Skessuhorn


Skessuhorn - 29.05.2019, Page 26

Skessuhorn - 29.05.2019, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201926 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn „Ég byrjaði á sjónum fermingarár- ið 1952, á handfæraveiðum á Giss- uri Hvíta. Það var 19 tonna trébát- ur sem hafði verið keyptur í Hólm- inn frá Hornafirði,“ segir Kristján Lárentsínusson, stýrimaður, skip- stjóri og útgerðarmaður í Stykk- ishólmi, í samtali við Skessuhorn. „Sérstaklega er mér minnisstæður einn sunnudagur frá þessum tíma á Gissuri. Þá tókum við frí og fór- um inn á Patreksfjörð og þar sem við sigldum inn fjörðinn blöstu við okkur 23 færeyskar seglskútur á handfæraveiðum. Það var afar fall- eg sjón,“ segir hann. „Á þessum báti var ég þetta sum- ar og síðan á ýmsum öðrum bát- um. Þar á meðal fór ég á síldveiðar á Tjaldi, sem þá var nýr bátur. Það var árið 1956. Ég var ungur mað- ur þá og hafði gaman af þessu síld- arævintýri svokallaða,“ segir Krist- ján. Stefnan sett á sjóinn Hann segir aldrei annað hafa kom- ið til greina en að gera sjómennsk- una að ævistarfinu. „Ég ætlaði alltaf að leggja þetta fyrir mig. Það komst aldrei annað að frá því ég var ungur maður. Ég ætlaði mér að verða sjó- maður og myndi gera þetta aftur ef ég stæði frammi fyrir því vali á ný,“ segir hann. „Ég fór til Vestmanna- eyja og var þar í þrjú ár, lærði í Stýrimannaskólanum og var á ýms- um bátum þar til ég útskrifaðist 1960. Þá kom ég heim í Hólminn aftur, fór á Arnfinn sem var gerður út á línu og leysti af sem stýrimað- ur á Baldri á sumrin,“ segir Krist- ján. „Eftir það skipti ég yfir á Þórs- nesið og var á því í tæp átta ár, fyrst sem matsveinn en síðan sem stýri- maður,“ bætir hann við. „Það var síðan á árunum 1964 til 1969 sem við vorum með Otursútgerðina. Otur stofnuðum við saman fjórir sjómenn og nokkrir í landi. Bróð- ir minn Ásberg Lárentsínusson var skipstjóri, Rafn Jóhannsson vél- stjóri, Bæring Guðmundsson annar vélstjóri og ég var stýrimaður. Við gerðum út á síld á sumrin en vor- um á netaveiðum á veturna. Bát- inn seldum við síðan 1969 en hann höfðum við keypt nýjan frá Dan- mörku,“ segir Kristján. Sólborg í 27 ár Aftur kom Kristján að stofnun út- gerðar árið 1977. „Þá stofnuðum við Sólborgu hf. og gerðum út bát- inn Ársæl SH-88. Sú útgerð stóð í 27 ár. Við byrjuðum með 64 tonna bát, vorum aðallega á netaveiðum og hörpuskel. Útgerðin stækkaði jafnt og þétt í áranna rás og varði í 27 ár. Við veiddum skel á sumrin og vorum á netum á vertíðinni þessi tíu ár sem ég var með bátinn. Þegar Viðar Björnsson tók við sem skip- stjóri fór ég í fiskverkunina sem við höfðum komið á fót og gerðist salt- fiskmatsmaður. Seinna lögðum við vinnsluna niður og ég fór í veiðar- færin og var þar meira og minna þar til við seldum í nóvember 2005, en ég hafði þá verið í landi frá 1997,“ segir hann. Fínt að róa frá Hólminum Kristján er kvæntur Þórhildi Páls- dóttur og saman eiga þau börn- in Lárentsínus og Áslaugu. Þau hjón hafa verið búsett í Stykkis- hólmi alla sína hjúskapartíð, bæði fædd þar og uppalin og vilja hvergi annars staðar vera. Kristján kveðst ætíð hafa kunnað því vel að sækja sjóinn frá Hólminum. „Mér lík- aði alltaf ágætlega að vera sjómað- ur í Stykkishólmi. Það er auðvi- tað betra að vera í Grundarfirði eða Ólafsvík á vertíðinni á veturna. Þaðan er töluvert styttra á miðin en héðan frá Hólminum þar sem var aldrei minna en þriggja til fjögurra tíma sigling fyrir netabátana,“ seg- ir hann. „En Hólmurinn er á besta stað fyrir skelveiðarnar, það var al- gjör lúxus, sérstaklega á sumr- in. Okkur gekk yfirleitt mjög vel á skelinni og gaman að hafa fengið að taka þátt í því mikla ævintýri,“ seg- ir Kristján Lárentsínusson að end- ingu. kgk/ Ljósm. úr einkasafni. Þröstur Albertsson fór fyrst á sjóinn sem unglingur og hefur að mestu verið á sjó síðan. Hann ef fæddur og uppalinn á Hellissandi en flutti tvítugur til Ólafsvíkur, þegar hann kynntist eiginkonu sinni, Sóleyju Jónsdóttur. „Ég náði í konu í Ólafs- vík og þá varð ég auðvitað að flytja þangað,“ segir Þröstur hlæjandi þegar Skessuhorn heyrði í honum. Þröstur hefur unnið fyrir nokkrar útgerðir á Nesinu en lengst af hjá útgerðinni Breiðavík ehf, sem ger- ir út Kristinn SH í Ólafsvík. Þar vann hann samfleytt í níu ár áður en hann hætti sjómennskunni. Þeg- ar hann kom í land stofnaði hann eigið fyrirtæki og vinnur sem verk- taki. Árið 2013 byrjaði Þröstur að fara á strandveiðar og hefur hald- ið því áfram á hverju sumri síðan og núna í vor fjárfesti hann í nýjum báti, Stefaníu SH, sem hann segir vera töluverða uppfærslu frá gamla bátnum. „Þetta er í rauninni svip- aður bátur fyrir utan að sá gamli var hæggengur en þessi er hraðgengur, sem munar töluverðu. Við megum bara vera úti í 14 tíma á dag, frá því við förum úr höfn þar til við kom- um aftur. Á nýja bátnum kemst ég töluvert lengra á þeim tíma. Það munar kannski um þrjá tíma sem ég get verið lengur á veiðum,“ seg- ir Þröstur. Gerir allan andskotann Nýi báturinn er tæplega átta metra langur, ríflega fjögur brúttótonn og var smíðaður á Akranesi. „Ég miða við að fá svona 650 kíló upp úr sjó, það reiknast í svona 774 kíló fyrir utan ufsann,“ segir Þröstur. „Þetta er mikið betri bátur en ég var á. Þessi er dekkaður en hinn var op- inn. Þetta er því mikið öruggari bátur og maður getur róði stífar. Þetta kemur allt bara rosalega vel út,“ bætir hann við. Eins og fyrr segir stofnaði Þröstur fyrirtæki þegar hann fór í land en hvað er það sem hann gerir þegar hann er ekki á strandveiðum? „Ég geri nú allan andskotann, flest sem gefur pening,“ svarar hann og hlær. „Ég sé um snjómoktur á norðanverðu Snæfellsnesi sem verktaki hjá Vega- gerðinni og svo er ég líka að taka að mér að hreinsa dúka og bóna gólf, en það er meira svona aukalega. Svo er strandveiðin bara sumarvinnan og ég sinni henni alveg þessa fjóra mánuði sem hún er í gangi,“ seg- ir Þröstur og bætir því við að nýj- ar breytingar á strandveiðikerfinu hafi verið mikil búbót fyrir hann. „Breytingarnar eru sérstaklega góð- ar fyrir okkur á A svæði. Áður vor- um við yfirleitt að róa svona 25-30 daga á sumri en núna megum við róa í 48 daga. Núna fáum við 12 daga í mánuði til að veiða og það þýðir að þessar ólympísku veiðar eru núna úr kortinu. Eins og þetta blasir við núna eru fimm virkir dag- ar í mánuði sem maður getur sleppt og samt náð þessum 12 dögum. Við þurfum því ekki að róa eins stíft og áður. Reglan var bara fyrstur kem- ur fyrstur fær og svo kláraðist bara potturinn. Núna dreifist þetta yfir mánuðinn og það eru ekki allir að í einu. Þetta er mikið rólegra svona og maður er síður að fara út í vafa- sömu veðri. Maður hefur þó alltaf gætt þess að fara ekki út í algjöra vitleysu en það var stundum bölv- uð bræla en núna er það ekki jafn mikið vandamál. Maður getur ver- ið rólegur að missa úr dag,“ segir Þröstur og bætir því við að nýi bát- urinn gefi honum meiri möguleika á að ná þeim 12 dögum sem hann má róa í mánuði. Brælan byrjar um leið og strandveiðarnar „Þessi fyrsti mánuður hefur ver- ið ágætur, núna þegar þrír róðrar- dagar eru eftir á ég tvo inni og ætti að ná því, vona að veðrið leiki við mig,“ segir hann og hlær. „Eins og menn segja gjarnan á þess- um slóðum þá byrjar brælan allt- af um leið og strandveiðitímabil- ið hefst. Og það var ekkert öðru- vísi núna. Þetta hefur verið frekar leiðinleg tíð, leiðinda norðanátt en þá förum við bara suður fyrir nes- ið og löndum á Arnarstapa.“ Þröst- ur náði að róa 38 daga á síðasta ári og með nýjum báti stefnir hann á að ná öllum 48 dögunum í sumar. „Ég hef fulla trú á að ná því,“ segir hann. Spurður hvernig honum hef- ur líkað sjómannslífið stendur ekki á svarinu; „Það rennur sjór í æð- unum á manni,“ segir hann kím- inn og bætir því við að það þurfi til að endast í starfinu. „Sjómennskan er ekki fyrir alla og strandveiðarnar ekki heldur og ég skil alveg að sum- ir gefist upp. Ég keypti bátinn minn af tveimur bræðrum á Akranesi sem nýttu sumarfríið sitt síðustu þrjú ár í strandveiðar og ég held að þeir hafi alveg fengið nóg. Til að maður endist í þessu held ég að þetta þurfi bara að vera atvinna manns en ekki hobbí til að nýta sumarfríið í. Ég skil vel að menn kikni undan þessu ef þeir ætla að gera þetta samhliða fullri vinnu í öðru og taka þetta í sumarfríum. Þetta er hörkuvinna og ég held að enginn geri þetta sem áhugamál til lengri tíma. En þetta er skemmtilegt,“ segir Þröstur að endingu. arg „Ég ætlaði mér alltaf að verða sjómaður“ segir Kristján Lárentsínusson í Stykkishólmi Otur SH-70, en Kristján var einn þeirra sem gerði bátinn út á árunum 1964 til 1969. Kristján Lárentsínusson með vænan þorsk. Hjónin Kristján Lárentsínusson og Þórhildur Pálsdóttir á góðri stund. Þröstur á Stefaníu SH, sem hann keypti fyrir skömmu til að stunda strandveiðar. Ljósm. af. Nýjar reglur um strandveiðar eru mikil búbót Þröstur Albertsson hefur meira og minna verið á sjó frá því hann var unglingur.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.