Skessuhorn - 29.05.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 20198
Um flutning lif
andi jórturdýra
yfir varnarlínur
LANDIÐ: Matvælastofnun
vekur í tilkynningu athygli á
að strangar reglur gilda um
flutning á lifandi jórturdýr-
um, tækjum og ýmsum varn-
ingi yfir varnarlínur. „Óheim-
ilt er að flytja sauðfé til lífs yfir
varnarlínur, nema þegar um er
að ræða endurnýjun bústofns
vegna niðurskurðar af völdum
sjúkdóma og/eða vegna bú-
háttabreytinga og þá einung-
is með leyfi frá MAST. Sleppi
sauðfé yfir varnarlínur skal því
slátrað. Óheimilt er að sam-
eina hjarðir innan sýktra varn-
arhólfa nema með leyfi Mat-
vælastofnunar. Nautgripi og
geitur má aðeins flytja til lífs
yfir varnarlínur hafi farið fram
sérstök rannsókn á heilbrigði
þeirra.“ -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
18.24. maí.
Tölur (í kílóum) frá Fiski
stofu:
Akranes: 24 bátar.
Heildarlöndun: 48.540 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 5.714
kg í tveimur róðrum.
Arnarstapi: 32 bátar.
Heildarlöndun: 148.721 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
58.029 kg í sjö löndunum.
Grundarfjörður: 23 bátar.
Heildarlöndun: 248.140 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.582 kg í einni löndum.
Ólafsvík: 47 bátar.
Heildarlöndun: 518.003 kg.
Mestur afli: Guðmundur
Jensson SH: 60.276 kg í þrem-
ur róðrum.
Rif: 35 bátar.
Heildarlöndun: 569.170 kg.
Mestur afli: Rifsnes SH:
102.332 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 23 bátar.
Heildarlöndun: 45.382 kg.
Mestur afli: Hafsvala BA:
6.053 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH GRU:
66.582 kg. 21. maí.
2. Rifsnes SH RIF: 65.330
kg. 19. maí.
3. Sigurborg SH GRU:
53.864 kg. 21. maí.
4. Farsæll SH GRU: 46.308
kg. 19. maí.
5. Helgi SH GRU: 45.234
kg. 20. maí.
Með sjómannadagskveðju!
-kgk
Undanfarin fjögur ár hefur Mat-
vælastofnun, í samvinnu við at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið, utanríkisráðuneytið og
sendiráð íslands í Kína, unnið að
öflun leyfis til útflutnings á lamba-
kjöti frá íslandi til Kína. Síðastlið-
ið haust var undirritaður samning-
ur milli íslands og Kína um skil-
yrði, heilbrigðiskröfur og eftirlit
vegna útflutningsins. í kjölfarið á
því sótti Fjallalamb hf. á Kópaskeri
um leyfi fyrir sláturhús, kjötpökk-
unarstöð og frystigeymslu fyrir-
tækisins til útflutnings á lamba-
kjöti til Kína. „Mikilvægustu kröf-
ur Kínverja varða riðu. Einung-
is má flytja kjöt af lömbum yngri
en sex mánaða sem fædd eru og
alin á riðulausum svæðum og jafn-
framt eiga sláturhús, kjötpökk-
unarstöðvar og frystigeymslur að
vera á riðulausum svæðum. Fjalla-
lamb hf. uppfyllir þessi skilyrði og
aðrar kröfur kínverskra yfirvalda
og það hefur nú verið sett á opin-
beran lista í Kína yfir fyrirtæki sem
hafa leyfi til að flytja lambakjöt frá
íslandi á Kínamarkað. Útflutning-
ur getur hafist í næstu sláturtíð,“
segir í tilkynningu frá Matvæla-
stofnun.
mm/ Ljósm. Verkal.f. Framsýn.
Þegar ekið er um þjóðveginn und-
ir Eyjafjöllum á Suðurlandi blas-
ir þessi sjón við vegfarendum.
Hundruðir brjóthaldara hefur ver-
ið komið fyrir á girðingu við bæ-
inn Brekkukot. Þessi hefð að skilja
þessi klæði eftir varð til fyrir sjö
árum og hefur höldurunum fjölg-
að æ síðan eins og sjá má. Þenn-
an gjörnin má líkja við þann vana
ferðafólks að henda smámynt í
laugar á borð við Snorralaug eða
gjána á Þingvöllum svo dæmi séu
tekin. Sitt sýnist hverjum um þetta,
en myndin talar sínu máli.
mm/ Ljósm. gó.
í gær hélt bæjarstjórn Stykkis-
hólmsbæjar íbúafund í Amtsbóka-
safninu þar sem til umræðu var
kynning á niðurstöðu ráðgjafa-
nefndar vegna áhuga á rannsókn-
ar-, vinnslu- og afurðamiðstöð
þangs í Stykkishólmi. Hugmynd-
ir og áform um þörungavinnslu í
Stykkishólmi hafa verið til umræðu
og meðferðar hjá stjórnendum bæj-
arins um nokkurra ára skeið. „Um
er að ræða hugmyndir að nýtingu
auðlinda Breiðafjarðar og atvinnu-
uppbyggingu í Stykkishólmi, nán-
ar tiltekið nýtingu þangs í Breiða-
firði, þar sem hugmyndir um sjálf-
bæra nýtingu auðlinda fjarðarins
hefur verið grundvöllur samtals við
þau fyrirtæki sem sýnt hafa verk-
efninu áhuga,“ sagði Jakob Björg-
vin Jakobsson bæjarstjóri á þegar
hann kynnti fyrirhugaðan fund á
vef Stykkishólmsbæjar.
Tvö fyrirtæki hafa farið þess á
leit við bæjarstjórn að hafist verði
handa við formlega skipulagningu
atvinnusvæðis fyrir þörungavinnslu;
annars vegar kanadíska fyrirtæk-
ið Acadian Seaplants Ltd. og hins
vegar íslenska kalkþörungafélagið
ehf., sem er í írskri eigu. Skipuð var
ráðgjafanefnd vegna áhuga á rann-
sóknar-, vinnslu og afurðamiðstöð
þangs í Stykkishólmi í desember.
Var henni ætlað að fara yfir og meta
fyrirliggjandi gögn varðandi fyrir-
hugaða starfsemi, leggja mat á kosti
hennar og galla og fjárhagsleg-
an ávinning bæjarins ef af verður.
Einnig var henni falið að útfæra til-
lögur að viðmiðum Stykkishólms-
bæjar í áframhaldandi viðræðum,
leggja fram tillögu að staðsetningu
starfseminnar og hugsanlegum
skipulagsbreytingum. Nefndin hef-
ur lokið störfum og skilað greina-
gerð til bæjarstjórnar.
Á íbúafundinum í gær stóð til
að bæjarstjóri færi lauslega yfir að-
draganda og framvindu í tengslum
við áform um þangvinnslu í Stykk-
ishólmi og þá kynnti Halldór Árna-
son, formaður ráðgjafanefndarinn-
ar, niðurstöðu skýrslu nefndarinn-
ar. Fundurinn stóð enn yfir þegar
Skessuhorn fór í prentun. kgk
íbúar á Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi fengu góða heim-
sókn um þarsíðustu helgi, beint úr
sauðburðinum, en um árvissan við-
burð er að ræða. Harpa Eiríksdótt-
ir, bóndi á Gríshóli, setti upp stíu
í garðinum við dvalarheimilið og
flutti þangað ær og lömb. „Það vakti
mikla lukku hjá okkur að komast í
námunda við sveitina,“ segir á Fa-
cebook-síðu dvalarheimilisins, þar
sem Hörpu voru jafnframt færðar
kærar þakkir fyrir heimsóknina.
kgk
Haldarar
í hundraðatali
Fjallalamb má selja dilkakjöt til Kína
Ær og lömb í stíu í garðinum
við dvalarheimilið. Ljósm.
fengin af Facebook-síðu Dval-
arheimilisins í Stykkishólmi.
Sauðburður á dvalarheimilinu
Íbúafundur um þörungavinnslu