Skessuhorn - 29.05.2019, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 31
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Óskum sjómönnum til
hamingju með daginn
einangrun – umbúðir
Rögnvaldar verið honum mikið til
aðstoðar í vor á meðan hann réri á
stærri bátnum. „Gísli bróðir bjarg-
aði mér alveg í vor. Strákarnir mín-
ir Sveinbjörn og Hjálmar hafa ann-
ars verið með mér á bátnum. Vegna
veikinda annars þeirra hljóp Gísli
í skarðið í vor. Það er gott að hafa
slíkan Hauk í Horni, hann Gísli er
ekki sporlatur maður,“ segir bróð-
ir hans þakklátur. Aðspurður seg-
ist Rögnvaldur ekki ætla á strand-
veiðar í sumar, enda nær grásleppu-
vertíðin hjá honum langleiðina út
júní eins og áður segir og þá verður
strandveiðitímabilið hálfnað. „Ég
verð bara á grásleppunni á Gára
næstum því út júní en þá klárast
dagafjöldinn á þeim bát einnig og
ég fer í land.“
Svo ropar þetta á mann!
Hrognkelsin haga sér allt öðru-
vísi en margar aðrar tegundir fiska.
Grásleppan byrjar að ganga inn á
grunnsævi til hrygningar í febrú-
ar, mars á vorin, en síðan koma nýj-
ar göngur, sennilega fram í ágúst,
september. „Grásleppuveiðar eru
um margt allt öðruvísi en ann-
ar veiðiskapur. Líkt og í öðru eru
þessar veiðar með sínum hæðum
og lægðum. Hjá mér er þetta lífs-
stíll sem maður venst ágætlega með
tíð og tíma.“ Rögnvaldur rifjar það
upp að ekki hefur öllum líkað við
grásleppuna. „Magnús Vilhjálms-
son í Efstabæ, sem ýmist var kall-
aður Maggi í Efstabæ eða Maggi
romm, hafði litlar mætur á þess-
um veiðiskap og sagði eitt sinn með
sinni djúpu röddu: „Grásleppa!
Þetta eru ekki fiskar þetta helvíti.
Ekkert nema körtur og kambar og
svo ropar þetta á mann!“.“
Netin fyllast
í vestanáttinni
Við grásleppuveiðar líkt og annað
gildir að kunna að lesa í veðrið, taka
tunglstöðuna en auk þess treysta á
hyggjuvitið. Vissulega sömu vís-
indi og gömlu mennirnir studdust
við og urðu að treysta. Göngurnar
eru tengdar straumum og því þarf
sjómaðurinn að lesa úr tunglstöð-
unni. „Vestanáttin er verst hér við
Akranes. Þá kemur hroðinn og net-
in fyllast af þara,“ segir Rögnvald-
ur. Þeir sem stunda þessar veið-
ar þurfa að vera í góðu líkamlegu
formi því veiðiskapurinn getur
reynt á skrokkinn.. „Þetta var mikil
bakraun þegar allt var dregið með
höndum. Vinnubrögðin og tæknin
hafa þó tekið miklum framförum.
Já, blessaður vertu, aflabrögðin hafa
verið misjöfn ekki síður en verð-
ið fyrir afurðirnar. í fyrstu drógum
við bara allt á höndum, það var ekk-
ert spil eða neitt í fyrsta Gáranum
sem ég átti. Við komumst vel yfir
þetta þá enda netafjöldinn í sam-
ræmi við það. Núna hefur tækn-
in breytt þessu mikið. Við erum til
dæmis komnir með niðurleggjara
og það er gott að hafa hann þegar
netin fyllast af þara hér í vestanátt-
inni. Venjulega erum við svona
hálftíma að draga trossuna en þeg-
ar hún fyllist af þara fara tveir tímar
í verkið. Við rúllum netunum bara
í gegnum niðurleggjarann og hann
hristir það mesta úr. Netaspilið eins
og við erum með núna er líka mik-
ið þarfaþing.”
Rögnvaldur Einarsson býst við að
stunda grásleppuveiðarnar áfram, í
það minnsta meðan hann hafi þrek
og heilsu til. „Nú er slegist um að fá
að kaupa hrognin og skortur á þeim
á markaði. Meðan svo er getum við
reiknað með þokkalegu verði,“ seg-
ir Rögnvaldur að endingu. mm
Netalagnir Rögnvaldar á Gára AK eru norðan við Akranes. Ljósm. fh.
„Friðþjófur gómaði þjófinn, náði meira að segja af honum mynd.“