Skessuhorn - 29.05.2019, Side 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 22. tbl. 23. árg. 29. maí 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Bjartmar, Hannesson bóndi á
Norðurreykjum í Borgarfirði, var
að líkindum fyrstur íslenskra bænda
að hefja slátt þetta sumarið. Hann
sló fyrstu spildu sumarsins síðast-
liðinn laugardagsmorgun, 25. maí,
fjóra hektara umhverfis bæinn. Síð-
ar sama dag byrjuðu nokkrir sunn-
lenskir bændur slátt, enda töluvert
um að menn haldi sig við þá gömlu
trú að allt gangi í haginn með vísan
í; „laugardagur til lukku.“ Eins og
sést á meðfylgjandi mynd var prýði-
leg spretta á heimatúninu. Grasið
þurrkaði hann í rúllur og var bú-
inn að pakka þessari úrvalstöðu fyr-
ir hádegi á mánudaginn. Hann á þó
ekki von á að gefa kúnum af þess-
ari fyrstu uppskeru sumarsins strax,
ætlar að koma fyrst í þær fyrning-
unum frá síðasta sumri sem eru rýr-
ari að gæðum. Bjartmar segist hafa
slegið sama tún 20. júní í fyrra og
aldrei fengið þurrk í verkun fyrstu
uppskerunnar, enda var síðasta
sumar með eindæmum vætusamt og
erfitt til heyskapar. Bjartmar kveðst
aðspurður reikna með að með sama
áframhaldi í sprettu og réttum veð-
urskilyrðum geti hann hafið slátt af
fullum þunga um næstu helgi. Fast-
lega má búast við að fleiri bændur
á Vesturlandi séu nú ýmist byrjaðir
slátt eða undirbúi hann.
„Ég man ekki eftir svona góðu
sprettuvori frá því við Kolla [Kol-
brún Sveinsdóttir, innsk. blm.]
hófum búskap árið 1975. Held að
þetta sé besta vor og sumarkoma
sem ég og jafnvel mun eldri menn
muna. Þegar svona árar fyllast
menn bjartsýni. Konan hafði það
á orði í morgun að þetta væri jafn-
vel ánægjulegri tíma en sjálf jólin,“
sagði Bjartmar Hannesson léttur
í bragði þegar rætt var við hann á
laugardagsmorgun.
mm/ Ljósm. Kolbrún Sveinsdóttir.
Sláttur hófst í
Borgarfirði mánuði
fyrr en í meðaláriSjómannadagurinn er
ætíð fyrsta sunnudag í
júní og er því framund-
an með tilheyrandi há-
tíðarhöldum. Af því til-
efni fylgir með Skessu-
horni í dag 32 síðna
sérblað tileinkað sjó-
mönnum. Rætt er við
núverandi og fyrrver-
andi sjómenn víðsveg-
ar um Vesturland og
ýmsa fleiri sem tengj-
ast fiskveiðum og
-vinnslu. Sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
óskar Skessuhorn
innilega til hamingju
með daginn. mm
Sjómannadagsblað fylgir
Skessuhorni í dag
Opið daglega
10:00-18:00
Kjöt,
Fiskur og
Grænmeti
Ljómalind Sveitamarkaður,
Brúartorgi 4, Borgarnesi
Sími 537-1400,
Netfang: ljomalind@ljomalind.is