnst mikilvægt að vera
fyrirmynd fyrir okkar atvinnu-
grein og almennt í atvinnulífinu.“
Hjá Íslandshótelum er meirihluti
starfsmanna konur. Ekki nóg með
það þá eru kynjahlutföll í stjórn-
unarstöðum fyrirtækisins nokkurn
veginn jöfn.
„Hótelstjórarnir okkar eru 65%
konur og deildarstjórarnir eru 51%
konur. Í framkvæmdastjórn er
kynjahlutfallið svo 40/60, en mark-
mið Jafnvægisvogarinnar fyrir árið
2027 er að það verði hlutfallið alls
staðar. Hlutfallið er mjög jafnt hjá
okkur og jafnvel aðeins fleiri konur
í stjórnunarstöðum, enda fleiri
konur sem vinna fyrir fyrirtækið.“
Allar raddir koma að borði
Erna Dís segist vera stolt fyrir hönd
Íslandshótela af að hafa fengið
viðurkenninguna. „Við stoppum
ekki hér. Stundum upplifum við
okkur lítil í stóra samhenginu
en þegar maður framkvæmir
breytingar í sínu nærumhverfi þá
hafa þær áhrif og veita öðrum inn-
blástur,“ segir hún. Erna segir viður-
kenninguna vera skref í rétta átt og
hrósar kröftugu starfi FKA við að
halda utan um tengslanet kvenna
í atvinnulífinu og hvetja til þess að
konur ráðist í stjórnendastöður.
Íslandshótel er með virka jafn-
réttisstefnu og starfrækir jafn-
réttisnefnd. Sömuleiðis hafa verið
stofnaðir faghópar innanhúss utan
um mismunandi deildir og verkefni
til að styrkja allar ákvarðanir sem
teknar eru hjá fyrirtækinu. „Þetta
eru lifandi hópar, starfsmenn koma
í og úr faghópunum þannig þeir eru
alltaf að breytast. Hlutverk faghóp-
anna er að allir séu með og fái sýn
frá fjölbreyttari hópum sem koma
með tillögur að breytingum og
nýjungum sem eru svo lagðar fyrir
framkvæmdastjórn. Þetta fyrir-
komulag hefur gengið gífurlega vel
hjá okkur. Við erum alltaf að reyna
að fá allar raddir að borðinu.“
Enn langt í land
Erna Dís byrjaði sjálf að vinna fyrir
fyrirtækið árið 2002. „Ég fór síðan
út í nám og kom aftur árið 2008.
Ég hef eiginlega alist upp í fyrir-
tækinu.“
Hún hefur tekið að sér mörg ólík
störf fyrir Íslandshótel. Til dæmis
hefur hún áður unnið sem hótel-
stjóri, deildarstjóri, starfsþróunar-
og gæðastjóri.
Erna Dís er því gott dæmi um þá
virku starfsþróun sem á sér stað hjá
Íslandshótelum og heillar marga
umsækjendur. „77% hótelstjóranna
hafa vaxið í starfi innanhúss hjá
okkur og 60% þeirra sem sitja í
framkvæmdastjórnum.“
Erna segir það vera spennandi að
vinna í þessu starfsumhverfi. „Það
er ótrúlega gaman. Umhverfið er
svo dýnamískt. Annars væri ég ekki
búin að vera hérna í mörg ár. Maður
lærir svo mikið á hverjum degi.
Það er líka alltaf gaman að sjá fleiri
konur við borðið í framkvæmda-
stjórn þó það sé enn langt í land.“
Starfsfólk af 47 þjóðernum
Á þeim tíma sem Erna Dís hefur
starfað fyrir Íslandshótel hefur
hún tekið eftir miklum breyt-
ingum í ferðaþjónustunni en þar
hefur verið gífurlegur vöxtur á
síðustu árum eins og margir vita.
„Við erum búin að leggja mikinn
metnað á síðustu árum í allan
innri strúktúr og fagmennskan er
orðin miklu meiri en hún var en
fagmennska er fyrsta gildi fyrir-
tækisins. Þetta er búið að breytast
mikið síðan ég byrjaði árið 2002 og
gaman að fylgjast með því. Það er
gott að vinna hjá fyrirtæki sem er
alltaf tilbúið að aðlagast, breytast
og styður frekari þróun í jafnréttis-
málum.“
Breytingar í átt að jafnrétti hjá
Íslandshótelum hafa leitt til þess
að hópurinn sem sækir um störf
hjá fyrirtækinu er fjölbreyttari.
Erna Dís segir að Íslandshótel
geti verið stolt af því að mælingar
sýni að það er nokkurn veginn
jafnt hlutfall karla og kvenna sem
sækir um stjórnendastöður og fólk
af mörgum ólíkum þjóðernum.
„Fólk sér að það er virk starfs-
þróun innan fyrirtækisins fyrir
alla starfshópa. Við erum mjög
stolt af því. Hjá Íslandshótelum eru
75% starfsmanna erlendir starfs-
menn, en allt í allt eru starfsmenn
fyrirtækisins af 47 mismunandi
þjóðernum.“
Jöfn laun fyrir alla hópa
„Þegar mest lætur eru rúmlega
þúsund manns sem vinna hjá
okkur. Því er mikilvægt að fjöl-
breyttur hópur kvenna og karla
af mismunandi þjóðernum komi
að ákvarðanatöku fyrirtækisins.
„Fyrir okkur er mikilvægt að hafa
hæft fólk sem kemur að ákvarð-
anatöku fyrir mjög fjölbreyttan
hóp starfsmanna og viðskiptavina.
Það eru ekki allir sem hafa sæti
við borðið en það er mikilvægt að
þeir sem þar sitja hafi þá hæfni og
skilning að sjá hluti út frá ólíkum
hópum og setji sig í spor annarra.
Með því að hafa fólk af mis-
munandi þjóðernum í stjórn-
endastöðum er enn frekar tryggt
að ákvarðanir hafi hagsmuni
hótelgesta að leiðarljósi sem koma
hvaðanæva að úr heiminum,“ segir
Erna Dís. „Það er helsti styrkleiki
fyrirtækisins.“
Íslandshótel fengu líka jafn-
launavottun á síðasta ári. Fyrir-
tækið stefnir ekki bara að jafnrétti
milli kynjanna heldur líka að jafn-
rétti ólíkra þjóðernishópa og hafði
þess vegna frumkvæði að því að
byrja að skipuleggja breytingar á
jafnlaunakerfinu svo að það taki til
f leiri hópa en karla og kvenna. „Ég
hefði persónulega viljað sjá jafn-
launavottunina taka strax til f leiri
hópa, eins og ólíkra þjóðernishópa.
Það þarf samt ekkert að stoppa
mann í að setja upp slíkt kerfi. Við
erum nú þegar byrjuð að vinna í
því. Það er mikilvægt fyrir okkur
að vera leiðandi í þessum málum
líka,“ segir hún.
Íslandshótel eiga og reka 17 hótel
um land allt. Þau eru Grand Hótel
Reykjavík, stærsta ráðstefnuhótel
landsins, Hótel Reykjavík Centrum
og 15 Fosshótel staðsett hringinn
í kringum landið. Auk þess er nýtt
glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í
byggingu við Lækjargötu .
Islandshotel.is
Jafnt kynjahlutfall stjórnenda
Íslandshótel eru eitt þeirra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2019.
Hótelin eru með virka jafnréttisstefnu og starfrækja jafnréttisnefnd. Þá eru faghópar starfandi.
Erna Dís segir Íslandshótel vera stolt af því að mælingar sýni nokkurn veginn jafnt hlutfall karla og kvenna sem sækja um stjórnendastöður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
42 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU