Skessuhorn - 29.05.2019, Qupperneq 46
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201946
Borgarbyggð auglýsir röð íbúafunda sem bera yfirskriftina ,,Borgarbyggð;
sveitarfé�ag í sókn“. Farið verður yfir fyrsta starfsár nýrrar sveitarstjórnar,
ársreikning sveitarfé�agsins, rekstrarniðurstöðu ársins 2018, helstu
þjónustuþætti og gjaldskrár. Samtal við íbúana um áherslur inn í
komandi fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2020.
- Sveitarfé�ag í sókn
3. júní í Hjálmakletti
4. júní í Loga�andi
5. júní í Lindartungu
Fundirnir hefjast allir kl. 20:00
Dagatal íbúafunda
borgarbyggd.is
Í hvað fara peningarnir okkar?
Í hvað ættu þeir að fara?
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Tilkynning til
fasteignaeigenda
á Akranesi
Frá og með 15. júní næstkomandi mun Akraneskaupstaður hætta
póstsendingu á greiðsluseðlum vegna fasteignagjalda.
Fasteignaeigendur geta í gegnum íbúagátt Akraness séð upphæðir
og gjalddaga á álagningarseðli ásamt færsluyfirliti.
Hægt er að óska sérstaklega eftir sendingu greiðsluseðla með því að hafa
samband við þjónustuver í síma 433 1000 en Akraneskaupstaður hvetur
íbúa eindregið til að nota rafrænar leiðir.
Þessi ákvörðun er í takt við stefnu Akraneskaupstaðar um að
minnka pappírsnotkun og undanfarin ár hefur prentun
greiðsluseðla minnkað verulega.
Á mánudagsmorgun var Bláfáninn
dreginn að húni við Langasand á
Akranesi. Bláfáninn er alþjóðlegt
umhverfismerki sem veitt er smá-
bátahöfnum, baðströndum og þjón-
ustuaðilum í sjávarferðamennsku
fyrir árangursríkt starf að umhverf-
ismálum. Tilgangur verkefnisins er
að stuðla að verndun lífríkis haf-
og strandsvæða, draga úr umhverf-
isáhrifum, bæta öryggi og efla um-
hverfisvitund. Bláfáninn er tákn um
góða frammistöðu í umhverfismál-
um og bætir ímynd og ásýnd rek-
staraðila þar sem hann blaktir við
hún og er þetta sjöunda árið í röð
sem Langisandur fær þessa viður-
kenningu.
Það var Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri Akraness, sem dró
fánann að húni með aðstoð bar-
na frá Akraseli og barna úr 6. bekk
Brekkubæjarskóla.
arg
Jósefína Meulengracht Diet-
rich, skáldlæða og mannfræðing-
ur á Akranesi, skrifaði nýlega und-
ir samning um útgáfu Jósefínubók-
ar. Mun bókin innihalda úrval eitt
hundrað ljóða sem Jósefína hefur
ort í gegnum tíðina. Samningarnir
voru undirritaðir við hátíðlega at-
höfn föstudaginn 17. maí síðastlið-
inn. „Jasmín húsfreyja og hefðark-
isa í Kattholti var viðstödd ásamt
þremur kettlingum og miklu fjöl-
menni. Það var glatt á hjalla,“ rit-
aði Jósefína á Facebook-síðu sína
við þetta tilefni.
Um er að ræða þríhliða útgáfu-
samning Jósefínu, Kattavinafélags
íslands, sem rekur Kattholt og
Bókaútgáfunnar Sæmundar á Sel-
fossi. Jósefína hyggst láta öll höf-
undarlaunin renna til Kattavina-
félags íslands og vill þannig launa
Kattholti fyrir að hafa bjargað lífi
sínu fyrir áratug síðan.
Að sögn Bjarna Harðarsonar,
útgefanda hjá Bókaútgáfunni Sæ-
mundi, hefur höfundur þegar skil-
að handriti og er bókin langt komin
í vinnslu. Hann segir stefnt að út-
gáfu hennar á haustmánuðum.
kgk
í gærmorgun var í Skjólbeltunum
á Hvanneyri endurnýjaður samn-
ingur milli Leikskólans Andabæj-
ar, Grunnskóla Borgarfjarðar og
Landbúnaðarháskóla íslands á
Hvanneyri um samstarf allra þess-
ara skóla sín á milli. Nú eru tíu ár
frá því samkomulag þetta var fyrst
gert, en það hefur tekið jákvæðum
breytingum síðan. „Það er feng-
ur fyrir leik- og grunnskóla að
hafa háskóla á sviði náttúruvísinda,
hönnunar og skipulags í næsta ná-
grenni. Það gefur tækifæri á sam-
skiptum við starfsfólk með mikla
sérþekkingu og möguleika á að geta
kynnt sér fjölbreytta starfsemi skól-
ans og skólabúsins. En ávinningur-
inn er einnig háskólasamfélagsins.
Það styrkir ímynd Lbhí, getur opn-
að leiðir að nýrri kennslufræðilegri
nálgun og gefur stofnuninni mögu-
leika á að vera opin og blómstra í
nærsamfélaginu,“ segir í kynningu
um samninginn.
„Um árabil hefur þróast ákveð-
in samvinna milli leik-, grunn- og
háskólans á Hvanneyri. Þessi sam-
vinna hófst sem stuðningur áhuga-
samra foreldra og velunnara við
metnaðarfullt skólastarf. Vinna í
gróðurhúsi, heimsóknir í fjós og
Landbúnaðarsafnið, afnot af skjól-
beltum, skoðun listaverka í Land-
búnaðarháskóla íslands, allt eru
þetta þættir sem eru komnir með
ákveðna hefð innan leik- og grunn-
skólans. Sóknarfærin eru mörg til
samvinnu og nýsköpunar í metn-
aðarfullu skólastarfi. Það er stað-
reynd að hár aksturskostnaður er
oft helsta hindrun þess að skólar
geti boðið upp á ákveðna náms-
skrárþætti og því er nálægð þess-
ara skóla við hvern annan mikill
kostur.”
mm/ Ljósm. Rósa Björk.
Frá undirritun samningsins. F.v. Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í
Andabæ, Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar og
Ragnheiður I. Þóririnsdóttir rektor LbhÍ.
Tíu ár frá því samstarf skólanna á Hvanneyri hófst
Skrifað var undir endurnýjaðan samning í Skjólbeltunum á Hvanneyri. Fulltrúar af
öllum skólastigum voru viðstaddir.
Jósefína Meulengracht Dietrich, skáld-
læða og mannfræðingur á Akranesi.
Ljósm. úr safni.
Jósefína sendir frá sér ljóðabók
Atli Harðarson, umboðsmaður skáldsins Jósefínu, og Heiðrún Hlín Guðlaugsdót-
tir, gjaldkeri Kattavinafélags Íslands, undirrita samninginn. Ljósm. Aðalsteinn
Svanur Sigfússon.
Bláfáninn blaktir við
hún á Langasandi