Skessuhorn - 29.05.2019, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 49
Hefur þig einhvern tímann langað að skrifa?
Á Bókasafni Akraness dagana 11.- 14. júní milli kl. 9:00-12:00
verður boðið upp á námskeið í skapandi skrifum fyrir krakka
á aldrinum 10 – 14 ára.
Á námskeiðinu fá krakkarnir að kynnast efni fréttablaða á
skemmtilegan hátt og búa til sitt eigið blað. Lokaafurð
námskeiðsins verður lítið fréttabréf úr smiðju þátttakenda.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Katrín Lilja Jónsdóttir
blaðakona og ritstjóri Lestarklefinn.is.
Skráning fer fram á Bókasafni Akraness og er þátttaka gjaldfrí.
Bókasafn Akraness - Dalbraut 1 - s. 433-1200
bokasafn.akranes.is - bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Laugardaginn 25. maí útskrifað-
ist Samra Begic af félag- og hug-
vísindabraut Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga. Samra var dúx skólans
með 9,2 í meðaleinkunn á stúd-
entsprófi. Aðspurð segir hún lyk-
ilinn að velgengni í námi fyrst og
fremst vera gott skipulag. „Ég er
frekar skipulögð og var alltaf dug-
leg að læra. Ég reyndi alltaf að
klára að læra áður en ég fór að gera
eitthvað annað. Þó það hafi alltaf
verið nóg að gera var lærdómur-
inn alltaf í forgangi,“ svarar hún.
Fyrstu fjögur árin í grunnskóla
voruð erfið námslega fyrir hana
vegna tungumálsins, en Samra er
fædd í Bosníu og flutti til Ólafs-
víkur þriggja ára gömul, árið 2003.
„Foreldrar mínir eru frá Bosníu
svo ég var ekki alveg með tungu-
málið á hreinu fyrstu árin í skóla
og stundum átti ég smá erfitt. Svo
bara fattaði ég að þetta væri eitt-
hvað sem ég þyrfti að gera og þá
fór þetta að ganga betur og ég sá
að námið gæti verið skemmtilegt,“
segir hún.
Samhliða námi hefur Samra unn-
ið í versluninni Þín verslun Kass-
inn í Ólafsvík auk þess sem hún
leggur mikla áherslu á að hreyfa
sig. „Ég æfði fótbolta lengi en
hætti þegar ég fór í framhaldsskóla
en hef verið dugleg að fara í rækt-
ina og alltaf verið að hreyfa mig á
fullu. Ég hef líka verið í vinnu frá
því í 8. bekk og unnið í Þín versl-
un Kassinn síðustu þrjú ár og ætla
að halda áfram að vinna þar í sum-
ar, þar til ég flyt til Reykjavíkur,“
segir Samra. Hún stefnir á nám í
íþótta- og heilsufræðum við Há-
skóla íslands í haust. Aðspurð seg-
ist hún ekki vita hvað hana dreym-
ir um að vinna við í framtíðinni.
„Mig langar í sjúkraþjálfaranám
en ég missi af inntökuprófinu því
ég verð í útlöndum. Ég ákvað því
bara að byrja á íþrótta- og heilsu-
braut og sjá svo til eftir ár hvort
mig langi að færa mig yfir í sjúkra-
þjálfarann eða eitthvað annað,“
segir hún.
arg
Laugardaginn 25. maí brautskráð-
ust 26 nemendur frá Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Af félags- og
hugvísindabraut brautskráðust
Andri Þór Hinriksson, Aníta Ýr
Bergþórsdóttir, Aron Ingi Hin-
riksson, Brynjar Vilhjálmsson,
Dagný Vagnsdóttir, Diljá Sigur-
jónsdóttir, Erlingur Hrafn Helga-
son, Eyrún Ösp Jóhannesdóttir,
Hilmar Björnsson, Kristín Birna
Sigfúsdóttir, Marsibil Lísa Þórð-
ardóttir, Patrycja Aleksandra Ga-
wor, Samra Begic, Sigurborg
Kristín Ólafsdóttir og Sumarliði
Kristmundsson.
Af náttúru- og raunvísindabraut
brautskráðust Petrea Mjöll Elvars-
dóttir, Pétur Steinar Jóhannsson,
Ragnheiður Ingólfsdóttir, Regína
Sigurjónsdóttir og Svava Kristín
Jónsdóttir.
Af opinni braut til stúdents-
prófs brautskráðust Gunnar Ingi
Gunnarsson, Ríkey Konráðsdótt-
ir, Sandra Líf Pálsdóttir, Sölvi
Óskarsson og Trausti Leó Gunn-
arsson.
Úr námi af starfsbraut braut-
skráðist Hörður Elí Kristmunds-
son.
Athöfnin hófst á því að Hrafn-
hildur Hallvarðsdóttir skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
brautskráði nemendur og flutti
ávarp. Sólrún Guðjónsdóttir að-
stoðarskólameistari afhenti síð-
an með aðstoð kennara nemend-
um viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur. Sveitarfélögin sem
standa að skólanum gáfu viður-
kenningar í formi bókagjafa, auk
þess gáfu Hugvísindadeildir Há-
skóla íslands og Háskóla Reykja-
víkur gjafir, embætti Landlæknis,
Arion banki, íslenska stærðfræða-
félagið, Setbergsprestkall, Lands-
bankinn og Fjölbrautaskóli Snæ-
fellinga viðurkenningar og gjafir.
Dúx skólans
og viðurkenningar
Samra Begic hlaut hæstu einkunn
á stúdentsprófi og var meðalein-
kunn hennar 9,22 og fékk hún veg-
lega bókagjöf frá sveitafélögunum
og peningagjöf frá Landsbankan-
um að launum. Samra hlaut viður-
kenningu fyrir námsárangur sinn í
ensku, íslensku og þýsku og verð-
laun frá Hugvísindadeild Hí fyrir
árangur sinn í tungumálum. Einn-
ig hlaut hún viðurkenningu fyr-
ir námsárangur sinn í félags- og
hugvísindagreinum sem og í við-
skiptagreinum.
Svava Kristín Jónsdóttir hlaut
gjöf frá Arion banka og íslenska
stærðfræðafélaginu fyrir árangur
sinn í stærðfræði, gjöf frá HR fyr-
ir árangur sinn í raungreinum og
viðurkenningu fyrir námsárang-
ur sinn í eðlisfræði og umhverfis-
fræðum.
Andri Þór Hinriksson hlaut
viðurkenningu fyrir námsárangur
sinn í þýsku, Dagný Vagnsdótt-
ir hlaut gjöf frá Arion banka fyr-
ir námsárangur sinn í stærðfræði,
Aníta Ýr Bergþórsdóttir hlaut
viðurkenningu fyrir námsárang-
ur sinn í sálfræði og viðurkenn-
ingu frá embætti Landslæknis fyr-
ir vel unnin störf í þágu lýðheilsu
og forvarna innan skólans, Marsi-
bil Lísa Þórðardóttir hlaut verð-
laun fyrir námsárangur sinn í sál-
fræði og sögu, Kristín Birna Sig-
fúsdóttir hlaut viðurkenningu fyr-
ir námsárangur sinn í félagsfræð-
um, Hörður Elí Kristmundsson
hlaut viðurkenningu fyrir störf sín
í Grundarfjarðarkirkju og Ragn-
heiður Ingólfsdóttir hlaut viður-
kenningu fyrir störf sín með For-
seti nemendafélagsins.
Elva Björk Jónsdóttir nemandi
og Trausti Leó Gunnarsson út-
skriftarnemi fluttu lögin Purpose
og Stand by me og Jakob Þor-
steinsson nemandi á starfsbraut
flutti lagið Endless.
Loftur Árni Björgvinsson flutti
kveðjuræðu kennara og starfs-
fólks, Guðmundur Jensson flutti
ræðu fyrir hönd 5 ára stúdenta
og Gunnar Ingi Gunnarsson hélt
kveðjuræðu nýstúdenta.
Að lokum sleit skólameistari 15.
starfsári Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga og bauð stúdentum og gest-
um að þiggja veitingar.
fréttatilk./ Ljósm. sá.
Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskóla-
meistari afhenti Samra Begic dúx
verðlaunin. Ljósm. sá.
Dúx FSN segir skipulag
lykilinn að velgengni í námi
Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Hrafnhildur Hallvarðdóttir þakkaði
Önnu Guðrúnu Aðalsteinsdóttur og
Berglindi Jósepsdóttur, en þær eru að
hætta eftir níu ára rekstur á mötuneyti
skólans - og verður þeirra sárt saknað.
Útskriftarhópurinn ásamt skólasmeistara og aðstoðarskólameistara.
Stærðir
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Verslunin
Belladonna
www.belladonna.is