Skessuhorn - 29.05.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 20196
Lengri hálend
isvakt í sumar
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ferðamálaráð-
herra hefur annað árið í
röð ákveðið að auka fram-
lag ráðuneytisins til Há-
lendisvaktar björgunarsveit-
anna til þess að unnt verði
að hefja viðveru á hálend-
inu hálfum mánuði fyrr en
ella. Með greiðslu viðbót-
arframlags getur Hálendis-
vaktin hafist um miðjan júní
en alla jafna hefst hún ekki
fyrr en í byrjun júlí. Aðstæð-
ur á hálendinu bæði í ár og í
fyrra kalla á þessa auknu við-
veru. Hálendisvaktin er hluti
af SafeTravel-verkefninu um
öryggismál og slysavarn-
ir ferðamanna. Það er sam-
vinnuverkefni Landsbjargar,
atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins og Samtaka
ferðaþjónustunnar (SAF).
Ferðamálaráðuneytið styrk-
ir verkefnið árlega um 25
milljónir króna og SAF um
10 milljónir.
-mm
Skemmdar
vinnuvélar
HVALFJSV: Skemmdarverk
var unnið á gröfu í Krosslandi
í Hvalfjarðarsveit, rétt fyrir
sunnan Akranes, síðastliðinn
laugardag. Að sögn lögreglu
var sett bæði vatn og mold á
olíutank gröfunnar. Þá voru
einnig rifnir brettakantar af
vörubíl á sama stað. Lög-
regla hefur málið til rann-
sóknar og hvetur fólk til að
hafa samband ef það kann að
hafa orðið vart við grunsam-
legar mannaferðir á þessu
svæði.
-kgk
Of ungur
ökumaður
AKRANES: Lögregla hafði
afskipti af helst til ungum
ökumanni á Akranesi síðast-
liðinn sunnudag. Þá hafði 15
ára piltur skroppið í bíltúr
með fimm farþega í bílnum,
eða einum farþega fleira en
gert er ráð fyrir í bifreiðinni.
Lögregla batt endi á ökuferð
piltsins og gerði foreldrum
hans viðvart.
-kgk
Heldur mikil
hagsýni
BORGARNES: Maður fór í
verslunarferð í verslun einni
í Borgarnesi í vikunni sem
leið. Hann gekk inn í búðina
og fyllti innkaupakerruna af
vörum. Að sögn lögreglu var
maðurinn hins vegar ekk-
ert að hafa fyrir því að koma
við á kassanum eftir að hann
fyllti kerruna, heldur rölti
beinustu leið út úr verslun-
inni án þess að greiða fyrir
varninginn.
-kgk
Líflegur
markaður í apríl
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 48 samningum um
fasteignir þinglýst í apríl. Þar af
voru 12 samningar um eignir í
fjölbýli, 22 samningar um eign-
ir í sérbýli og 14 samningar um
annars konar eignir. Heildar-
veltan var 1.623 milljónir króna
í þessum viðskiptum og meðal-
upphæð á samning 33,8 millj-
ónir króna. Af þessum 48 voru
20 samningar um eignir á Akra-
nesi. Þar af voru sex samning-
ar um eignir í fjölbýli, 13 samn-
ingar um eignir í sérbýli og einn
samningur um annars konar
eignir. Heildarveltan var 933
milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning 46,7 milljónir
króna. -mm
Fáir selja
mjólkurkvóta
LANDIÐ: Á öðrum innlausn-
ardegi ársins, 1. maí síðastliðn-
um, fyrir greiðslumark í mjólk
var greiðslumark þriggja kúa-
búa innleyst á sama tíma og 90
framleiðendur lögðu inn kaup-
tilboð fyrir mjólk að andvirði
8,7 milljóna lítra. Innlausnar-
virði greiðslumarks er nú 100
krónur á lítra og er það Mat-
vælastofnun sem annast inn-
lausn þess. Alls voru innleyst-
ir 22.300 lítrar að upphæð
2.230.000 krónur. -mm
Undir áhrifum
og stýri
VESTURLAND: Tveir öku-
menn voru stöðvaðir í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi í
liðinni viku grunaðir um akst-
ur undir áhrifum ólöglegra
fíkniefna. Þá voru fimm öku-
menn stöðvaðir grunaðir um að
hafa sest ölvaðir undir stýri. Öll
þessara sjö ölvunar- og fíkni-
efnaakstursbrota teljast upplýst
og eru komin í ferli að sögn lög-
reglu.
-kgk
Motorcrossklúbbur Snæfellsbæj-
ar hefur ekki haft mikla starfsemi
undanfarin ár en á því er að verða
breyting. Til stendur að haldin
verði keppni í motorcrossi á braut
félagins í sumar. Forsagan að því
framtaki er sú að á Ólafsvíkurvöku
2017 stóðu félagar úr klúbbnum
þeir Janus Jónsson, Albert Fann-
ar Jónsson og Konráð Haralds-
son, fyrir skemmtikeppni sem mjög
góð mæting var á. Heppnaðist hún
vel og fengu þeir fyrirspurnir í vet-
ur um hvort ekki ætti að endur-
vekja klúbbinn og halda keppni að
nýju. Settu þeir sig í samband við
feðgana Svan Tómasson og Stef-
án Svansson til að athuga hvort
þeir væru tilbúnir að aðstoða við að
gera brautina tilbúna fyrir keppni,
því án þeirrar hjálpar yrði ekkert
af keppni þar sem brautinni hef-
ur ekki verið haldið við undan-
farin ár og ekki keppt í henni frá
2007. Voru þeir feðgar tilbúnir að
hjálpa til með undirbúning og því
var slegið til. Hófst undirbúning-
ur að mótinu í janúar. Meðal ann-
ars var farið í fjáröflun til að halda
keppnina og koma brautinni í gott
ásigkomulag. Keppni á vegum MSí
til íslandsmóts verður haldin 27.
júlí í sumar. Vonast þeir félagar til
að sjá sem flesta á brautinni til að
horfa á og ef einhverjir hafa áhuga
á að hjálpa til, eru með hugmyndir,
eða vilja styrkja þá, má senda þeim
tölvupóst á netfangið mxolafsvik@
gmail.com.
þa
Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hef-
ur óskað eftir tilboðum í lengingu
Norðurgarðs hafnarinnar í Ólafs-
vík. Til stendur að lengja hann um
80 metra. Verkið felur í sér útlögn
grjóts og kjarna, samtals 36 þúsund
rúmmetra og upptekt og endurröð-
un um tvö þúsund rúmmetra efnis.
Útboðsgögn má nálgast á hafn-
arskrifstofu Snæfellsbæjar í Ólafs-
vík sem og hjá Vegagerðinni í
Borgartúni í Reykjavík. Tilboðum
skal skila á þessa sömu staði fyr-
ir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní
næstkomandi og verða opnuð síð-
ar sama dag. Áætluð verklok eru 1.
desember 2019.
kgk
Félagarnir Janus, Albert og Konráð.
Endurgera motorcross
brautina í Ólafsvík
Ólafsvíkurhöfn. Norður-
garðurinn er næst í mynd.
Ljósm. Snæfellsbær/ Sindri
Snær Matthíasson.
Lenging Norðurgarðs boðin út