Skessuhorn - 29.05.2019, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201928
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Sigurður Friðfinnsson er uppalinn
í Dýrafirði, nánar tiltekið á Þing-
eyri, en býr nú í Grundarfirði. Fað-
ir hans tók hann stundum með á
sjóinn þegar hann var gutti og sjó-
mennskan hefur alltaf heillað. „Ég
var bara pjakkur þegar ég fékk að
fara með pabba á sjó,“ segir Siggi
er hann sest niður með fréttarit-
ara í stutt spjall. Afi hans var bóndi
á Alviðru í Dýrafirði en stund-
aði sjómennsku á veturna. „Ég var
16 ára þegar ég byrjaði að leysa af
á sjó heima á Þingeyri. Þá skipt-
ist ég á að leysa af á frystitogaran-
um Sléttanesi og snurvoðarbátnum
Mýrarfelli. Ég man að þegar ég átti
17 ára afmæli var ég á leið í Smug-
una á Sléttanesi íS 808,“ segir Sig-
urður er hann rifjar upp sjómanns-
ferilinn. Við förum yfir ferilinn og
vissulega hafa áföll dunið yfir.
Lentum allir í sjónum
í Smuguferðinni 1994 varð Sig-
urður 17 ára, en þá tíðkuðust þess-
ar ferðir. Sumarið 1996 var hann
svo búinn að ráða sig á Mýrarfell íS
en það sumar varð styttra en hann
gerði ráð fyrir. „Þetta var 26. júní
og við fórum út snemma um morg-
uninn. Við vorum á veiðum allan
daginn og um kvöldið vorum við að
taka inn veiðarfærin á síðunni þeg-
ar halli kemur á skipið. Það rétti sig
ekki af og svo fer það bara á hliðina.
Við vorum allir á dekki nema skip-
stjórinn sem var uppi í brú. Eng-
inn af okkur hafði tíma til að fara í
björgunargalla og því enduðum við
allir í sjónum bara í gúmmígöllun-
um,“ segir Siggi þegar hann rifjar
upp þennan örlagaríka dag. „Skip-
stjórinn komst út úr brúnni með
bölvuðum látum og við tróðum
marvaða í sjónum á meðan bátur-
inn fór á hvolf. Ég man að við bið-
um eftir að skrúfan stoppaði áður
en við klöngruðumst upp á kjölinn
en það tók óratíma að mér fannst
fyrir skrúfuna að stoppa loksins.
Svo sátum við uppi á kilinum þeg-
ar annar björgunarbáturinn skýst
upp úr sjónum fyrir framan okkur.
Þarna hafði sjálfvirki sleppibúnað-
urinn virkað sem betur fer, en við
sáum hinn björgunarbátinn hvergi.
Við komumst um borð í björgunar-
bátinn þar sem við náðum að setja
neyðarsendi í gang og skjóta upp
neyðarblysi. Fljótlega kom Guðný
íS aðvífandi og flutti okkur heim á
Þingeyri,“ segir Sigurður.
Annað óhapp
Allir komust klakklaust frá þessu
óhappi en litlu mátti muna. „Eftir
þetta var ég svolítið skelkaður. Ég
réði mig þó á Æsuna frá Flateyri
en fór ekki nema tvo til þrjá túra á
henni. Mér líkaði ekki veiðiskapur-
inn en við vorum á skel þarna. Það
hentaði mér ekki að standa við færi-
band og tína drasl og drullu. Fannst
það hundleiðinlegt og svo sat sjó-
slysið aðeins í mér. Ég ákvað því að
hætta eftir þrjá túra og fá mér vinnu
í landi það sem eftir lifði sumars.
Svo nokkrum vikum eftir að ég fór í
land sekkur Æsan líka og með henni
fórust tveir menn. Þetta tók nokk-
uð á 19 ára manninn. Það hvarflaði
samt ekkert að mér að hætta á sjó,“
segir Siggi er hann rifjar upp þessa
lífsreynslu.
Í ýmsum störfum en svo
í réttindanám
Sigurður vann einnig í landi og
meðal annars í skipasmíðastöð á
ísafirði. „Maður tók náttúrulega þá
vinnu sem bauðst á þessum tíma.
Árið 1998 flyt ég til Grindavík-
ur og reri þá á Ingileifi SK og síð-
ar á Maroni GK sem háseti en árið
2006 þá fer ég í land og fékk vinnu í
Vélsmiðju Grindavíkur. Þar var ég
í fimm ár og vann við innkaup og
lagerstörf,“ bætir hann við. „Þegar
ég var búinn að fá nóg af því fékk
ég þá flugu í höfuðið að fara í Stýri-
mannaskólann haustið 2011, þá
34 ára gamall. Ég var tvo og hálf-
an vetur í skólanum og var kominn
með 45 metra réttindi þegar pen-
ingaleysið rak mig á sjó,“ segir hann
og brosir. „Ég var að leysa af hing-
að og þangað á meðan ég var í nám-
inu. Þá fór ég í hinar ýmsu afleys-
ingar og var meðal annars skipstjóri
á Auði Vésteins SU 88 frá Stöðvar-
firði og reri um tíma á Dúdda Gísla
GK sem háseti. Ég gerði samkomu-
lag um að ég fengi að hætta strax ef
ég fengi stýrimannspláss,“ en Sig-
urður þurfti fljótlega að láta reyna á
það. „Ég fékk boð um að koma sem
stýrimaður á Hamar SH á rækju-
vertíð og þáði það. Ég fór svo líka
lausatúr á Hrafn GK 111 sem ann-
ar stýrimaður en það skip hét áður
Sléttanes íS þar sem ég hóf minn
sjómannsferil og í ágúst 2014 fæ
ég fastráðningu hjá Þorbirni hf á
Tómasi Þorvaldssyni. Ég kláraði
svo hitt í rólegheitum og útskrif-
aðist með fiskimanninn eða þrjú-
þúsund brúttótonna réttindi haust-
ið 2018,“ bætir hann við. Á Tómasi
Þorvaldssyni var Siggi annar stýri-
maður og leysti af sem yfirstýri-
maður.
Á öllum veiðiskap nema
uppsjávarskipum
„Það var svo í maí 2015 sem ég fer
í minn fyrsta túr sem skipstjóri á
Tómasi og var það skemmtilegur
áfangi fyrir mig. Ég á útgerðinni
mikið að þakka að treysta manni
svona óreyndum fyrir skipinu en
mér var hent út í djúpu laugina
þarna enda blautur á bakvið eyr-
un,“ segir Sigurður. Til stóð að
hann fengi skipstjórastöðu á Tóm-
asi en ekki kom til þess þar sem
bátnum var lagt sökum aldurs. „Ég
fékk þá pláss á línuskipinu Hrafni
GK 111 sem stýrimaður og afleys-
ingaskipstjóri haustið 2018 og líkar
það afskaplega vel. Við erum með
þetta fjörutíu til fimmtíu þúsund
króka og veiðin hefur gengið vel en
mætti að sjálfsögðu alltaf vera betri.
Ég hef verið á nánast öllum veiði-
skap nema kannski á uppsjávarskip-
um og mér líkar mjög vel við línu-
veiðarnar. Ég verð líka að minnast á
að á öllum þeim skipum þar sem ég
hef róið hafa vinnufélagarnir verið
frábærir. Ég hef verið ljónheppinn í
vinnufélagalottóinu og ef einhverjir
af þeim lesa þetta þá kasta ég kærri
kveðju á þá. Já og til allra sjómanna
og viðhengja þeirra. Framtíðin er
björt. Gleðilegan sjómannadag!“
Sigurður er kominn í frí fram á
næsta kvótaár en hann hefur samt
engar áhyggjur að honum leiðist
eitthvað. „Ég get alltaf fundið mér
eitthvað til að dunda hérna heima-
fyrir enda finnst mér gaman að ditta
að húsinu og dunda eitthvað,“ seg-
ir Sigurður að lokum, áður en hann
rýkur út til að hjálpa félögum sín-
um í Grundarfirði að undirbúa sjó-
mannadagsskemmtunina um næstu
helgi.
tfk
Sigurður með boltaþorsk. Ljósm. úr einkasafni.
Hélt upp á sautján ára
afmælið á leið í Smuguna
Hrafn GK 111 á siglingu.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson.
Sigurður Friðfinnsson við smábátahöfnina í Grundarfirði. Ljósm. tfk.