Skessuhorn - 29.05.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201918
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Allt grunnnám við HA er sveigjanlegt nám sem þýðir að engu skiptir hvort þú ert staðarnemi eða fjarnemi.
Allir fylgja sömu námsskránni og hafa aðgang að sama námsefninu.
við Háskólann á AkureyriSjávarútvegsfræði
www.unak.is
Sjávarútvegsfræði er spennandi og krefjandi nám sem veitir góðan grunn fyrir stjórnunarstörf í öllum greinum sjávarútvegs
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í sjávarútvegsfræði
„Hugmyndin um að fara í sjáv-
arútvegsfræði við Háskólann
á Akureyri kviknaði þegar ég
var að vinna á flæðilínunni hjá
fiskvinnslufyrirtæki. Þá fór ég
að velta því fyrir mér hversu
mikilvægur sjávarútvegurinn
er í okkar samfélagi. Það eru
miklir framtíðarmöguleikar
í greininni og við Íslendingar
stöndum mjög framarlega á
þessu sviði. Því ber að þakka
þeirri gríðarlegu nýsköpun og
verðmætaaukningu sem hefur
orðið í íslenskum sjávarútvegi
á síðustu árum.“
Anna Borg Friðjónsdóttir
Sölustjóri hjá Iceland Seafood
Bárður Jóhönnuson er 23 ára sjó-
maður í Ólafsvík. Hann er nú að
ljúka sinni fyrstu vertíð sem skip-
stjóri en hann rær á línubátnum
Kristni SH. Bárður segir í samtali
við Skessuhorn að hann sé alinn upp
í kringum sjávarútveg og það hafi
aldrei annað komið til greina en að
gerast sjómaður. Þá sé auk þess frá-
bært að búa í Ólafsvík og máli sínu
til stuðnings segist Bárður hafa fest
kaup á sínu fyrsta húsi í bænum og
sé í rólegheitunum að gera það upp
þegar tími gefst frá sjónum.
Um sinn sjómannsferil segir Bárð-
ur að hann hafi verið öll sumur á sjó
frá 14 ára aldri á Kristni SH. „Síðan
fór ég í Stýrimannaskólann og náði
45 metra réttindunum. Það gekk
bara vel í vetur á minni fyrstu ver-
tíð sem skipstjóri en við erum tveir
sem skiptum því starfi um borð, ég
og Þorsteinn Bárðarson sonur afa.
Ég ræ í tvær vikur sem skipstjóri
og svo eina viku sem stýrimaður og
svo eigum við frí í eina viku. En við
erum að jafnaði fjórir um borð og
tveir í fríi. En það hefur verið mikið
róið. Á þessum níu mánuðum sem
við gerðum út fórum við 162 róðra
og fiskuðum 1.558 tonn sem gera
9,6 tonn að jafnaði í veiðiferð.“
Bárður segir að þeir hafi róið
mikið frá Skagaströnd á haustin og
fram að áramótum. Þar hafi gengið
mjög vel að ná í ýsuna. „Ég er með
tvo reynslubolta sem hafa reynst
mér vel sem skipstjóri; afa minn
Bárð Guðmundsson sem er með
áratuga reynslu og er mikill afla-
maður en hann er nýhættur til sjós
en hefur þó aðeins leyst af í vetur.
Og svo náttúrulega Þorstein. Ég
spyr þá báða að mörgu ef ég þarf á
því að halda og kem aldrei að tóm-
um kofanum hjá þeim.“
Þótt þetta sé fyrsta árið sem
Bárður er skipstjóri á línubáti hefur
hann samt sem áður róið á Júlla Páls
SH sem útgerðin á. „Ég hef verið
með þann bát í smá tíma á sumrin
á handfærum og makríl og það hef-
ur bara gengið vel,“ segir Bárður
og bætir við að aflinn á handfærum
á síðasta sumri hafi verið 60 tonn
og svo 200 tonn af makríl. „En ég
varð að hætta snemma á þeim veið-
um vegna þess að við vorum að fara
að róa á Kristni. Ég var hæstur yfir
landið þegar ég hætti á makrílnum
og náðu tveir bátar að komast upp
fyrir mig að lokum.“
Þótt Bárður verji miklum tíma
á sjó, þá á hann sín áhugamál og
segist hann hafa áhuga á lyfting-
um og fótbolta. „Ég fer stundum í
bumbubolta með strákunum þegar
tími gefst til. Bárður hefur komið
sér upp lyftingaaðstöðu á efri hæð
beitningarskúrs útgerðarinnar og
segist bara hafa orðið að gera það
til þess að geta æft þegar hann hefði
tíma til.
af
Bárður SH 812.
Er að ljúka sinni fyrstu vertíð sem skipstjóri
Fjórir af sex í áhöfn Kristins SH. Svavar Kristmundsson, Bárður Jóhönnuson, Þorsteinn Bárðarson og standandi er Þröstur
Þorláksson.
Mynd af fjölskyldu Bárðar þegar núverandi Kristinn SH var keyptur. Myndin var
tekin árið 2012 og er Bárður lengst til hægri. Móðir hans Jóhanna Bárðardóttir
heldur um axlir hans.