Skessuhorn - 29.05.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201920
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
„Starf framleiðslustjórans er of-
boðslega skemmtilegt og enginn
dagur alveg eins. Síðustu ár hafa
mikið farið í að spá og spekúlera.
Okkur fannst við komin á endastöð
í gamla húsinu og ákváðum að
byggja nýja fiskvinnslu. Það átti sér
nokkurn aðdraganda, við vorum í
um tvö ár að pæla í vélum og teikna
áður en við síðan létum hanna hús-
ið utan um vélarnar. Þetta var ekki
ákveðið á einni nóttu,“ segir Rósa
Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri
Guðmundar Runólfssonar hf., í
samtali við Skessuhorn. „Það er
búið að vera mikið að gera, bæði
á framkvæmdatímanum og eftir að
vinnslan var sett í gang aftur. Fyrstu
tveir mánuðirnir í nýju vinnsl-
unni voru strembnir. Margir lang-
ir dagar meðan við vorum öll söm-
ul að læra inn á þetta en að sama
skapi óskaplega góð tilfinning þeg-
ar þetta fór að ganga smurt,“ seg-
ir hún. „Það er nefnilega ótrúlega
mikill munur á nýju vinnslunni og
þeirri gömlu. Við erum að fara úr
gamaldags frystihúsi yfir í hátækni-
fiskvinnslu á heimsmælikvarða. Það
eru bara allt aðrar afurðir sem við
erum að vinna hérna. Það þurftu
allir svolítið að læra að hugsa hlut-
ina upp á nýtt,“ segir hún og bætir
því við að vinnslan sé smám saman
að komast í full afköst.
„Við vorum búin að gefa það út
að það yrði haldið partí þegar við
færum yfir 100 kör á dag, sem eru
28-30 tonn. Partíið var haldið síð-
asta laugardag,“ segir Rósa ánægð.
„Síðan við náðum því höfum við
nokkuð reglulega farið yfir þetta
magn og setjum stefnuna næst á 40
tonn á dag,“ bætir hún við. „Þeg-
ar það gengur vel þá rétt ná bát-
arnir að anna nýju vinnslunni.
Þess vegna var ákveðið að fjárfesta
í nýju skipi sem við tökum í notk-
un í haust. Það verður gaman að sjá
hver breytingin verður þegar gamla
Bergeyin verður komin í gagnið í
staðinn fyrir Helga SH. Ekki síst
held ég að það verði breyting fyrir
áhöfnina, þar sem Helgi er orðinn
gamall og alveg kominn tími á að
skipta honum út. En hún er auð-
vitað miklu stærra skip líka og við
horfum líka til þess að geta fengið
meiri fisk í gegnum vinnsluna þeg-
ar fram líða stundir,“ segir hún.
Forréttindi að vinna í
fjölskyldufyrirtæki
Rósa er enginn nýgræðingur í sínu
starfi, búin að gegna því í rúman
áratug. En hvernig kom það til að
hún tók við starfi framleiðslustjóra
á sínum tíma? „Árið 2008 var ég
26 ára gömul og þá vantaði verk-
stjóra. Ég var spurð hvort ég vildi
taka starfið af mér og sló til. Ég var
að vinna hjá Ragnari & Ásgeiri og
TSC tölvuþjónustu hérna í Grund-
arfirði. Þaðan gat ég fljótlega feng-
ið mig lausa og byrjaði að vinna hjá
G. Run stuttu síðar. Móses [Geir-
mundsson, innsk.] frændi minn var
með mér til að byrja með og kom
mér hægt og rólega inn í hlutina,“
segir hún.
Rósa var langt því frá ókunnug
fiskvinnslunni á þessum tíma. Hún
er barnabarn Guðmundar Runólfs-
sonar og Ingibjargar Kristjánsdótt-
ur, sem stofnuðu fyrirtækið á sín-
um tíma. Faðir hennar, Guðmund-
ur Smári Guðmundsson, er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og einn
eigenda þess, ásamt sex systkinum
sínum og Móses frænda þeirra og
Rósa vann í fiskvinnslunni þegar
hún var unglingur. „Fjölskyldu-
tengslin hérna innan fyrirtækisins
eru ekkert rosalega flókin,“ segir
Rósa létt í bragði. En hvernig er
að vinna þar sem nánast annar hver
maður er nákominn ættingi? „Að
mínu viti eru það mikil forréttindi.
Systkinin sem eiga þetta eru nátt-
úrulega búin að gera þetta alla sína
ævi. Auðvitað eru þau ekkert alltaf
sammála en þau sýna hvort öðru
mikla virðingu. Þannig slá þau tón-
inn fyrir alla aðra sem starfa hjá
fyrirtækinu,“ segir hún. „Mér þyk-
ir líka gaman að því að núna vinn
ég náið með pabba, sem er fram-
kvæmdastjóri. Við töluðumst varla
við frá því ég var svona tólf ára og
þar til ég var að nálgast tvítugt. Við
áttum bara engan veginn skap sam-
an. Mamma sagði alltaf að það væri
vegna þess að við værum svo lík.
En núna erum við orðin mjög náin.
Það er alveg dásamlegt og ég lít á
það sem forréttindi að geta unn-
ið svona náið með pabba mínum
og síðan verið pabbastelpan eftir
vinnu,“ segir hún og brosir.
Stöðug framþróun
„Mesta áskorunin hjá mér sem
framleiðslustjóra eftir að við tók-
um nýju vinnsluna í notkun er að
læra inn á þessar nýju afurðir sem
við erum að framleiða núna en
gátum ekki framleitt áður. Það er
ekki orðið 100% hjá mér en allt að
koma,“ segir hún og brosir. „Sem
dæmi höfum við alltaf verið sterk
í karfavinnslunni. Karfann höfum
við í gegnum tíðina fryst og það
er áskorun að koma honum fersk-
um úr húsi. Þar að auki erum við
farin að leggja áherslu á beinlaus-
an karfa. Við teljum að það sé fram-
tíðin, fólk vill hafa hann beinlausan
eins og þorskinn og ýsuna. En það
er ný afurð sem kaupendur þekkja
ekki vel og áskorun að takast á við
það,“ útskýrir hún. „Sömu sögu er
að segja af flestu sem við vinnum í
nýju vinnslunni. Þetta eru allt meira
og minna nýjar afurðir og töluverð
vinna sem fylgir því að læra inn á
nýja hluti hjá öllum í fyrirtækinu,“
segir hún. „Þar fyrir utan fylgj-
umst við stöðugt með tæknifram-
förum og reynum að vera opin fyrir
því hvort nýir hlutir gætu ef til vill
hentað okkur. Það er til dæmis eitt
horn í vinnslunni sem þarf að leysa
betur, á endanum þar sem afurðirn-
ar fara í kassa og er síðan raðað á
bretti. Það er verið að vinna margar
afurðir í einu á línunum og stund-
um myndast smá flöskuháls þar. Þar
að auki er þessi stöð sú sem reyn-
ir mest á líkamlega. Kannski verð-
ur kominn róbóti þarna eftir eitt
eða tvö ár, til að létta starfsfólkinu
vinnuna. Húsið var allavega hann-
að með það í huga að við gætum
sett upp róbóta ef þess gerist þörf
í framtíðinni;“ segir Rósa. „Annars
finnst mér mjög gaman að fylgjast
með því hvað tækninni fleygir fram
í þessum geira, það er sko alls eng-
in stöðnun. Svo mikið get ég sagt
um íslenska fiskvinnslu og sjávar-
útveg að þar er stöðug framþróun
og mér þykir óskaplega gaman að
vinna í þannig umhverfi. En stóra
verkefnið framundan er að koma
vinnslunni í full afköst. Þegar það
næst förum við að huga að næstu
skrefum,“ segir Rósa Guðmunds-
dóttir að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ tfk.Mikil einbeiting í hverju handtaki.
„Úr gamaldags frystihúsi í hátæknifiskvinnslu“
- segir Rósa Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri G. Run
Rósa Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri G. Run. Ljósm. kgk.
Úr vinnslusal fiskvinnslu G. Run í Grundarfirði.
Vinnslan er smám saman að komast í full afköst. „Við vorum búin að gefa það út
að það yrði haldið partí þegar við færum yfir 100 kör á dag, sem eru 28-30 tonn.
Partíið var haldið síðasta laugardag.“