Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.01.2020, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 23.01.2020, Qupperneq 64
Við erum búin að leggja mikinn metnað á síðustu árum í allan innri strúktúr og fagmennskan er orðin miklu meiri en hún var en fagmennska er fyrsta gildi fyrirtækisins. Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) veitti nýverið í fyrsta sinn viðurkenningu til fyrir- tækja, sveitarfélaga og stofnana fyrir að skara fram úr í jafn- réttismálum á liðnu ári. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynjanna í efstu lögum stjórnunar sveitarstjórna, fyrir- tækja og stofnana þar sem oftar en ekki hefur hallað á konur. Tvö sveitarfélög og 16 fyrirtæki fengu viðurkenninguna að þessu sinni, þar á meðal Íslandshótel sem er jafnframt eina ferðaþjónustufyrir- tækið sem hlaut viðurkenninguna. „Það er heiður að fá þessa viður- kenningu,“ segir Erna Dís Ingólfs- dóttir, framkvæmdastjóri mann- auðs- og gæðasviðs Íslandshótela. „Okkur finnst mikilvægt að vera fyrirmynd fyrir okkar atvinnu- grein og almennt í atvinnulífinu.“ Hjá Íslandshótelum er meirihluti starfsmanna konur. Ekki nóg með það þá eru kynjahlutföll í stjórn- unarstöðum fyrirtækisins nokkurn veginn jöfn. „Hótelstjórarnir okkar eru 65% konur og deildarstjórarnir eru 51% konur. Í framkvæmdastjórn er kynjahlutfallið svo 40/60, en mark- mið Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2027 er að það verði hlutfallið alls staðar. Hlutfallið er mjög jafnt hjá okkur og jafnvel aðeins fleiri konur í stjórnunarstöðum, enda fleiri konur sem vinna fyrir fyrirtækið.“ Allar raddir koma að borði Erna Dís segist vera stolt fyrir hönd Íslandshótela af að hafa fengið viðurkenninguna. „Við stoppum ekki hér. Stundum upplifum við okkur lítil í stóra samhenginu en þegar maður framkvæmir breytingar í sínu nærumhverfi þá hafa þær áhrif og veita öðrum inn- blástur,“ segir hún. Erna segir viður- kenninguna vera skref í rétta átt og hrósar kröftugu starfi FKA við að halda utan um tengslanet kvenna í atvinnulífinu og hvetja til þess að konur ráðist í stjórnendastöður. Íslandshótel er með virka jafn- réttisstefnu og starfrækir jafn- réttisnefnd. Sömuleiðis hafa verið stofnaðir faghópar innanhúss utan um mismunandi deildir og verkefni til að styrkja allar ákvarðanir sem teknar eru hjá fyrirtækinu. „Þetta eru lifandi hópar, starfsmenn koma í og úr faghópunum þannig þeir eru alltaf að breytast. Hlutverk faghóp- anna er að allir séu með og fái sýn frá fjölbreyttari hópum sem koma með tillögur að breytingum og nýjungum sem eru svo lagðar fyrir framkvæmdastjórn. Þetta fyrir- komulag hefur gengið gífurlega vel hjá okkur. Við erum alltaf að reyna að fá allar raddir að borðinu.“ Enn langt í land Erna Dís byrjaði sjálf að vinna fyrir fyrirtækið árið 2002. „Ég fór síðan út í nám og kom aftur árið 2008. Ég hef eiginlega alist upp í fyrir- tækinu.“ Hún hefur tekið að sér mörg ólík störf fyrir Íslandshótel. Til dæmis hefur hún áður unnið sem hótel- stjóri, deildarstjóri, starfsþróunar- og gæðastjóri. Erna Dís er því gott dæmi um þá virku starfsþróun sem á sér stað hjá Íslandshótelum og heillar marga umsækjendur. „77% hótelstjóranna hafa vaxið í starfi innanhúss hjá okkur og 60% þeirra sem sitja í framkvæmdastjórnum.“ Erna segir það vera spennandi að vinna í þessu starfsumhverfi. „Það er ótrúlega gaman. Umhverfið er svo dýnamískt. Annars væri ég ekki búin að vera hérna í mörg ár. Maður lærir svo mikið á hverjum degi. Það er líka alltaf gaman að sjá fleiri konur við borðið í framkvæmda- stjórn þó það sé enn langt í land.“ Starfsfólk af 47 þjóðernum Á þeim tíma sem Erna Dís hefur starfað fyrir Íslandshótel hefur hún tekið eftir miklum breyt- ingum í ferðaþjónustunni en þar hefur verið gífurlegur vöxtur á síðustu árum eins og margir vita. „Við erum búin að leggja mikinn metnað á síðustu árum í allan innri strúktúr og fagmennskan er orðin miklu meiri en hún var en fagmennska er fyrsta gildi fyrir- tækisins. Þetta er búið að breytast mikið síðan ég byrjaði árið 2002 og gaman að fylgjast með því. Það er gott að vinna hjá fyrirtæki sem er alltaf tilbúið að aðlagast, breytast og styður frekari þróun í jafnréttis- málum.“ Breytingar í átt að jafnrétti hjá Íslandshótelum hafa leitt til þess að hópurinn sem sækir um störf hjá fyrirtækinu er fjölbreyttari. Erna Dís segir að Íslandshótel geti verið stolt af því að mælingar sýni að það er nokkurn veginn jafnt hlutfall karla og kvenna sem sækir um stjórnendastöður og fólk af mörgum ólíkum þjóðernum. „Fólk sér að það er virk starfs- þróun innan fyrirtækisins fyrir alla starfshópa. Við erum mjög stolt af því. Hjá Íslandshótelum eru 75% starfsmanna erlendir starfs- menn, en allt í allt eru starfsmenn fyrirtækisins af 47 mismunandi þjóðernum.“ Jöfn laun fyrir alla hópa „Þegar mest lætur eru rúmlega þúsund manns sem vinna hjá okkur. Því er mikilvægt að fjöl- breyttur hópur kvenna og karla af mismunandi þjóðernum komi að ákvarðanatöku fyrirtækisins. „Fyrir okkur er mikilvægt að hafa hæft fólk sem kemur að ákvarð- anatöku fyrir mjög fjölbreyttan hóp starfsmanna og viðskiptavina. Það eru ekki allir sem hafa sæti við borðið en það er mikilvægt að þeir sem þar sitja hafi þá hæfni og skilning að sjá hluti út frá ólíkum hópum og setji sig í spor annarra. Með því að hafa fólk af mis- munandi þjóðernum í stjórn- endastöðum er enn frekar tryggt að ákvarðanir hafi hagsmuni hótelgesta að leiðarljósi sem koma hvaðanæva að úr heiminum,“ segir Erna Dís. „Það er helsti styrkleiki fyrirtækisins.“ Íslandshótel fengu líka jafn- launavottun á síðasta ári. Fyrir- tækið stefnir ekki bara að jafnrétti milli kynjanna heldur líka að jafn- rétti ólíkra þjóðernishópa og hafði þess vegna frumkvæði að því að byrja að skipuleggja breytingar á jafnlaunakerfinu svo að það taki til f leiri hópa en karla og kvenna. „Ég hefði persónulega viljað sjá jafn- launavottunina taka strax til f leiri hópa, eins og ólíkra þjóðernishópa. Það þarf samt ekkert að stoppa mann í að setja upp slíkt kerfi. Við erum nú þegar byrjuð að vinna í því. Það er mikilvægt fyrir okkur að vera leiðandi í þessum málum líka,“ segir hún. Íslandshótel eiga og reka 17 hótel um land allt. Þau eru Grand Hótel Reykjavík, stærsta ráðstefnuhótel landsins, Hótel Reykjavík Centrum og 15 Fosshótel staðsett hringinn í kringum landið. Auk þess er nýtt glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í byggingu við Lækjargötu . Islandshotel.is Jafnt kynjahlutfall stjórnenda Íslandshótel eru eitt þeirra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2019. Hótelin eru með virka jafnréttisstefnu og starfrækja jafnréttisnefnd. Þá eru faghópar starfandi. Erna Dís segir Íslandshótel vera stolt af því að mælingar sýni nokkurn veginn jafnt hlutfall karla og kvenna sem sækja um stjórnendastöður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 42 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.