Skessuhorn - 29.05.2019, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201914
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Sjómenn
til hamingju með daginn!
Afgreiðslutímar:Virka daga 9–18Laugardaga 10–14Sunnudaga 12–14
Öll þjónusta við skip og báta með lyf
og hjúkrunarvörur.
Smiðjuvellir 32 -300 Akranes -Sími 431 5090 -Fax 431 5091 -www.apvest.is
Sjómannadagurinn verður haldinn
hátíðlegur um næstu helgi og verð-
ur ýmsilegt í boði fyrir alla fjöl-
skylduna á Akranesi, í Grundarfirði
og í Snæfellsbæ. Samkvæmd heim-
ildum Skessuhorns verður ekki
skipulögð dagskrá í Stykkishólmi
að þessu sinni.
Á Akranesi hefst dagskráin á
sunnudaginn klukkan 10 með
minningarstund við minnismerki
um týnda sjómenn, áður en hald-
ið verður í sjómannadagsmessu í
Akraneskirkju. Dýfingakeppni Sjó-
baðsfélags Akraness verður á gömlu
Akraborgarbryggjunni kl. 11 og
keppt í tveimur flokkum, yngri en
50 ára og 50 ára og eldri. Dorg-
veiðikeppni í boði Bíóhallarinn-
ar verður haldin á Sementsbryggj-
unni. Þá verður róðrarkeppni í boði
Gamla Kaupfélagsins. Á hafnar-
svæðinu verður fjölskylduskemmt-
un frá kl. 14-16 þar sem verður m.a.
boðið upp á hoppukastala, kassa-
klifur, bátasmíði og margt fleira
fyrir alla fjölskylduna.
í Grundarfirði hefst sjómanna-
dagsgleðin í dag, miðvikudag,
með ljósmyndasýningu í Bærings-
stofu. Á morgun verður skeetmót
á félagssvæði Skotgrundar í Hrafn-
kelsstaðarbotni, þar sem sjómenn
etja kappi við landkrabba. Á föstu-
daginn munu sjómenn heimsækja
Leikskólann Sólvelli og m.a. sýna
krökkunum allskyns furðufiska og
skora á krakkana í reiptog. Sjó-
mannadagsgolfmótið verður líka á
sínum stað á Bárarvelli. Á laugar-
daginn verður krakkasprell í Vél-
smiðju Grundarfjarðar í Ártúni.
Varðskipið Þór verður í höfninni í
Grundarfirði yfir helgina og fer í
hátíðarsiglingu kl. 12 á laugardeg-
inum. Hátíðarhöld hefjast á hafnar-
svæðinu kl. 13, þar sem boðið verð-
ur upp á grillaðar pylsur og keppt
í ýmsum greinum og margt fleira.
Þá verður froðubolti, vígsluathöfn
að nýju fiskvinnsluhúsi G.Run og
margt fleira í boði. Laugardeginum
mun ljúka með dansleik á Kaffi 59.
Á sunnudaginn verður Leikhópur-
inn Lotta með sýningu. Sjómanna-
guðsþjónusta verður í Grundar-
fjarðarkirkju, Runólfur Guðmunds-
son og Sigurjón Halldórsson, fyrr-
um skipstjórar, verða heiðraðir fyr-
ir störf sín og margt fleira verður
í boði.
í Snæfellsbæ verður dagskrá alla
helgina og hefst hún með skemmti-
siglungu á föstudagskvöldinu. í
Sjómannagarðinum í Ólafsvík
verður grillveisla, hoppukastalar
og fleira. Á laugardeginum verður
dorgveiðikeppni á Norðurgarði í
Ólafsvík. í Rifi verður skemmtun
fyrir alla fjölskylduna, kappróður,
flekahlaup, þrautakeppni, reiptog
og margt fleira. Boðið verður upp
á fiskisúpu og hoppukastala. Sjó-
mannahóf verður í Klifi um kvöldið
þar sem boðið verður upp á mat frá
Galito. Sóli Hólm sér um veislu-
stjórn og hljómsveitin Bandmenn
munu halda uppi stuði fram á nótt.
Á sunnudaginn verður sjómanna-
messa og sjómenn verða heiðr-
aðir. Hátíðardagskrá verður í sjó-
mannagörðunum í sveitarfélaginu
og Leikhópurinn Lotta verður með
sýningu í Tröð kl. 15:30.
arg
Þyrlubjörgun úr sjó var meðal sýningaratriða á Akranesi á síðasta ári. Ljósm. mm.
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um helgina
Svipmynd frá sjómannadeginum í Grundarfirði á síðasta ári. Ljósm. tfk